Fréttablaðið - 29.05.2005, Side 65
SUNNUDAGUR 29. maí 2005 37
Hjá Máli og menningu er
komin út í kilju Skíta-
djobb eftir Ævar Örn Jós-
epsson. Skítadjobb er
glæpasaga úr íslenskum
veruleika þar sem freist-
ingar, mannlegur breysk-
leiki og skítaveður setja
mark sitt á glæpamenn-
ina og fórnarlömb þeirra jafnt
sem lögreglumannanna sem eltast við þá.
Hjá Máli og menningu er komin út í kilju
Kalaharí vélritunarskólinn fyrir
karlmenn eftir Alexander
McCall Smith í þýðingu
Helgu Soffíu Einarsdóttur.
Í þessari fjórðu bóku um
Kvenspæjarastofu númer
eitt í Botsvana í Afríku
heldur hin ómótstæði-
lega Precious Ramotswe
áfram að glíma við snúin mál í einkalífi og
starfi.
Hjá Máli og menningu er komin ljós-
mynda- og ljóðabókin Íslensk eyðibýli
með myndum Nökkva Elíassonar og ljóð-
um Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Bók-
in er einnig komin út á ensku undir heit-
inu Abandoned Farms. Eyðibýli hafa verið
viðfangsefni Nökkva Elíassonar í hartnær
tvo áratugi. Hann hefur leitað fanga um
allt land og
fest á filmu
eyðibýli, sem
mörg eru nú
horfin ofan í
svörðinn.
[ NÝJAR BÆKUR ]
Aðlaganir myndasagna að kvik-
myndaforminu verða áberandi í
sumar en á næstu vikum og mán-
uðum eru væntanlegar þrjár stór-
myndie: Batman Begins, Sin City
og Fantastic Four sem allar
byggja á þekktum myndasöguper-
sónum og ævintýrum þeirra. Bat-
man þarf auðvitað ekki að kynna
og þeir sem lásu svokölluð „hasar-
blöð“ í æsku kannast flestir við
hetjurnar sem kenndar eru við
Fantastic Four. Í báðum tilfellum
eru því á ferðinni heimsþekktar
ofurhetjur en í Sin City kveður við
annan tón þar sem viðfangsefnið
er öllu jarðbundnara með glæpi,
morðingja og vændiskonur í for-
grunni.
Frank Miller, höfundur Sin
City bókanna, er einn athyglis-
verðasti myndasöguhöfundur
samtímans og er vægast sagt fun-
heitur um þessar mundir eftir að
Robert Rodriguez gerði Sin City-
myndina upp úr þremur bókum
hans úr Sin City-flokknum. Miller
sækir stíft í harðsoðna reyfara
Raymonds Chandler, Dashiells
Hammett og James M. Cain í Sin
City-bókunum sem greina frá lífi
og dauða geðsjúklinga, spilltra og
heiðarlegra lögreglumanna,
vændiskvenna og súlustelpna í
Basin City, einu ömurlegasta
lastabæli sem hugsast getur. Frá-
bærar teikningar Millers eru svo
bergmál „film noir“-glæpamynd-
anna sem áttu sína gullöld á árun-
um 1941 til 1958 og byggðu oftar
en ekki á verkum áðurnefndra rit-
höfunda.
Þegar höfundarverk Millers er
skoðað kemur ekki á óvart að
„film noir“-heimurinn hafi heillað
hann en hann er mjög upptekinn
af karlmennsku og töffaraskap
þannig að testósterónið kraumar í
bókum hans og nægir í því sam-
bandi að nefna snilldarverkið 300
sem byggir á frækilegustu vörn
mannkynsögunnar þar sem Le-
onídas Spartverjakonungur,
berrassaður og vöðvastæltur,
verst Persum ásamt 300 manna
liði sínu í Laugaskörðum. Þar fyr-
ir utan hefur Miller gert frábæra
hluti með Daredevil og skóp í
þeim sögum sínum morðkvendið
Elektru auk þess sem hann hristi
heldur betur slenið af Batman í
bókunum Batman: Year One, Bat-
man: The Dark Knight Returns og
Batman: The Dark Knight Strikes
Again. Í Year One segir Miller
sköpunarsögu Batmans á sinn
hátt en í þeim tveimur síðar-
nefndu vekur hann Bruce Wayne
af værum blundi eftirlaunaár-
anna og stefnir honum gegn
glæpahyski Gotham-borgar á ný.
Hinn fornfrægi leikari Mickey
Rourke rís upp úr öskustó fíkni-
efnaneyslu og aumingjaskapar í
hlutverki Marvs, lykilpersónu í
Sin City-bálknum, og leiksigur
hans og frábærar viðtökur aðdá-
enda Millers við Sin City-mynd-
inni hafa glætt vonir fólks um að
Dark Knight-bækur hans fái sömu
meðferð. Þá þykir ljóst að hinn
veðraði Rourke verði kjörinn í
hlutverk lemstraðs Leðurblöku-
mannsins á efri árum.
thorarinn@frettabladid.is
Bækur lifna vi› í bíó
BRUCE WILLIS Leikur Hartigan í bíó-
myndinni Sin City sem fylgir bókinni eftir í
öllum smáatriðum þannig að hörðustu að-
dáendur Millers hafa ekki yfir neinu að
kvarta. Harðsoðnum samtölum Millers er
veitt beint af síðum bókanna yfir á hvíta
tjaldið og það sem er mest um vert er að
teikningar Millers öðlast einnig sjálfstætt líf
í myndinni.
JOHN HARTIGAN Þessi gegnheila lögga og verndari þeirra sem minna mega sín er löðr-
andi í töffi og testósteróni í Sin City bókinni That Yellow Bastard eftir Frank Miller.
Frank Miller hefur hingað til
gert sjö Sin City-bækur, sex
stórar sögur og smásagnasafnið
Booze, Broads, & Bullets. Bæk-
urnar hafa allar verið endurút-
gefnar í kjölfar vinsælda
spennumyndarinnar Sin City
sem byggir á þremur þeirra og
allar líkur eru á að Miller muni
fylgja þessum auknu vinsældum
eftir með nýjum Sin City-sög-
um.
Allar bækurnar sjö eru un-
aðsleg lesning og sannkallað
augnakonfekt en að mínu mati
stendur That Yellow Bastard
upp úr. Þar segir frá löggunni
John Hartigan, sem óhætt er að
segja að sé eini heiðarlegi mað-
urinn í Sin City. Hann er sann-
kallaður riddari götunnar og ná-
skyldur einkaspæjaranum og
hugarfóstri Raymonds Chandl-
er, Philip Marlowe.
Hartigan veit að sonur spillts
stjórnmálamanns stundar það, í
skjóli valda föður síns, að ræna
barnungum stúlkum, pynta þær
og nauðga þeim.
Á síðasta vinnudegi sínum
fyrir eftirlaun neitar hann að
hætta fyrr en honum tekst að
bjarga hinni 11 ára gömlu
Nancy Callahan úr klóm níð-
ingsins. Honum tekst þetta við
illan leik, sendir perrann lim-
lestan í öndunarvél en er sjálf-
um stungið í steininn sundur-
skotnum eftir átökin. Þar má
hann dúsa í einangrun í átta ár
þangað til að honum læðist sá
grunur að Nancy litlu, sem nú er
orðinn fullvaxta kona, standi
aftur ógn af níðingnum. Hann
játar á sig alls konar viðbjóð
gegn reynslulausn og hefur ör-
væntingarfulla leit að Nancy
sem hann finnur hangandi á súlu
á nektarstað.
Barnaníðingurinn er hins veg-
ar risinn upp af dvalanum en eft-
ir læknismeðferðir sem fólu
meðal annars í sér að á hann var
græddur nýr getnaðarlimur í
stað þess sem Hartigan reif
undan honum átta árum áður
hafa haft þær aukaverkanir að
hörund hans er gult og af honum
leggur viðbjóðslegan þef. Guli
bastarðurinn er sem sagt kominn
á kreik og er á hælum Hartigans
og Nancyar ákveðinn í að klára
það sem Hartigan eyðilagði fyrir
honum forðum.
Annað uppgjör er því óumflýj-
anlegt og Miller slær hvergi af í
ofbeldinu sem er svo gróft og
ruddalegt að síðurnar væru allar
blóðrauðar ef ekki væri fyrir
snjallt svart/hvítt stílbragðið.
Groddalegt ofbeldið sem
minnir einna helst á ýktar bar-
smíðar úr Tomma og Jenna, stíl-
færðar teikningar, spennandi
sögur og skemmtilega útfærðar
steríótýpur gera Sin City-bæk-
urnar að þéttum reyfurum sem
eiga fáar hliðstæður en það sem
hefur þessi verk Millers langt
upp fyrir sambærilegt efni í
skáldsögum, kvikmyndum og
sjónvarpi er meitlaður og kald-
hamraður texti Millers sem jafn-
ast á við það besta frá gömlu
meisturunum.
„Sin City skreppur saman í
baksýnisspeglinum, sjúskuð og
slöpp, eins og þreytt hóra sem
bíður eftir döguninni og einver-
unni.“ Svona skrifa bara skáld.
Þórarinn Þórarinsson
Bló›ba› í svart/hvítu
SIN CITY: THAT YELLOW BASTARD
HÖFUNDUR: FRANK MILLER
NIÐURSTAÐA: Groddalegt ofbeldið sem
minnir einna helst á ýktar barsmíðar úr
Tomma og Jenna, stílfærðar teikningar,
spennandi sögur og skemmtilega útfærðar
steríótýpur gera Sin City bækurnar að þétt-
um reyfurum sem eiga fáar hliðstæður.
[ MYNDASÖGUR ]
UMFJÖLLUN
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »