Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.05.2005, Qupperneq 61

Fréttablaðið - 29.05.2005, Qupperneq 61
SUNNUDAGUR 29. maí 2005 33 KA fór illa me› nágranna sína í fiór Fjórir leikir fóru fram í 1. deild karla í gær. Stórleikur umfer›arinnar fór fram á Akureyri flar sem KA og fiór mættust. Lárus Orri Sigur›sson sá rautt í leiknum og eftirleikurinn var au›veldur fyrir KA. FÓTBOLTI Það var blóðug barátta á Akureyri í gær þegar erkifjend- urnir í Þór og KA mættust. Hart var tekist á eins og venjulega og fengu tveir leikmenn Þórs að líta rauða spjaldið. Það nýttu KA- menn sér til fullnustu og þegar upp var staðið höfðu þeir niður- lægt Þórsarana, 6-1. KA-menn komust yfir strax á 12. mínútu með marki Húsvík- ingsins Pálma Rafns Pálmasonar. Vendipunktur leiksins kom síðan á 37. mínútu þegar Egill Már Markússon dómari gaf Lárusi Orra Sigurðssyni beint rautt spjald fyrir háskalega tæklingu. Lárus Orri vissi upp á sig sökina og yfirgaf svæðið hávaðalaust. Þannig stóðu leikar í hálfleik en Þórsarar jöfnuðu óvænt í upp- hafi þess síðari úr vítaspyrnu. KA-menn voru fljótir að svara með öðru marki, einnig úr víti, og þegar Þórsarar misstu annan mann af velli var allur vindur úr þeim. KA-menn gengu á lagið og bættu við fjórum mörkum áður en Egill Már flautaði leikinn af. Í Víkinni var söguleg stund þegar reykvísku Víkingarnir tóku á móti Víkingunum frá Ólafsvík. Sá leikur var aldrei spennandi enda eru Reykjavíkur-Víkingar með mikið sterkara lið og þeir voru ekki í vandræðum með nafna sína frá Ólafsvík. Lokatölur 7-0 sem var síst of stór sigur. Nýliðar KS frá Siglufirði komu verulega á óvart á Kópavogsvelli með því að leggja HK að velli, 0-2. Sigur Siglfirðinga var sanngjarn og sannfærandi enda héldu þeir algjörlega aftur af sóknarleik heimamanna sem áttu eitt veru- legt færi í leiknum. Það er ljóst að KS er með mun sterkara lið en menn töldu í fyrstu og verða þeir sýnd veiði en ekki gefin. HK held- ur aftur á móti áfram að valda vonbrigðum en til mikils var ætl- ast af liðinu fyrir mótið. Völsungur frá Húsavík situr sem fastast á botni deildarinnar án stiga eftir 1-0 tap gegn Hauk- um. Það sem meira er þá hefur þeim ekki enn tekist að skora mark sem er ákaflega dapur ár- angur hjá Zorani Ljubicic og læri- sveinum hans. henry@frettabladid.is Flestir frá meisturum Juventus og Milan Markvörður, Gianluigi Buffon: Eitthvað voru Ítalir að vandræðast með að kjósa hann besta markvörð sögunnar á dögunum og náðu ei sátt þótt Zoff taldi hann sér fremri. Vörn, Lilian Thuram: Bakvörður? Miðvörður? Þvílíkur snillingur. Ég set hann hægra megin til öryggis. Vörn, Fabio Cannavaro: Fengur ársins. Hvað var Inter að pæla að