Fréttablaðið - 29.05.2005, Qupperneq 59
31SUNNUDAGUR 29. maí 2005
Lítið hefur farið fyrir krufningu á líki AC
Milan-liðsins í ítölskum fjölmiðlum eftir
háðulegt tap liðsins gegn Liverpool í úr-
slitaleik Meistaradeildarinnar í vikunni.
Er sem ítalskir séu í losti og átti sig eng-
an veginn á því hvernig leikurinn gat
farið svona. Forsvarsmenn liðsins, for-
sætisráðherrann og eigandinn Silvio
Berlusconi og forseti félagsins, Adriano
Galliani, hafa lagt áherslu á að árangur
liðsins í vetur hafi eftir allt saman verið
mjög góður og að staða þjálfarans
Carlo Ancelotti sé trygg.
Vantar neista
Þegar Milan-menn rakna úr rotinu má
hins vegar gera ráð fyrir að einhver til-
tekt verði gerð í herbúðum liðsins.
Staðreyndin er nefnilega sú að árangur
liðsins í vetur er fjarri því ásættanlegur
og alveg með ólíkindum hvernig liðið
kastaði frá sér bæði ítalska titlinum og
Evrópumeistaratitlinum.
Sennilega hefur ekkert félag í Evrópu
yfir að ráða jafn sterkum leikmannahópi
og Milan og ekki skortir samæfingu
leikmanna. Liðið varð Evrópumeistari í
hittifyrra og Ítalíumeistari með yfirburð-
um í fyrra. Leikmannahópurinn hefur
haldist óbreyttur að mestu, styrkst ef
eitthvað er. Það mátti því gera kröfur til
liðsins að fleiri titlar yrðu sóttir.
En eitthvað virðist skorta á hjá liðinu,
það vantar einhvern neista sem þarf til
þess að klára verkefnin. Þetta sást í
fyrra þegar liðið hélt til Spánar með
þriggja marka forskot til þess eins að
tapa með fjórum mörkum gegn
Deportivo La Coruna. Minnti áfallið í
Tyrklandi á Spánarförina háðulegu.
Á heimavígstöðvunum réðust úrslitin í
tveimur leikjum gegn keppi-
nautunum í Juventus þar sem
Milan náði ekki að nýta yfir-
burði sína í báðum leikjun-
um til sigurs. Ítölskum fjöl-
miðlum ber saman um að
Juventus hafi stolið stigunum
af Milan í leikjunum og þar í
landi er litið svo á að
Juve hafi labbað held-
ur billega í burtu
með titilinn.
Berlusconi hefur á
tuttugu ára valda-
tíma sínum hjá
Milan sýnt undir-
mönnum sínum
hollustu og flestir
þjálfarar liðsins
hafa verið „Mil-
anista“, fyrrver-
andi leikmenn
eða þjálfarar
sem hafa
starfað lengi
innan félags-
ins. Carlo
Ancelotti var
stórkostlegur
leikmaður á
sinni tíð og
hann þykir drengur góður. Hann virðist
hins vegar ekki hafa þá siguráru í kring-
um sig sem þjálfara toppliðs er nauð-
synleg. Þegar hann stýrði Juventus
missti liðið af meistaratitli tvö ár í röð í
lokaumferðinni og þótt hann hafi náð
að landa titlum hjá Milan verður ekki
horft framhjá þeim titlum sem hafa
runnið úr greipum á ögurstundu.
Ferna Capellos
Ekki má þó gera lítið úr árangri
Juventus undir stjórn Fabios
Capello sem hefur nú náð
þeim einstæða árangri
að leiða fjögur lið til
meistaratitils. Maðurinn
hefur orðið meistari
með ölllum liðum
sem hann hefur þjálf-
að! Capello náði á
undraskömmum
tíma að berja
saman lið sem
flestir töldu ekki
líklegt til stór-
afreka á haust-
dögum.
Capello gerði
róttækar
breytingar á
vörn liðsins og
lagði áherslu á mikla var-
færni í leik liðsins.
Hann taldi einfaldlega að
ekki væri innistæða hjá
mannskapnum fyrir mikilli ævintýra-
mennsku og tók afar illa gagnrýnisrödd-
um sem töldu Juventus leika fremur
leiðinlegan fótbolta. Lið Capello hafa
yfirleitt leikið skemmtilegan fótbolta og
þótt lítið hafi farið fyrir slíku í vetur voru
fingraför hans greinileg á leik Juventus.
Klassíkt 4-4-2 leikkerfi eins og Capello
hefur alltaf látið lið sín spila með stóran
mann á toppnum, Svíann Zlatan Ibra-
himovic, sem lék manna best í meist-
araliðinu ásamt miðjumanninum
Camoranesi og öftustu línunni, Buffon,
Cannavaro og Thuram.
Gera má ráð fyrir að Capello styrki liðið
í sumar, það vantar áþreifanlega fleiri
sóknar- og miðjumenn með sprengi-
kraft og er fyrrum lærisveinninn Antonio
Cassano efstur á blaði á innkaupalistan-
um.
Samp og Sikileyingarnir
Að baráttu Milan og Juve frátaldri vakti
framganga Sikileyjarliðanna Palermo og
Messina mesta athygli ásamt stórgóð-
um leik hins forna stórveldis Samp-
doria. Sikileyingarnir lentu í sjötta
og sjöunda sæti og Palermo leik-
ur því í Evrópukeppni í fyrsta sinn
í sögu félagsins. Sampdoria berst
við Udinese um síðasta sætið í
Meistaradeildinni og ræðst í loka-
umferðinni í dag hvort liðið kemst að
þeim kjötkötlum. Sampdoria nýtur
mikillar velþóknunar í ítölsku pressunni
einkum fyrir þá staðreynd að liðið er
nær eingöngu byggt á ítölskum leik-
mönnum sem er fátítt á þessum síð-
Bosman tímum.
Um afganginn af liðunum í deildinni er
best að hafa sem fæst orð um. Þrettán
liða pakki þar sem einungis munar níu
stigum á neðsta liðinu og því sem er í
áttunda sæti. Þessi lið hafa flest verið
hörmulega léleg í vetur og endurspegla
þann aukna ójöfnuð sem ríkir í Evrópu-
boltanum.
Maskínan sem sprakk
EINAR LOGI VIGNISSON: AC MILAN Í SÁRUM
126 keppendur héldu
utan í morgun
Smáfljó›aleikarnir ver›a settir í Andorra á mánudagsmorgun og standa yfir í
fimm daga. Íslenska keppnisli›i› setur stefnuna á sigur á mótinu.
SMÁÞJÓÐALEIKAR Á mánudagskvöld-
ið verða smáþjóðaleikarnir settir í
Andorra þar sem keppnin fer
fram í ár. 126 íslenskir keppendur
halda utan í dag ásamt fylgdarliði.
Íslenska keppnisliðið á harma að
hefna, eftir að hafa hlotið flest
verðlaun á leikunum nokkur
skipti í röð, urðu þeir að láta í
minni pokann fyrir tveimur árum
á Möltu, er leikarnir fóru síðast
fram.
Sigríður Jónsdóttir, varaforseti
ÍSÍ, er fararstjóri íslenska hóps-
ins og segir hún undirbúninginn
hafa gengið vel. „Við vorum með
undirbúningsfund á þriðjudaginn
þar sem meira en 100 keppendur,
farar- og flokkstjórar mættu. Þar
voru aðstæður kynntar og það
sem bíður okkar ytra. Það var ein-
staklega góð stemmning í hópnum
og hefur undirbúningur keppenda
gengið vel,“ segir Sigríður.
Keppt í strandblaki
Að sögn hennar senda tíu sérsam-
bönd 126 þátttakendur til leiks í
12 íþróttagreinum. Meðal kepp-
enda eru til að mynda keppnislið í
strandblaki karla sem verður að
teljast fremur ný íþrótt hér á
landi. „Þetta er íþrótt sem hefur
notið sífellt meiri vinsælda. Það
sýndi sig til dæmis á síðustu
ólympíuleikum hversu vinsæl
sjónvarpsíþrótt þessi grein er.“
Íslenski hópurinn flýgur í dag
til Barcelona þar sem rútur munu
flytja mannskapinn til fjallríkis-
ins Andorra og tekur það ferðalag
um þrjár klukkustundir. Hópur-
inn nýtir sér mánudaginn til að
koma sér fyrir og kynna sér að-
stæður áður en setningarathöfnin
hefst um kvöldið. Keppni hefst á
þriðjudagsmorguninn og stendur
yfir til laugardagsins þegar mót-
inu verður slitið.
Stefnan sett hátt
„Að sjálfsögðu setjum við stefn-
una á að vinna til flestra verð-
launa. Við vitum þó að það eru
nokkrir sterkir keppendur sem
ekki verða með, Örn Arnarson á
við meiðsli að stríða og okkar
bestu hlaupadrottningar eru að
keppa á alþjóðlegum mótum ann-
ars staðar,“ sagði Sigríður.
Íslensku körfuboltalandsliðin
ætla sér einnig stóra hluti og
setja stefnuna á sigur bæði í
karla- og kvennaflokki. Hannes
Jónsson er fararstjóri körfubolta-
hópsins.
„Undirbúningurinn hefur
gengið vel. Landsliðið kom saman
fyrir þremur vikum en kvenna-
landsliðið hefur verið viku lengur
saman,“ sagði Hannes. Ekki eru
allir okkar körfuboltamenn í
landsliði karla og segir Hannes
það miður. „Já, það er auðvitað
leiðinlegt. En engu að síður ætl-
um við okkur stóra hluti.“
Landslið kvenna hefur leik
strax á þriðjudag og lýkur keppni
tveimur dögum síðar en karlarnir
byrja á miðvikudag og keppa al-
veg fram á lokadag mótsins.
eirikurst@frettabladid.is
ÞRENN VERÐLAUN Sundkappinn Jakob Jóhann Sveinsson nældi sér í þrenn verðlaun á
síðustu leikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓÓJ
FÓTBOLTI Áhorfendur á leikjum
Landsbankadeildarinnar hafa val-
ið mann leiksins í samstarfi við
Og Vodafone allt frá fyrstu um-
ferð í sumar en hægt er að velja
mann leiksins með einu sms-i.
Þetta framtak hefur mælst vel
fyrir en félögin sjálf fá allan
hagnað af leiknum.
Leikmenn þriðju umferðar
Landsbankadeildarinnar voru
Magnús Sverrir Þorsteinsson í
Grindavík, Tryggvi Guðmundsson
hjá Íslandsmeisturum FH, Grétar
Ólafur Hjartarson KR-ingur,
Matthías Guðmundsson Valsari og
Framarinn Andri Fannar Ottós-
son.
Fólkið í stúkunni:
Velur mann
leiksins
DRAUMALIÐSLEIKUR Markvörður
Keflavíkur, Ómar Jóhannsson, gaf
flest stig í 3. umferð Draumaliðs-
leik Vísis í Landsbankadeildinni.
Ómar var í sigurliði og varði víta-
spyrnu frá Arnari Gunnlaugssyni
og það skilaði sínu. Ómar fékk 11
stig í umferðinni en næstu menn
fengu aðeins 6.
Stgahæsta liðið í 3. umferðinni
var UMFDalatangi með 36 stig.
FC-Úrval kom skammt á eftir með
35 stig. Þrjú lið voru síðan jöfn
með 34 stig en þau heita Leddari,
maggi jons og Aðalkrónan.
Draumaliðsleikur Vísis:
Ómar gaf
flest stig
ÓMAR JÓHANNSSON Lék vel í marki
Keflavíkur gegn KR.
ROSS MCLYNN Andri Steinn Birgisson
fagnar marki McLynns gegn ÍBV.
Meiðsli í Safamýrinni:
McLynn er
togna›ur
FÓTBOLTI Bakvörðurinn írski, Ross
James McLynn, lék ekki með
Frömurum gegn Þrótti í fyrra-
kvöld en hann hafði leikið fyrstu
tvo leiki liðsins á tímabilinu og
skorað eitt mark.
Ólafur Kristjánsson, þjálfari
Fram, segir McLynn tognaðan aft-
an á læri og það komi ekki í ljós
fyrr en á æfingu í dag og á morg-
un hvort hann verði klár í næsta
leik, gegn Val á Hlíðarenda á
þriðjudagskvöld. Kristófer Skúli
Sigurgeirsson tók stöðu McLynns
í byrjunarliði Fram gegn Þrótti.
- esá
Guðjón vinsæll í Nottingham:
Aukin sala
ársmi›a
FÓTBOLTI Greinilegt að stuðnings-
menn Notts County hafa tröllatrú
á Guðjóni Þórðarsyni, nýráðnum
knattspyrnustjóra liðsins. Sala á
ársmiðum á heimaleiki liðsins tók
kipp við komu Guðjóns og jukust
um 15% á einni viku. Alls hafa
1600 ársmiðar selst sem er tals-
verð aukning frá sama tíma ársins
í fyrra en liðið hefur nú átt erfitt
uppdráttar fjögur tímabil í röð.
Patrick Nelson, framkvæmda-
stjóri félagsins, var sjálfur í sölu-
básnum um liðna helgi en þá lauk
því tímabili sem ársmiðarnir voru
seldir með sérstökum afslætti.
„Ég ræddi við stuðningsmenn
okkar sem virtust mjög spenntir
yfir ráðningu Guðjóns,“ sagði
hann við staðarblað í Nottingham.
„Ég efast ekki um að þessar góðu
sölutölur eru Guðjóni að þakka.“
-esá