Fréttablaðið - 04.06.2005, Qupperneq 24
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra heldur upp á fertugsafmælið
sitt með Walt Disney, Mikka Mús
og félögum. Árni er staddur ásamt
fjölskyldu sinni, eiginkonu og
tveimur yngri börnum sínum, í
Flórída þar sem þau ætla að dvelja
í tíu daga.
Þau ætla að halda upp á afmæl-
ið með því að verja deginum í
skemmtigarði.
Árni telur þetta ekki vera mjög
stór tímamót í lífi sínu. „Það er
mesti munurinn að vera ekki leng-
ur rúmlega þrítugur,“ segir Árni
kíminn og tekur þessu eins og
hverju öðru hundsbiti. Hann telur
málsháttinn Allt er fertugum fært
í fullu gildi.
Árni segist ekki vera stórkost-
legur afmælismaður og ætlar ekki
að halda neina stórveislu þegar
hann kemur heim. „Ætli það verði
ekki þannig að maður segist vera
að heiman og blóm og kransar af-
þakkaðir,“ segir félagsmálaráð-
herran og hlær.
„Það er alltaf gaman að fá eitt-
hvað nýtt, hins vegar er það vanda-
mál að mann vantar ekki neitt og
það er snúin staða,“ segir Árni sem
segir að líklega hafi hann fengið
bestu gjafirnar undir sex ára aldri.
Í ár fékk Árni forláta veiðistöng
en hann hefur mjög gaman að því
að veiða silung. Hann fer nokkra
daga á sumrin til veiða í vötnum í
Skaftafellssýslu þangað sem hann
á rætur að rekja. Þegar hann er
spurður hvað sé svona skemmti-
legt við veiði svarar hann því til að
„þeir sem ekki hafi upplifað það
skilji það ekki og því þýði ekki að
útskýra það.“
Árni hefur lítið séð af sólinni í
Flórída, hins vegar sé hlýtt og
notalegt og kannski eins gott að
ekki sé of mikil sól þegar sprangað
er um á stuttbuxum og ermalaus-
um bol í skemmtigarði allan dag-
inn. ■
24 4. júní 2005 LAUGARDAGUR
GEORG III (1738-1820)
fæddist á þessum degi.
TÍMAMÓT: ÁRNI MAGNÚSSON FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA FERTUGUR
Heldur upp á afmælið
með Disney og félögum
„Svikari er hver sá sem er mér ósammála.“
Ævi Georgs III var harmsaga mikil; hann varð geðveikur á þrítugs-
aldri og missti smám saman öll tök á tilverunni.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Kristján Belló Gíslason, fyrrverandi
leigubílstjóri, Vogatungu 101, Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnu-
hlíð að kvöldi þriðjudagsins 31. maí.
Sigurður Þorgrímsson, Sóltúni 2, áður
Langholtsvegi 150, Reykjavík, lést á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudag-
inn 18. maí. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Sigurður Ingi Sigurðsson, áður til
heimilis að Víðivöllum 4, Selfossi, lést á
Hrafnistu í Reykjavík aðfaranótt 1. júní.
Á þessum degi árið 1989 fjölmenntu kínverskir
hermenn á Torg hins himneska friðar í Peking og
drápu hundruð stúdenta við mótmæli og þúsundir
til viðbótar voru handteknar.
Sjö vikum áður hófu kínverskir stúdentar mótmæli
á Torgi hins himneska friðar og er talið að allt að
því milljón manns hafi safnast á torginu þegar
mest lét. Mótmælendur kröfðust afsagnar leiðtoga
Kommúnistaflokksins og lýðræðislegra umbóta í
stjórnkerfi landsins.
Stjórnvöld gerðu nokkrar misheppnaðar tilraunir til
að reka fjöldann á braut áður en herinn lét til skar-
ar skríða. Þó að margir hafi vissulega átt von á að
það myndi slá í brýnu milli mótmælenda og hers-
ins kom ofsafenga árásin flestum í opna skjöldu.
Mikill glundroði skapaðist þegar tugþúsundir
manna reyndu að flýja undan hermönnunum.
Sumir börðust á móti og grýttu hermennina og
kveiktu í bifreiðum þeirra og skriðdrekum. Erlendir
erindrekar á staðnum töldu að að minnsta kosti
300 manns hefðu látið lífið í átökunum og allt að
tíu þúsund manns hefðu verið handteknir. Senni-
lega verður aldrei endanlega ljóst hversu margir
létu lífið þennan dag.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1070 Roquefort-ostur er búinn til
í fyrsta skipti í helli skammt
frá Roquefort í Frakklandi.
1913 Súfragettan Emily Davinson
kastar sér fyrir veðhlaupa-
hross konungs og lætur líf-
ið.
1927 Johnny Weissmüller setur
met í hundrað og tvö
hundruð metra sundi.
1944 Hornsteinn lagður að Sjó-
mannaskólanum.
1956 Leyniræða Krútsjoffs er
gerð opinber.
1959 Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra, er stofnuð.
1965 Rolling Stones gefa út lag-
ið „Satisfaction“.
1977 Hornsteinn er lagður að
Hrafnistu, dvalarheimili
aldraðra sjómanna.
Fjöldamor› á Torgi hins himneska fri›ar
JAR‹ARFARIR
13:30 Guðný Bjarnadóttir, frá Gerðis-
stekk, Norðfirði, Lóurima 6,
Selfossi, verður jarðsungin frá
Selfosskirkju.
14.00 Sigurður Matthías Benedikts-
son, frá Kirkjubóli, Lækjartúni 21,
Hólmavík, verður jarðsunginn frá
Hólmavíkurkirkju.
14.00 Anna Fríða Stefánsdóttir, Grund,
Vestmannaeyjum, verður jarð-
sungin frá Vestmannaeyjakirkju.
14.00 Þórarinn Pálsson, bóndi, Selja-
landi, Fljótshverfi, verður jarð-
sunginn frá Kálfafellskirkju.
14:00 Minna Elísa Bang, Aðalgötu 19
(gamla apótekinu), Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Sauðár-
krókskirkju.
AFMÆLI
Páll Skúlason háskólarekt-
or er 60 ára.
Þórður Ægir Óskarsson, sendiherra í Jap-
an, er 51 árs.
Stefán Sturla Sigurjónsson leikari er 46
ára.
Erla Rut Harðardóttir leik-
kona er 44 ára.
Sesselja Kristjánsdóttir söngkona er 35
ára.
Lárus Orri Sigurðsson knattspyrnumaður
er 32 ára.
Róbert I. Douglas leikstjóri
er 32 ára.
Elskuleg systir okkar og mágkona,
Jófríður Ólafsdóttir
Staðarhrauni 3, Grindavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 2. júní. Jarðarförin auglýst síðar.
Jón Ólafsson Agnes Jónsdóttir
Pálína Ólafsdóttir Ísleifur Harðarson
Gísli Örn Ólafsson Njála Vídalín
Magnús Ólafsson Ragnheiður Arngrímsdóttir
60 ára
Sæmundur Kristjánsson
Álfhólsvegi 43a, Kópavogi, verður 60 ára á morgun 4. júní.
Tek á móti á gestum á Hótel Loftleiðum laugardaginn
4. júní milli 15-18.
Áttræðisafmæli!
Lilja Sveinsdóttir,
frá Neðri-Hundadal,
varð áttræð þann 1. júní síðastliðinn og í tilefni
þess langar hana að bjóða ættingjum og vinum
í afmæliskaffi í Félagsheimilinu Árbliki í Dala-
sýslu sunnudaginn 5. júní milli kl. 15 og 18.
FYRSTA SÝNING VÍKURINNAR:
Togarar í
100 ár
Fyrsta sýning hins nýja safns,
Víkurinnar – Sjóminjasafnsins í
Reykjavík, verður opnuð með
formlegum hætti í dag klukkan
hálf ellefu. Hr. Ólafur Ragnar
Grímsson forseti Íslands mun
opna sýninguna ásamt Gísla
Jónssyni sjómanni sem starfaði
lengi á skipum Bæjarútgerðar-
innar og vann í frystihúsinu sem
hýsir sjóminjasafnið nú.
Þessi fyrsta sýning safnsins er
sett upp í tilefni af því að 100 ár
eru liðin frá því að Íslendingar
hófu útgerð togara og nefnist hún
Togarar í 100 ár. Sambærileg
sýning er varðar sögu togaraút-
gerðar hefur ekki verið sett upp
hér á landi áður.
Sýningin verður opin almenn-
ingi frá klukkan tvö til fimm í
dag og á morgun og er aðgangur
ókeypis þessa helgi. Þar sem sýn-
ingin er hluti af hátíð hafsins sem
haldin er þessa helgi verður boð-
ið upp á ókeypis ferðir frá Mið-
bakkanum og upp í safn.
Sýningin er á annarri hæð
hússins og verður tæknin nýtt til
að gestir geti glöggvað sig á sög-
unni. Þá getur fólk fylgst með
ferðum skipa inn og út úr höfn-
inni með ratsjá sem komið hefur
verið fyrir uppá þaki. ■
COOT Teikning af Coot, fyrsta togara Ís-
lendinga.
ÁRNI MAGNÚSSON Er staddur í Flórída með fjölskyldu sinni og ver deginum í skemmtigarði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
SÓLHLÍFAR Mannfjöldi í Bagdad skýlir sér
fyrir sólinni meðan á bænahaldi stendur.