Fréttablaðið - 04.06.2005, Qupperneq 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,65 65,97
119,32 119,90
80,59 81,05
10,83 10,90
10,19 10,25
8,82 8,88
0,61 0,61
96,69 97,27
GENGI GJALDMIÐLA 03.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
113,05 +1,49%
4 4. júní 2005 LAUGARDAGUR
Breska ríkisstjórnin skorin úr snörunni:
Atkvæ›agrei›slan sett í salt
EVRÓPUMÁL Fastlega er búist við að
Bretar muni slá því á frest að
ákveða hvenær eða hvort þjóðar-
atkvæðagreiðsla fer fram í landinu
um stjórnarskrársáttmála Evrópu-
sambandsins.
Enda þótt leiðtogar ESB hafi
hvatt þau aðildarríki sem eftir eiga
að staðfesta sáttmálann til að halda
sínu striki ríkir svo mikil óvissa um
stöðu hans eftir atkvæðagreiðslurn-
ar í Frakklandi og Hollandi að lítill
tilgangur virðist vera með því.
Breska dagblaðið The In-
dependent greindi frá því í gær að
allar líkur væru á að Jack Straw,
utanríkisráðherra Bretlands,
myndi draga til baka tillögu um
þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu í
breska þinginu á mánudag vegna
þessarar óvissu. Blaðið hermir að
með þessu sé ekki verið að slá sátt-
málann af heldur vilji stjórnin bíða
með að aðhafast nokkuð þar til
Frakkar og Hollendingar hafi tekið
skjalið í sátt.
Áður hafði því verið staðfastlega
haldið fram að engar breytingar
yrðu gerðar á sáttmálanum en í
fyrradag sagði talsmaður fram-
kvæmdastjórnarinnar að það kæmi
til greina í ljósi úrslitanna í vikunni.
Endurbætur á honum verða því ef
til vill gerðar á leiðtogafundi ESB-
ríkjanna í Brussel síðar í þessum
mánuði. ■
Sjö flúsund n‡ir bílar
N‡ir bílar hafa selst hra›ar fla› sem af er ári en á›ur hefur flekkst hér á landi.
Í maí var slegi› met í n‡skráningu bíla en flá voru n‡skrá›ir meira en 2.000
fólksbílar á einum mánu›i. Meirihluti flessara bíla eru keyptir á lánum.
BÍLASALA Aldrei hafa jafn margir
bílar selst á jafn stuttum tíma hér á
landi og í maímánuði. Þá voru ný-
skráðir 2.012 nýir fólksbílar og þá
hafa selst meira en 7.000 nýir bílar
það sem af er ári. Metið í nýskrán-
ingu bíla á ári síðustu ár eru rúm-
lega fimmtán þúsund bílar árið
1999. Ef fram heldur sem horfir
fellur það met í ár.
Þórður Kristinn Jóhannesson,
aðstoðarframkvæmdastjóri fjár-
mögnunarfyrirtækisins Glitnis,
segir að líklega megi að hluta til
skýra þessa sprengingu með því að
bílaleigurnar séu að endurnýja
flota sinn fyrir sumarið. Hann seg-
ir það ljóst að að minnsta kosti 50
til 60 prósent af þessum nýju bílum
séu fjármagnaðir af fyrirtækjum
sem sérhæfa sig í því, fyrirtækjum
eins og Glitni, Lýsingu og SP fjár-
mögnun.
Þórður segir að markaðurinn
hafi breyst nokkuð frá síðasta ári.
Þá hafi margir viljað nýta sér
rekstrarleigusamninga en nú sé
það að færast mjög í vöxt að ein-
staklingar vilji sjálfir „eiga“ bílinn,
það er kaupa hann á lánum. Hann
telur einnig nær öruggt að þeir fáu
sem staðgreiða bílinn hjá umboði
hafi þá margir tekið bankalán og
fjármagni þannig kaupin á annan
hátt án þess þó að eiga beinlínis
fyrir bílnum.
P. Samúelsson hf. umboðsaðili
Toyota á Íslandi á ansi stóra sneið
af markaðnum ef litið er á tölur frá
Umferðarstofu. Í maímánuði ein-
um seldi umboðið meira en 600
nýja bíla. Haraldur Þór Stefánsson,
sölustjóri P. Samúelsson, segist
aldrei hafa kynnst öðru eins. Hann
segir að bílaleigurnar endurnýi
alltaf flota sína á þessum árstíma
og það sé með svipuðu móti nú og
fyrri ár og því hljóti sprengingin að
skýrast af því að einstaklingar séu
að endurnýja. Hann segir fólk vera
að kaupa allt frá smábílum upp í
jeppa og að P. Samúelsson hafi til
að mynda selt meira en eitt hund-
rað nýja Land Cruiser-jeppa í maí.
Nú á fyrstu þremur dögum júní-
mánaðar hefur P. Samúelsson þeg-
ar selt 54 nýja bíla þannig að júní
gæti slegið maí út ef fram heldur
sem horfir.
oddur@frettabladid.is
Úrslit atkvæðagreiðslna:
Erdogan er
vonsvikinn
ANKARA, AP Recep Tayyip Erdog-
an, forsætisráðherra Tyrklands,
lýsti í viðtali við AP-fréttastof-
una í gær von-
brigðum sínum
með að Frakkar
og Hollendingar
hefðu fellt
s t jórnarskrár -
sáttmála Evrópu-
sambandsins en
sagði að Tyrkir
myndu engu að
síður þýsta á um
að fá aðild að sambandinu.
Úrslitin í vikunni þýða að lík-
urnar á aðild Tyrkja að ESB
hafa dvínað verulega en stór
hluti þeirra sem hafnaði sátt-
málanum er talinn mjög andsnú-
inn henni. Þegar við bætist and-
staða Angelu Merkel, sem gæti
orðið kanslari í Þýskalandi í
haust, við inngöngu Tyrkja er
útlitið fyrir þá dökkt. ■
Táningspiltar dæmdir:
Teknir me›
fíkniefni
DÓMSMÁL Fjórir piltar á aldrinum
18 til 19 ára voru í gær dæmdir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í sex til
tíu mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir þjófnaðarbrot og brot á
fíkniefnalöggjöf.
Lögregla lagði hald á tæp 10
grömm af hassi og um hálft
gramm af amfetamíni í bíl eins
sakborninganna sem og nokkuð
magn af þýfi sem piltarnir höfðu
tekið ófrjálsri hendi hér og þar til
að fjármagna fíkniefnaneyslu.
Pilturinn sem ók bílnum var líka
dæmdur fyrir að aka undir áhrif-
um fíkniefna. Öllum sakborning-
um var einnig gert að greiða verj-
endum sínum málsvarnarlaun.
-oá
DREPNIR MEÐ KÖLDU BLÓÐI Myndirnar af
fjöldamorðunum voru sem blaut tuska í
andlit margra Serba.
Hugarfarsbreyting:
Horfst í augu
vi› vo›averk
BELGRAD, AP Hugarfarsbreyting
kann að vera í vændum hjá stór-
um hluta serbnesku þjóðarinnar
eftir að myndir af fjöldamorði á
bosnískum múslimum í bænum
Srebrenica árið 1995 voru birtar.
Saksóknarar við stríðsglæpa-
dómsstólinn í Haag sýndu mynd-
bandið við réttarhöldin yfir
Slobodan Milosevic, fyrrverandi
forseta Júgóslavíu, á miðvikudag-
inn og um kvöldið var það svo
sýnt í Serbíu.
Margir Serbar hafa ekki viljað
horfast í augu við voðaverkin sem
unnin voru í stríðinu og því hefur
gengið illa að handsama eftirlýsta
stríðsglæpamenn. Í gær létu hins
vegar viðbrögðin við myndunum
ekki á sér standa því þá voru tíu
meintir stríðsglæpamenn hand-
teknir í landinu. ■
KÝPUR
LEIÐTOGAR FUNDA Leiðtogar
Tyrkja og Kýpur-Tyrkja hittust í
Ankara í fyrradag og réðu ráð-
um sínum um hvernig binda
mætti enda á skiptingu Kýpur.
Eynni var skipt á áttunda ára-
tugnum eftir að Tyrkir gerðu
þar innrás en í fyrra felldu
Kýpur-Grikkir tillögu um sam-
einingu. Því er einungis suður-
hluti Kýpur hluti af Evrópusam-
bandinu.
Frábær tómstundablöð
... full af spennandi verkefnum!
RECEP TAYYIP
ERDOGAN
VEÐRIÐ Í DAG
JACK STRAW Breska ríkisstjórnin er því ef-
laust fegin að fá gálgafrest til að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hampað af PC World:
Opera fær
ver›laun
UPPLÝSINGATÆKNI Greint var frá
því í gær að Opera netvafrinn hafi
unnið til sérstakra verðlauna
tölvutímaritsins PC World, annað
árið í röð. Blaðið hampar þar nýj-
ustu útgáfu vafrans, sem kallast
Opera 8 og segir hann bæði aðlað-
andi og haganlega sniðinn þar
sem notagildi fái að njóta sín.
Norska hugbúnaðarfyrirtækið
Opera Software býr til vafrann,
en forstjóri þess og annar stofn-
andi, er Íslendingurinn Jón S. von
Tetzchner. „Það er okkur mikill
heiður að taka við þessari verð-
launaúthlutun,“ sagði hann.
-óká
NÝSKRÁNINGAR NÝRRA
FÓLKSBÍLA Á ÁRINU 2005
Janúar 1.314
Febrúar 1.092
Mars 1.167
Apríl 1.561
Maí 2.012
Samtals á árinu 2005 7.146
Sama tímabil árið 2004 4.610
Heimild/Umferðarstofa
NÝIR BÍLAR Á HAFNARBAKKANUM Algjör sprenging hefur orðið í sölu nýrra bíla það sem af er ári.