Fréttablaðið - 04.06.2005, Qupperneq 18
Hvert fer spilið næst?
Það vakti athygli í gær þegar Samband ungra sjálf-
stæðismanna afhenti Alfreði Þorsteinssyni, stjórn-
arformanni Orkuveitu Reykjavíkur, eintak af spilinu
Monopoly – sem einnig er þekkt undir nafninu
Matador. Með afhendingunni vildu ungir sjálfstæð-
ismenn vekja athygli á umsvifum Orkuveitunnar á
hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins – sumum þeirra
sem ekkert tengjast rekstri orkuveitna. Alfreð lét
ekki ungu sjálfstæðismennina slá sig út af laginu
og sendi þeim spilið aftur og bað þá um að koma
því til Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Ekki skal fullyrt um hvort ungir
sjálfstæðismenn verði við tilmælum Al-
freðs og sendi formanni sínum spilið.
Gárungarnir telja þó víst að viðbrögðin
yrðu svipuð þar á bæ – og Davíð myndi
umsvifalaust senda spilið til baka með
þeim skilaboðum að koma ætti því rak-
leiðis til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra Baugs.
Óskabarnið til útlanda?
Kaup Magnúsar Þorsteinssonar á Eimskipi hafa
vakið mikla athygli og miklar vangaveltur uppi um
hver verði örlög skipafélagsins, nú þegar Björgólfs-
feðgar hafa sleppt takinu á því. Eimskip var í
marga áratugi hornsteinn í íslensku atvinnulífi en
hefur á undanförnum árum breyst í að vera undir-
deild í fjárfestingarfélagi og verður nú undirdeild í
flugfélagi. Mörgum finnst þetta áhugaverð ör-
lög og velta fyrir sér hvort þrautagöngu fyrir-
tækisins sé ekki enn lokið. Talið er víst að
Björgólfsfeðgar hafi skoðað mjög alvarlega
þann kost að selja Eimskip úr landi fyrir
nokkrum misserum. Það hefði ekki verið lík-
legt til vinsælda að selja „óskabarn þjóðarinn-
ar“ erlendum kaupahéðnum. Það er þó líklegt
að Magnús Þorsteinsson ætti auðveldara með
að gera slíkan samning heldur en hinir
virðulegu Björgólfsfeðgar og því ekkert hægt
að útiloka um hvar Eimskip endar.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.081
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 247
Velta: 4.036 milljónir
+0,51%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Íslandsbanki varð aðili að
kauphöllinni í Osló samkvæmt
frétt á vefsetri norska blaðsins
Dagens Næringsliv. Íslandsbanki
hefur því heimild til að eiga við-
skipti með hlutabréf í kauphöll-
inni í Osló líkt og í Kauphöll Ís-
lands
Lyf og heilsa hafa keypt rekst-
ur verslunar Össurar í Orkuhús-
inu við Suðurlandsbraut og hefur
Össur því dregið sig út úr öllum
rekstri á innanlandsmarkaði sem
ekki tengist kjarnastarfsemi fé-
lagsins.
Þórshafnarhreppur hagnaðist
um þrjár milljónir á síðasta ári.
Vinnslustöðin hefur keypt 43
prósenta hlut í útgerðarfélaginu
Huginn ehf. á 605 milljónir króna.
18 4. júní 2005 LAUGARDAGUR
Aðilar tengdir Straumi
vilja kaupa fjögurra pró-
senta hlut Steinunnar
Jónsdóttur í Íslands-
banka. Þetta gæti gjör-
breytt valdahlutföllum í
bankanum. Átökin um
bankann hafa harðnað og
stjórnendur Íslandsbanka
eru sakaðir um óeðlilega
varnarbaráttu.
Viðræður standa yfir um sölu á
fjögurra prósenta hlut Steinunnar
Jónsdóttur í Íslandsbanka. Báðar
fylkingar innan Íslandsbanka eru
líklegar til að vilja kaupa hlutinn
enda getur eignarhluturinn skipt
miklu um valdahlutföllin innan
bankans. Í gærkvöld hafði sala á
hlutnum ekki átt sér stað og óvíst
hvort af henni yrði.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verða það hvorki Straumur
né Landsbankinn sem kaupa bréfin
beint þar sem hendur Straums eru
bundnar vegna skilyrða Fjármála-
eftirlitsins. Líklegt er að Straumur
reyni að komast framhjá þessu með
því að selja aðila tengdum sér hlut
Steinunnar ef salan gengur í gegn
og sjá fram á að geta nýtt sér hlut-
inn á hluthafafundi ef til átaka kem-
ur. Ljóst er að Fjármálaeftirlitið
mun fylgjast vel með því hvort slík-
ar trakteringar séu viðhafðar enda
ber Straumi að gefa upplýsingar
um öll þau atkvæði sem bankinn
hefur yfirráð yfir á hluthafafundi.
Þó er talið víst að Straumur safni nú
liði og sé bakhjarl kaupenda á bréf-
um með það fyrir augum að nýta
sér stöðuna síðar.
Tvær fylkingar hafa áttst við
innan bankans. Annars vegar hópur
í kringum Bjarna Ármannsson for-
stjóra og Einar Sveinsson stjórnar-
formann en hins vegar hópur sem
tengist Straumi og Landsbankan-
um. Nýlega keyptu Bjarni, Einar og
fleiri stjórnendur bankans hlut
Jóns Helga Guðmundssonar í Byko,
föður Steinunnar. Þau viðskipti
höfðu ekki áhrif á valdahlutföllin
þar sem bæði Jón Helgi og Steinunn
hafa staðið með stjórnendum bank-
ans. Ef aðilum tengdum Straumi
tekst að kaupa hlut Steinunnar
getur það breytt jafnvæginu á þann
veg að Straumsmenn nái að bæta
við manni í stjórn bankans.
Ákveðin ró hafði skapast innan
Íslandsbanka eftir töluverð átök
undanfarin ár. Þegar stjórn bank-
ans ákvað að selja Karli Werners-
syni Sjóvá Almennar í apríl ýfðust
gamlar deilur í hluthafahópnum
upp þar sem Straumsmenn töldu
óeðlilega að sölunni staðið. Harð-
orðar yfirlýsingar í kjölfar þeirrar
sölu bentu til þess að stríðsástand
ríki milli Straums og Íslandsbanka.
Greinilegt er að erjurnar milli
fylkinga í bankanum hafa farið stig-
vaxandi. Gagnrýnisraddir eru á
lofti um kaup Bjarna Ármannsson-
ar og annarra stjórnenda á hlut
Jóns Helga og sterklega látið að því
liggja að það sé Íslandsbanki sem
fjármagni kaupin og að það sé ólög-
legt eða að minnsta kosti óeðlilegt.
Aðspurður um þessar ásakanir
segir Einar Sveinsson: „Við stund-
um ekki ólögmæt viðskipti.“
dogg@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 41,90 +3,20% ... Atorka 5,96 -
0,17% ... Bakkavör 35,40 -0,28% ... Burðarás 14,70 +0,34% ... FL Group
14,45 – ... Flaga 4,95 – ... Íslandsbanki 13,50 – ... KB banki 535,00
+0,75% ... Kögun 60,70 – ... Landsbankinn 16,50 – ... Marel 56,80 – ...
Og fjarskipti 4,00 -0,50% ... Samherji 12,10 – ... Straumur 11,80 – ...
Össur 76,50 -0,65%
Safnað í lið fyrir
Íslandsbankaslag
Actavis 3,20%
HB Grandi 1,19%
Tryggingamiðst. 0,96%
Össur -0,65%
Og fjarskipti -0,50%
Bakkavör -0,28%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Hús og híbýli - Þinn lífstíll
N R . 1 9 5 • 6 . T B L • J Ú N Í 2 0 0 5 • V E R Ð 8 9 9 K R .
GARÐAR 2005
50 - gamaldags gistiheimiliGamli bærinn á Berunesi
Garðar í
borg og sveit
síðna
umfjöllun
garðhúsgögn sumarsins
BRÚÐKAUPIÐ
Klassískar
brúðargjafi r
utanhúss
Málningin
Actavis Group hefur sett tvö ný
samheitalyf á markað í níu Evrópu-
löndum í gegnum dótturfyrirtæki
sitt, Medis. Í fréttatilkynningu frá
Actavis segir að viðskiptavinir fé-
lagsins hafi getað hafið sölu lyfj-
anna um leið og einkaleyfin féllu úr
gildi. Um er að ræða taugalyfið
Lamotrigine í tveimur mismunandi
formum. Um 40 milljón töflur eru í
upphafssendingunni en þó er ekki
búist við að lyfið verði í hópi tíu
söluhæstu lyfja samstæðunnar.
- dh
ACTAVIS SETTI TVÖ NÝ LYF Á MARK-
AÐ Í NÍU LÖNDUM Upphafssendingin
var 40 milljón töflur.
Lyf á marka› í níu löndum
Sala hófst um leið og einkaleyfin féllu úr gildi.
HART ER BARIST UM ÍSLANDSBANKA Tvær fylkingar takast á um áhrif í bankanum
og reyna að tryggja stöðu sína. Nú er bitist um hlut Steinunar Jónsdóttur.
Burðarás hefur keypt um 6,6
prósenta hlut í norska olíu-
leitarfyrirtækinu Ex-
ploration Resources, sem er
skrásett í norsku kauphölll-
inni. Nær sextán prósent
hlutafjár skiptu um hendur á
markaði í gær. Félagið, sem
hagnaðist um tæpar 62 millj-
ónir króna á fyrsta ársfjórð-
ungi, varð til í mars þegar
Rieber Shipping setti olíu-
leitarhlutann inn í sérstakt
félag.
Burðarás stefnir að því að
þrír fjórðu hlutar eigna fé-
lagsins verði erlendis.
- eþa
Bur›arás fjárfestir í Noregi
EXPLORATION RESOURCES
– HELSTU STÆRÐIR
Markaðsvirði: Um 10 milljarðar króna
Eigið fé: Um 3,9 milljarðar króna
Hækkun frá skráningu: 18,5 prósent.