Fréttablaðið - 04.06.2005, Qupperneq 8
4. júní 2005 LAUGARDAGUR
20%
afsláttur
Heimilisostur
með 20% afslætti
í næstu verslun!
Nú færðu Heimilisost í sérmerktum
kílóastykkjum á tilboði í næstu verslun!
Sumarhúsaló›ir
seldar á útsöluver›i
Fasteignasali á Su›urlandi segir jör›ina Úlfljótsvatn hafa veri› selda á spott-
prís. Forstjóri Orkuveitunnar segir samanbur›inn ekki raunhæfan og segir
ver›mætaaukninga ver›a til vi› flróun landsins.
FRÍSTUNDABYGGÐ „Ef sumarhúsalóð,
á þessum stað, kostar ekki nema
tvö hundruð og fimmtíu þúsund
krónur er það spottprís,“ segir
Sigurður Sveinsson, löggiltur
fasteignasali hjá fasteignasölunni
Bakki.com á Selfossi. Hann segir
að eins hektara lóðir í Grímsnes-
og Grafningshreppi seljist á um
tvær til tvær og hálfa milljón og
landið á Úlfljótsvatni sé ekki
síðra.
Hin nýja byggð Orkuveitunnar
og Klasa við Úlfljótsvatn á að
rúma að minnsta kosti 600 sumar-
hús en jörðin var lögð fram sem
hlutafé í nýtt félag í eigu aðilanna
fyrir hundrað og fimmtíu milljón-
ir króna. Í hluthafasamkomulagi
milli félaganna kemur fram að
gert sé ráð fyrir því að lóðirnar
sem byggjast eiga, verði um hálf-
ur hektari að stærð. Þannig má
ætla að hver lóð sé að jafnaði um
tvö hundruð og fimmtíu þúsund
króna virði en það getur verið
breytilegt eftir stærð og legu
hverrar lóðar.
Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitunnar, segir að
ákvörðun um verð fyrirtækisins
hafi verið ákveðið eftir mat
Magnúsar Leópoldssonar fast-
eignasala. „Það var miðað við það
verð sem hefur verið í gangi
þarna undanfarið.“ Magnús segir
að verðmætaaukningin á landinu
verði til þegar landið verði þróað
og það skipulagt með Klasa sem
sé fyrirtæki sem búi yfir þekk-
ingu. „Við hefðum auðvitað getað
staðið í því sjálfir að skipuleggja
og selja landið en teljum réttara
að leita til aðila sem hafa sérþekk-
ingu á þessu sviði,“ segir Guð-
mundur.
Hann gefur lítið fyrir þá aðferð
að bera saman verð sumarhúsa-
lóða með þessum hætti. „Við hefð-
um sjálfir getað sett nokkur hund-
ruð milljónir í það að búa til vegi,
byggja bryggju og svo framvegis
og hver lóð hefði þá orðið meira
virði. Við höfum ákveðið að gera
það ekki og ætlum að láta aðra í
þessa vinnu og þannig búum við
til verðmæti en tökum ekki einir
áhættuna að því þar sem við höf-
um fagaðila með okkur í þessu
verkefni,“ segir Guðmundur.
hjalmar@frettabladid.is
Sjúkrasjóður Eflingar um heyrnartækjakaupin:
Átti ekki rétt á styrkveitingu
FÉLAGSMÁL „Staða þessa einstaklings
gagnvart sjúkrasjóði Eflingar var
sú, að hann var fyrir nokkru farinn
af vinnumarkaði og því höfðu vinnu-
veitendur ekki greitt af honum ið-
gjöld til sjóðsins. Þess vegna hafði
hann ekki rétt á styrkveitingu til
kaupa á heyrnartækjum.“
Þetta segir Guðrún Kr. Óladóttir
forstöðumaður sjúkrasjóðs Eflingar.
Kristján Vilmundarson, 74 ára
ellilífeyrisþegi, greindi frá því í
Fréttablaðinu í gær, að honum hefði
verið hafnað um styrk úr sjóðnum
til að kaupa sér nýtt heyrnartæki.
Honum þótti þetta ósanngjarnt, þar
sem hann hefði greitt í félagið alla
tíð, eins og hann orðaði það.
„Þarna gætir misskilnings,“
sagði Guðrún. „Iðgjöld til sjúkra-
sjóðsins og félagsgjöld til Eflingar
eru tveir aðskildir hlutir. Félags-
gjöldin standa því ekki undir styrkj-
um sjóðsins, heldur undir starfi fé-
lagsins í þágu félagsmanna. Við
erum með þónokkurn hóp af fólki
hér, eldra en þessi maður, sem fær
styrki úr sjóðnum. Það fólk er allt í
vinnu og því greidd fyrir það ið-
gjöld.“
-jss
HJÁLPARTÆKI Margir
missa heyrn á efri árum
og þurfa þá nauðsynlega
á heyrnartæki að halda.
GUÐMUNDUR ÞÓRODDSSON Segir jörðina Úlfljótsvatn hafa vera lagða inn sem hlutafé á
raunhæfu verði.