Fréttablaðið - 04.06.2005, Side 10
4. júní 2005 LAUGARDAGUR
Könnun meðal fólks á vinnumarkaði:
Margir flekkja líti› til réttar síns
RÉTTINDI Rúmur þriðjungur starf-
andi Íslendinga veit ekki í hvaða
lífeyrissjóð þeir greiða að sögn
Guðjónu Bjarkar Sigurðardóttur,
útskriftarnema við Viðskiptahá-
skólann á Bifröst. Guðjóna gerði á
vormánuðum rannsókn meðal
tæplega þrjú hundruð starfs-
manna á vinnumarkaði og kannaði
hversu vel þeir þekkja ýmis rétt-
indi sín.
„Þekking ungmenna reyndist
almennt langminnst,“ segir Guð-
jóna en í ljós kom að nær helming-
ur starfsmanna á aldrinum 16-25
ára hafði ekki hugmynd um í
hvaða stéttarfélag þeir greiða.
Þessi aldurshópur kom einnig
verst út þegar fólk var spurt
hvort brotið hefði verið á rétti
þeirra, en 40 prósent ungmenna
töldu svo vera. „Þeim sem helst er
brotið á virðist síst kunnugt um
réttindi sín,“ segir Guðjóna.
„Þessi niðurstaða er áhyggju-
efni,“ segir Grétar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusambands Íslands.
Grétar bendir þó á að sambærileg
rannsókn hafi að sínu viti ekki
verið gerð áður. „Ég efast um að
niðurstöðurnar hefðu orðið öðru-
vísi fyrir tíu eða tuttugu árum, en
við þurfum að gera meira af því
að upplýsa okkar fólk.“
- ht
Skinnai›na›ur
stefnir í flrot
Skinnai›na›ur á Akureyri hefur sagt upp um 40 manns og fyrirtæki› rær lífró›ur til
a› halda starfseminni gangandi. Fátt bendir til a› félagi› nái landi og útlit fyrir a›
skinnai›na›ur sem atvinnugrein leggist af á Akureyri me› haustinu.
IÐNAÐUR Nær öllum starfsmönnum
Skinnaiðnaðar á Akureyri verður
sagt upp um næstu mánaðamót en
flestir þeirra eru með þriggja
mánaða uppsagnarfrest. Fimm
starfsmenn munu starfa áfram
við hrávinnslu skinna á Sauðár-
króki og hugsanlega einn eða
tveir starfsmenn á skrifstofu fé-
lagsins. Ormarr Örlygsson, fram-
kvæmdastjóri Skinnaiðnaðar, seg-
ir fátt í spilunum sem komið geti í
veg fyrir að starfsemi félagsins
leggist að mestu leyti niður.
„Reksturinn hefur verið mjög erf-
iður að undanförnu vegna sölu-
tregðu og gengismála. Þar að auki
höfum við þurft að liggja lengi
með hráefnisbirgðir en því fylgir
hár fjármagnskostnaður. Efna-
hagsástandið í Evrópu hefur vald-
ið því að færri hafa áhuga á þeim
hágæða kuldaflíkum sem fram-
leiddar eru úr afurðum okkar og
sumir segja að sölutregðuna megi
einnig rekja til hlýnandi lofts-
lags,“ segir Ormarr.
Skinnaiðnaður á Akureyri ehf.
er í 54 prósenta eigu Staka en það
er félag sem starfsmenn Skinna-
iðnaðar eiga. Aðrir eigendur eru
Landsbankinn og KEA. „Félagið
var stofnað árið 2002 á grunni al-
menningshlutafélags sem Lands-
bankinn eignaðist. Reksturinn
gekk mjög vel á fyrsta starfsári,
heldur verr árið 2003 en í fyrra,
og það sem af er ári, hefur rekst-
urinn verið mjög dapur,“ segir
Ormarr.
Til að bregðast við erfiðleikum
í rekstrinum í fyrra var gripið til
uppsagna. „Við sögðum þá upp um
30 manns og fækkuðum niður í
um 40 en það dugði ekki til. Við
erum að gera allt sem hægt er til
að bjarga starfseminni og endan-
leg niðurstaða ætti að liggja fyrir
innan mánaðar en útlitið er ekki
gott,“ segir Ormarr.
Samband íslenskra samvinnu-
félaga (SÍS) byrjaði með skinna-
iðnað á Akureyri árið 1923 þegar
Gæruverksmiðja SÍS í Listagilinu
á Akureyri hóf starfsemi. Nú er
útlit fyrir að verkun skinna legg-
ist af á Akureyri en skinnaiðnað-
urinn er einu leifarnar af iðnaðar-
starfsemi Sambandsins sem eftir
eru á Akureyri. kk@frettabladid.is
Framhaldsskólanemar:
Kolféllu í fjármálalæsi
FJÁRMÁL Framhaldsskólanemar
fengu falleinkunn í fjármálalæsi
í könnun sem Breki Karlsson,
nemandi í Háskólanum í Reykja-
vík, gerði í vetur. Breki segir að
niðurstaðan hafi verið skelfileg.
Könnunin hafi staðfest grun-
semdir sínar en sér hafi komið
óvart hve mikinn yfirdrátt nem-
arnir hafa.
Um 17,5 prósent framhalds-
skólanema hafa yfirdrátt í bönk-
um og er yfirdrátturinn 146 þús-
und krónur að meðaltali. Hæsti
yfirdrátturinn nam þó 600 þús-
undum króna en algengastur var
yfirdráttur að fjárhæð 50 þúsund
krónur.
Tæp 24 prósent nemanna eru
með mánaðarlegar afborganir af
lánum og 13 prósent hafa lent í
vanskilum en 72,4 prósent hafa
aldrei reynt að fylla út skatt-
framtal. 63 prósent þeirra vita
ekki hvað það þýðir að taka
gengistryggt bílalán.
Breki sendi 40 spurninga
krossapróf til tæplega 70 fram-
haldsskólanema. „Meðaleinkunn
var 4,6 sem er fall. Skólakerfið
virðist ekki gera ráð fyrir að
þurfa að mennta krakka í þess-
um efnum,“ segir hann.
Sjálfur fékk hann 9,5 sem var
hæsta einkunnin í vor.
-ghs
GAF FALLEINKUNN Í FJÁRMÁLALÆSI Breki
Karlsson, nýútskrifaður nemandi í við-
skiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík,
kannaði fjármálalæsi framhaldsskólanema
og gaf þeim falleinkunn fyrir kunnáttuna.
Sjálfur fékk hann 9,5 eða hæstu einkunn
sem gefin var frá Háskólanum í Reykjavík
við útskriftina í vor.
GUÐJÓNA BJÖRK SIGURÐARDÓTTIR Rannsakaði hversu vel íslenskir starfsmenn þekkja
réttindi sín á vinnumarkaði og komst að því að mest er brotið á yngsta aldurshópnum
sem jafnframt þekkir síst réttindi sín.
ORMARR ÖRLYGSSON Megnið af framleiðslu Skinnaiðnaðar á Akureyri, 98 prósent, hefur verið flutt til landa Evrópu, Asíu og Ameríku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K