Fréttablaðið - 04.06.2005, Síða 51
LAUGARDAGUR 4. júní 2005 35
N‡ andlit í byrjunarli›i
Íslands gegn Ungverjum
Landsli›sfljálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson stilla upp nokku›
sókndjörfu li›i gegn Ungverjum í dag og eru flrír leikmenn me› mjög litla
reynslu í byrjunarli›i íslenska li›sins.
FÓTBOLTI Gunnar Heiðar Þorvalds-
son og Stefán Gíslason munu í
fyrsta sinn verða í byrjunarliði
landsliðsins þegar liðið tekur á
móti Ungverjalandi í undan-
keppni HM á Laugardalsvelli í
dag. Gunnar Heiðar mun leysa af
Heiðar Helguson sem fremsti
maður, en Heiðar er í leikbanni,
og Stefán tekur stöðu Jóhannesar
Karls Guðjónssonar sem djúpur
miðjumaður en Jóhannes ákvað
fyrir skemmstu að gefa ekki
lengur kost á sér í landsliðið.
Tilvera Gunnars í liðinu
kemur nokkuð á óvart þar sem
hann er einn reynsluminnsti leik-
maður liðsins og á alls að baki
ekki nema tvær mínútur með ís-
lenska liðinu frá því að hann kom
inn á í lok leiksins gegn Ítalíu í
lok mars á þessu ári. Stefán á að
baki fjóra landsleiki, alla sem
varamaður.
Annars er ekki svo margt sem
kemur á óvart í liðsvali Ásgeirs
og Loga og stilla þeir upp í eins
konar 4-4-1-1 leikkerfi. Eiður
Smári Guðjohnsen mun leika
fyrir aftan Gunnar Heiðar og
sinna svipuðu hlutverki og hann
gerði síðari hluta nýafstaðinnar
leiktíðar með Chelsea. Hann mun
vera í hlutverki arkitektsins hjá
íslenska liðinu og sjá um að
byggja upp sóknaraðgerðir þess.
Stefán verður við hlið Brynjars
Björns Gunnarssonar og eiga
þeir að sjá um að riðla
miðjuspili Ungverja og
stöðva þeirra aðalmann,
leikstjórnandann Zoltan
Gera hjá WBA. Þá tekur
Pétur Marteinsson stöðu
Hermanns Hreiðarssonar
við hlið Ólafs Arnar
Bjarnasonar í miðri
vörninni en Hermann á
við meiðsli að stríða. Á
milli stanganna fyrir
aftan þá stendur að sjálf-
sögðu Árni Gautur Arason.
Fróðlegt verður að sjá hvernig
öðrum reynslulitlum leikmanni,
Grétari Rafni Steinssyni, vegnar
af í hægri bakverðinum, en hann
er mun sókndjarfari leikmaður
en Kristján Örn Sigurðsson, sem
leikið hefur þá stöðu í síðustu
leikjum íslands en þarf nú að
sætta sig við sæti á bekknum.
Indriði Sigurðsson verður að
venju í vinstri bakverðinum en á
vængjunum er síðan að finna þá
Arnar Þór Viðarsson og Gylfa
Einarsson, leikmenn sem báðir
eru vanir að spila inni á miðjunni
með sínum félagsliðum og eru
því ekki í sinni kjörstöðu.
SMÁÞJÓÐALEIKAR Björn Þorleifs-
son og Auður Anna Jónsdóttir
unn bæði gull í tækvondó-
keppni Smáþjóðaleikanna í gær
og það með miklum glæsibrag.
Björn vann báða bardaga
sína með yfirburðum. Úrslita-
bardaginn var á móti Christos
Pilavakis frá Kýpur og hann
vann Björn 13-8.
Það sama var uppi á teningn-
um hjá Auði Önnu, sem einnig
vann báða sína bardaga með
yfirburðum. Í úrslitabardagan-
um mætti hún Angelica Medina
De Diego frá Andorra. Auður
Anna var komin yfir með 8-0 í
fyrstu lotunni þegar handklæð-
inu var hent inn í hringinn frá
þjálfara Angelicu.
Annað gull kom í hús í borð-
tennis í gær. Þá tryggðu þeir
Guðmundur Stephensen og
Adam Harðarson gull í tvíliða-
leik.
-ooj
Smáþjóðaleikarnir í Andorra í gær:
Tvö gull í hús í tækvondó
Árni Gautur Arason
Eiður Smári Guðjohnsen
4-4-1-1
Ólafur Örn Bjarnason Pétur Marteinsson
Indriði Sigurðsson
Brynjar Björn Gunnarsson Stefán Gíslason
Gylfi Einarsson Arnar Þór Viðarsson
Gunnar Heiðar Þorvaldssson
Grétar Rafn Steinsson
Íslenska sundfólkið gerði frábæra hluti í Andorra:
Allir fengu ver›laun
SUND Íslenska sundfólkið lauk
keppni á Smáþjóðaleikunum í gær
og uppskeran er glæsileg. Ísland
vann alls 34 verðlaun, tvöfalt
fleira en næsta þjóð, Kýpur, og
einum verðlaunum meira en á síð-
ustu leikum sem fram fóru á
Möltu.
Ísland fór út með mjög ungt lið
að þessu sinni en þessir krakkar
stefna öll á að komast inn á
Ólympíuleikanna í Peking eftir
þrjú ár og fengu þetta framtíðar-
sundfólk Íslands dýrmæta keppn-
isreynslu á þessum elleftu Smá-
þjóðaleikum. Íslensku krakkarnir
unnu 11 gull, 11 silfur og 12 brons
að þessu sinni en fyrir þremur
árum vann Ísland 11 gull, 14 silfur
og 8 brons eða alls 33 verðlaun.
Það sem gladdi kannski hópinn
mest var þó það að allir sundfólk-
ið vann sér inn verðlaun. Hilmar
Pétur Sigurðsson var sá síðasti til
að næla sér í verðlaunapening
þegar hann vann brons í 1500
metra skriðsundi.
Anja Ríkey Jakobsdóttir vann
flest gull í íslenska sundliðinu auk
þess sem hún kom að báðum Ís-
landsmetunum sem voru sett á
leikunum. Anja Ríkey sem syndir
fyrir Ægi vann fjögur gull og eitt
silfur þar af tvö gull í einstak-
lingsgreinum. Anja setti sjálf Ís-
landsmet í 100 metra baksundi á
fyrsta spretti í 4x100 metra fjór-
sundi í fyrradag og var síðan í
boðssundsveitinni sem setti
glæsilegt Íslandsmet í 4x100
metra skriðsundi á síðasta degin-
um í gær.
Jakob Jóhann vann flest verð-
laun í íslenska sundliðinu eða alls
sjö, eitt gull, fimm silfur og eitt
brons. Jakob Jóhann vann 4 af
þessum verðlaunum í einstak-
lingsgreinunum og þrjú með boð-
sundssveitunum.
Hin 15 ára Sigrún Brá Sverris-
dóttir úr Fjölni í Grafarvogi vann
flest verðlaun hjá stelpunum en
hún vann til sex verðlauna á sín-
um fyrstu leikum, 3 gull, 1 silfur
og 2 brons en fjögur af verðlaun-
um hennar komu í einstaklings-
greinum.
Ragnheiður Ragnarsdóttir og
Erla Dögg Haraldsdóttir unnu
báðar þrjú gull og fjögur verðlaun
alls en Erla Dögg ásamt Sigrúnu
Brá og Önju Ríkey voru þær einu
í íslenska hópnum sem náðu að
vinna tvær einstaklingsgreinar í
sundkeppninni í Andorra.
ooj@frettabladid.is
SJÖ SINNUM UPP Á PALL
Sundmaðurinn Jakob Jóhann
Sveinsson fór oftast upp á
verðlaunapalla af íslenska
sundfólkinu á
Smáþjóðaleikunum í Andorra.
Jakob Jóhann vann alls sjö
verðlaun, 1 gull, 5 silfur og 1
brons.
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR