Fréttablaðið - 29.05.2005, Page 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Kuldaskræfur klippi› hér
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
3
1
5
6
Barnaver›
Ver› frá
5.995 kr.
7.995 kr.
*A›ra lei› me› sköttum.
Börn flurfa a› vera í fylgd
me› fullor›num.
www.icelandexpress.is
Bú›u flig undir brottför á www.icelandexpress.is
Fer›afljónusta Iceland Express, Su›urlandsbraut 24, Sími 5 500 600
fiA‹ BORGAR SIG A‹ BÓKA SNEMMA
Nú er rétti tíminn til a› bóka lægstu fargjöldin í skemmtilegt vetrarfrí
me› Iceland Express. Smelltu flér inná icelandexpress.is, trygg›u flér
lægstu fargjöldin og byrja›u a› hlakka til vetrarins!
VETRARSALAN ER HAFIN
ÓD†RASTA FRAMHALDSFLUGI‹!
Fljúg›u me› Iceland Express til London e›a
Köben. fia›an eru endalausir möguleikar á
ótrúlega ód‡ru flugi til spennandi sta›a um
allan heim, spurningin er bara hvert flig langar
til a› fara.
We have gone away
on winter holiday.
Please help yourself
to some shark and
brennivin.
Greetings from
the Icelandic nation
Dear
foreign
guest
Fíflaleg
barátta
Sumarið komið og veðrið ekki leng-ur bara fallegt út um gluggann
heldur líka gott fyrir utan gluggann.
Sumarið er uppáhaldsárstíminn minn
þó að ég viti að það sé óskynsamlegt
uppáhald hér á norðurslóð. Það er jú
svo stutt. Hér væri skynsamlegast að
halda upp á haustið eða vorið sem
eru jú fyrirferðarmestu árstíðirnar,
þökk sé Golfstraumnum sem jafnar
út fyrir okkur veðurlagið.
SAMT held ég mest upp á sumarið.
Þá finnst mér ilmurinn góður, blómin
falleg, kvakið í fuglunum seiðandi og
endalaus birtan er mikill orkugjafi.
Ég held mest upp á sumarið þótt
óhjákvæmilegur fylgifiskur þess í
mínu lífi sé fullkomlega fíflaleg bar-
átta við fíflana í garðinum mínum,
þessi sakleysislegu blóm sem í raun
eru svo falleg en eru samt hálfgerð
plága vegna þess hvað þau eru lagin
að fjölga sér. Og ég hallast smám
saman að því að ég sé dæmd til ósig-
urs í þessari baráttu.
ÁSTÆÐAN er tún sveitarfélagsins
míns handan götunnar. Í dag iðar
þessi túnskiki af heiðgulu fíflalífi en
á næstu dögum mun gamanið kárna
og fallegu gulu blómin breytast í grá-
ar og ógnandi biðukollur. Í algeng-
ustu vindátt liggur streng af þessu
túni yfir garðinn minn svo ef að lík-
um lætur munu fíflafræin svífa inn
yfir garðinn, tylla sér í grasflöt og
beð, skjóta rótum og verða að nýjum
fíflum sem stoltir munu brosa fram-
an í sumarið þar til ég legg til atlögu
með fíflajárn, stunguspaða eða eitur
að vopni. Ég er því dæmd til að tapa
stríðinu við fíflana. Annað hvort verð
ég að játa mig sigraða og viðurkenna
og njóta tilvist fíflanna eða að ég er
dæmdur þræll þeirra um ókomna tíð,
í sleitulausri útrýmingarherferð.
ANNARS heyrði ég af manni um
daginn sem hafði barist við mosann í
garðinum sínum hátt á þriðja áratug
þegar hann ákvað að leggja niður
vopn og gera mosann að vini sínum.
Ég geri mér vonir um að ná einhvern
tíma þroska þessa manns. Ég hlakka
til þess dags þegar fíflarnir verða
aftur sami vorboði og þeir voru áður
en ég skildi lögmálið um biðukollurn-
ar sem verða að margfalt fleiri fífl-
um. Þangað til mun ég ekki eira fífl-
unum heldur ráðast vopnuð til atlögu
við þá sem nema land í mínum garði.
BAKÞANKAR
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR