Fréttablaðið - 04.06.2005, Page 50
4. júní 2005 LAUGARDAGUR
> Við mælum með ...
... að fólk fjölmenni í
Laugardalinn í dag og taki þátt í
að styðja íslenska knatt-
spyrnulandsliðið til sigurs
gegn Ungverjum. Spáin er
góð, miðaverð í sögulegu
lágmarki og því engin
ástæða til annars en að
skella sér á völlinn og
hafa gaman af. Áfram
Ísland!
Heyrst hefur ...
... að úrvalsdeildarfélag West Ham sé á
eftir Íslendingunum Heiðari Helgusyni og
Ívari Ingimarssyni, sem báðir gerðu
frábæra hluti í ensku 1. deildinni í vetur.
West Ham er talið ætla að bjóða eina og
hálfa milljón punda í Heiðar, sem skoraði
20 mörk fyrir Watford. Ívar fer á eitthvað
minna.
sport@frettabladid.is
34
> Við hrósum ...
.... Snorra Steini Guðjónssyni fyrir
að sýna einstakan karakter þegar
á móti blés. Í stað
þess að leggjast niður
og væla reif hann sig upp
og spilaði frábæran handbolta.
Hann uppskar landsliðssæti á ný,
sem og sæti í liði ársins í þýsku
úrvalsdeildinni, sem er
einstakur árangur.
Íslenska 21 árs landsli›i› olli miklum vonbrgi›um í 0-1 tapi fyrir Ungverjum á Víkingsvellinum í gær.
Vorum arfaslakir í fyrri hálfleik
FÓTBOLTI Íslenska 21 árs-liðið tapaði
0-1 fyrir Ungverjum í undan-
keppni Evrópumótsins í gær og
olli leikur liðsins miklum von-
brigðum. Ungverjar skoruðu
sigurmarkið á 13. mínútu og hélst
á þessu eina marki út leikinn og
þar með eru allir möguleikar ís-
lenska liðsins úr sögunni.
Eftir frábæra frammistöðu í
heimaleikjum sínum síðasta haust
var allt annað uppi á teningnum á
Víkingsvellinum í gær, íslenska
liðið virkaði stemningslaust og
spilið gekk mjög illa enda allir
leikmenn liðsins óöruggir með
boltann og lítið sjálfstraust var í
öllum aðgerðum. Ungverjar gáfu
eftir svæðin í kjölfar marksins og
íslenska liðið hafði völdin á vellin-
um í seinni hálfleik, sem var betri
en sá fyrri en langt frá því að vera
ásættanlegur. Ungverjar fögnuðu
vel í leikslok enda eiga þeir enn
möguleika á að komast áfram en
vonandi lagði íslenska liðið ekki
línurnar fyrir A-landsliðið, sem
mætti og horfði á leikinn en þarf
að gefa miklu meira af sér í dag ef
Ísland ætlar sér einhver stig út úr
þessari heimsókn Ungverja.
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari ís-
lenska liðsins, gat ekki verið sáttur
með leikinn. „Við vorum ekki að ná
eins og í fyrra að spila okkar besta
leik. Við vorum alveg arfaslakir í
fyrri hálfleik og strákarnir voru
alls ekki nægilega stemmdir. Við
vorum langt frá okkar mönnum og
þeir hirtu alla lausa bolta. Seinni
hálfleikurinn var hins vegar virki-
lega góður og þá var miklu meiri
kraftur í okkar leik og allt annað
að sjá til liðsins. Með heppni hefð-
um við getað jafnað leikinn. Þeir
voru ekki að skapa sér nein færi og
við vorum að setja pressu á þá,“
sagði Eyjólfur en úrslitin hljóta að
vera svekkjandi því ekki er þetta
ungverska lið sterkt.
Eyjólfur segir þessa leiki vera
mikinn skóla. „Þetta eru strákar
sem eru að læra og taka framför-
um og þeir eiga eftir að læra af
þessum leik að það gengur ekki að
mæta til leiks á 80% hraða. Menn
verða að mæta af 100% krafti ef
árangur á að nást.“
ooj@frettabladid.is
Handboltamaðurinn Snorri Steinn
Guðjónsson átti frábæran seinni hluta
á nýliðnu tímabili með þýska liðinu
Grosswallstadt, sem sést best á því að
hann hefur verið valinn í lið ársins í
þýsku deildinni en það er hið virta
tímarit Handball Woche sem sér um
valið á liðinu. Þrátt fyrir hvern stórleik-
inn á fætur öðrum eftir áramót ákvað
nýr þjálfari Grosswallstadt að láta
Snorra fara og taldi sig ekki hafa not
fyrir hann og hann er nú genginn til
liðs við Minden.
„Þetta er virkilega gaman og mér er
sýndur mikill heiður með þessu. Þetta
gefur mér kannski ekkert mikið meira
en það en samt er ekki leiðinlegt að fá
svona viðurkenningu fyrir góða
frammistöðu.“ sagði Snorri Steinn.
„Kannski ýtir þetta eitt-
hvað við þeim hjá
Grosswallstadt en ég lít
samt ekki þannig á
það. Það besta var að
ég stóð mig vel eftir ára-
mót og gat kvatt liðið á
þann hátt eftir erfiða
tími fyrir jól. Mér leið
vel hjá liðinu og eignað-
ist góða vini, það voru
margir sem reyndust mér vel.
Þjálfarinn sem vildi ekki hafa
mig hugsar sig kannski tvisvar
um núna.“
Auk Snorra eru í liði ársins Jan
Holpert, Lars Christiansen, Kyung-
Shin Yoon, Johan Pettersson,
Marcus Ahlm og Björn Navar-
in. „Það er óneitanlega gaman að
sjá nafnið sitt kringum þessa menn
og það eykur sjálfstraustið og gefur
mér til kynna að ég er á réttri leið.
Það vantar náttúrlega ekki úrval-
ið af góðum miðjumönnum
og bara leikmönnum al-
mennt í þessari deild og
fyrir mig, ungan mann
á öðru ári í deildinni,
kemur þetta nokkuð
á óvart. Þetta eykur
kannski pressuna á
mig frá stuðningsmönnum
Minden en ég er ákveðinn
í að standa mig enn
betur á næsta tímabil.“
sagði Snorri.
HANDKNATTLEIKSKAPPINN SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON: FRÁBÆR ENDIR Á TÍMABILINU
Í li›i ársins í fl‡sku úrvalsdeildinni
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
1 2 3 4 5 6 7
Laugardagur
JÚNÍ
■ ■ LEIKIR
18.05 Ísland og Ungverjaland
mætast á Laugardalsvelli í
undankeppni HM.
18.05 HK og Völsungur mætast á
Kópavogsvelli í 1. deild karla í
knattspyrnu.
■ ■ SJÓNVARP
14.50 Heimsliðið – Ciudad Real á
RÚV.
17.55 Ísland-Ungverjaland á RÚV.
Bein útsending frá undankeppni HM.
19.05 Ísland-Ungverjaland á RÚV.
Bein útsending frá undankeppni HM.
22.00 Hnefaleikar á Sýn. Viðureign
Tszyu og Hatton í beinni útsendingu.
EMIL SÁST EKKI Emil Hallfreðsson fann sig
ekki í gær og var einn margra leikmanna
liðsins sem spiluðu langt undir getu.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.