sleppa honum? Vörn, Paolo Maldini: Besta leiktíð hans í áraraðir. Eitthvað svo dásamlegt energí og fágun. Vörn, Marek Jankulowski: Tékkinn aggressívi er heilinn á bak við flestar árásir Udinese. Miðja, Andrea Pirlo: Besti leikstjórnandi Evrópu í dag. Miðja, Kaká: Sætur Brassi með bestu boltameð- ferðina sé litið fram hjá Ronaldinho. Miðja, Mauro Camoranesi: Argentínski Ítalinn var fremstur miðjumanna Juve áttina að 28. meistara- titlinum. Ótrúlega vinnusamur leikmaður. Miðja, Francesco Flachi: Skemmtilegasti leik- maður deildarinnar í spútnikliði tímabilsins. Sögnin að fleygja sér fær nýja merkingu sé litið til hans. Sókn, Alberto Gilardino: Ofurmannlegt að vera annað árið í röð í markakóngskeppni með einu slappasta liði deildarinnar og skapar sér færin sjálfur í þokkabót. Sókn, Zlatan Ibrahimovic: Besta byrjun leikmanns á Ítalíu síðan Platini klæddist skyrtunni gráhvítu með glæsibrag. „Lið sem myndi skyggja á allar hugmyndir um varnarmennsku Ítala þótt varasamt sé að pæla í fótbolta fagurfræðar og sanngirni eftir afrek Bítlaborgarinnar síðustu daga.“ Buffon Pirlo 4-4-2 LIÐIÐ MITT > EINAR LOGI VIGNISSON SETUR SAMAN LIÐ ÁRSINS Í ÍTALSKA BOLTANUM Jankolowski Cannavaro Maldini Thuram Gilardino Camoranesi Kaká Flachi Zlatan LEIKIR GÆRDAGSINS 1. deild karla: KA–ÞÓR 6–1 1–0 Pálmi Rafn Pálmason (12.), 1–1 Steinn Símonarson, víti (48.), 2–1 Jóhann Þórhallsson, víti (50.), 3–1 Jóhann Helgason (57.), 4–1 Jóhann Þórhallsson (59.), 5–1 Hreinn Hringsson (85.), 6–1 Hreinn Hringsson (90.). VÍKINGUR R.–VÍKINGUR Ó. 7–0 1–0 Elmar Dan Sigþórsson (13.), 2–0 Daníel Hjaltason, víti (18.), 3–0 Davíð Þór Rúnarsson (25.), 4-0 Milos Glogovac (45.), 5–0 Elmar Dan Sigþórsson (66.), 6–0 Hörður Bjarnason (78.), 7–0 Stefán Örn Arnarson (84.). HK–KS 0–2 0–1 Branislav Zrnic (7.), 0–2 Ragnar Hauksson, víti (67.) HAUKAR–VÖLSUNGUR 1–0 1–0 Hilmar R. Emilsson (31.) STAÐAN: BREIÐABLIK 3 3 0 0 4–1 9 VÍKINGUR R. 3 2 1 0 14–2 7 KA 3 2 0 1 9–3 6 ÞÓR 3 1 1 1 6–9 4 VÍKINGUR Ó. 3 1 1 1 1–7 4 HAUKAR 3 1 1 1 4–4 3 KS 3 1 0 2 4–5 3 FJÖLNIR 3 1 0 2 3–7 3 HK 3 0 2 1 2–4 2 VÖLSUNGUR 3 0 0 3 0–5 0 Skoski bikarinn: GLASGOW CELTIC–DUNDEE UNITED 1–0 1–0 Alan Thompson (11.) Spænski boltinn: REAL SOCIEDAD–BARCELONA 0–0 TAKK FYRIR KOMUNA, SJÁUMST SÍÐAR Egill Már Markússon dómari sýnir hér Þórsaranum Dragan Simovic sitt annað gula spjald og um leið hið rauða. Simovic var annar Þórsarinn sem fékk rautt hjá Agli í leiknum en áður hafði Lárus Orri Sigurðsson séð rautt hjá Agli Má. PEDROMYNDIR.IS/ÞÓRIR Ó. TRYGGVASON VÖLSUNGUR Á BOTNINUM Baldvin Jón Hallgrímsson náði ekki að koma í veg fyrir enn eitt tap hjá Völsungi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.