Fréttablaðið - 04.06.2005, Qupperneq 56
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
Gleraugun í lífi mínu
Frá því að ég man eftir mér hefur mér ávallt þótt súpersvalt að nota
gleraugu. Þetta hefur gert það að verkum að ég hef öfundað alla þá
sem þjást af sjónskekkju, nærsýni, fjarsyni, rangeygð, ald-
urstengdri fjarsýni og fleiru sem gleraugnanotendur þurfa að lifa
við. Þetta ferli hófst í sex ára bekk þegar mesta skvísan í bekknum
fékk forláta gleraugu með eplamynstri. Mér fannst toppnum náð og
þegar við bekkjarfélagarnir vorum kallaðir upp til skólahjúkkunn-
ar í þyngdar- og sjónmælingu þóttist ég ekki sjá neitt. Skólahjúkk-
an hafði af þessu miklar áhyggjur enda skrítið að barn með svona
hroðalega sjón gæti almennt stundað nám með heilbrigðum börn-
um. Ég var því send í allsherjarrannsókn. Læknirinn sem ég lenti á
var örlítið aðgangsharðari en skólahjúkkan og var mér hætt að lít-
ast á blikuna. Ég neyddist því til að éta þennan skrípaleik ofan í mig
og var skömmuð dálítið fyrir vikið. Þrátt fyrir það hélt ég áfram að
láta mig dreyma um eplagleraugu á næturnar og svaf vært án
martraða. Tíminn leið og um tvítugt var ég alveg viss um að sjón-
inni væri að hraka enn á ný. Á þessu tímabili hafði ég uppgötvað
Max Mara og Prada og fannst ekkert annað koma til greina en að
eignast slík hjálpartæki, þó upp á stílinn. Því miður rættist draum-
urinn ekki í það skiptið því ég var mæld með nánast 100% sjón. Frá
því að draumurinn um eplagleraugun byrjaði að gera vart við sig
hefur gleraugnatískan gjörbreyst. Fólk er orðið mun meðvitaðra
um að gleraugu séu ekki bara gleraugu heldur flottur fylgihlutur.
Gleraugnalínurnar frá Gucci, YSL, Cartier, Alain Mikli, Chanel,
Karen Millen og Prada hafa til dæmis sjaldan verið flottari. Þegar
ég uppgötvaði að sjóninni minni færi ekki að hraka fyrr en upp úr
fertugu spurði ég föður minn hvort ég mætti ekki fá gleraugu með
rúðugleri. Hann hélt nú ekki og tilkynnti að það færi svo ógurlega
illa með augun að vera með rúðugler í umbúðum. Þessu trúði ég
þangað til ég kynntist manninum mínum. Hann hló og sagði: „Marta
smarta, það er svona álíka óhollt eins og að horfa út um gluggann.“
40 4. júní 2005 LAUGARDAGUR
Íeina tíð þótti ekki smart að þurfa á hjálpartækj-um eins og gleraugum að halda. Óhappapésarsem þurftu að brúka slík hjálpartæki voru jafn-
vel kallaðir ónefnum eins og gleraugnaglámar eða
eitthvað þaðan af verra. Í dag er allt annað upp á ten-
ingnum og í dag flokkast gleraugu sem tískuvara.
Flestir hátískuhönnuðir senda frá sér gleraugnalínur
meðfram fatalínum sínum og yfirleitt er hannað und-
ir sama þema. Þegar gleraugu eru valin skal varast
að feta praktísku leiðina. Vanda skal valið og mælt er
með því að viðkomandi kaupi það sem hann dreymir
um. Aðallega þó vegna þess að þessi fylgihlutur eða
tískuhjálpartæki er staðsett í andlitinu og flestir
ganga með gleraugu sjö daga vikunnar allt árið um
kring. Það er því skemmtilegra að eiga til skiptanna
og hafa hjálpartækið í smekklegri kantinum. Þeir
allra hörðustu eiga gleraugu við hvert tækifæri eða í
stíl við fataskápinn.
Franski gleraugnahönnuðurinn Alain Mikli hefur
verið leiðandi í gleraugnatískunni síðan hann byrjaði
að hanna þau árið 1978. Hann hefur unnið mest úr
plasti og hafa gleraugnaumgjarðir hans verið með
rík karaktereinkenni. Nýjasta línan frá Mikli er
súpersvöl. Þar mætir svarti liturinn hinum glæra og
útkoman er stórkostlega frumleg og dásamleg.
Hönnuðurinn útskýrir þetta þannig að þegar svörtu
gleraugun kynntust þeim glæru varð til nýtt sam-
band sem hann kallar PACT. Svarti liturinn er einn
mest notaði liturinn í plastumgjörðum
í dag en hið glæra er minnst
notað. Með því að sameina
þessi tvö efni verður til frum-
leg blanda sem gefur gler-
augunum ákveðinn karakter
en um leið léttleika. Gleraug-
un í PACT-línunni koma í tak-
mörkuðu upplagi og eru eng-
in tvö gleraugu eins.
martamaria@frettabladid.is
Bjútítips a› hætti J-Lo
Byrjaðu á því að undirbúa húðina vel með góðu rakakremi
og notaðu varasalva með sólarvörn. Berðu kremaðan
farða á andlitið með fingrunum eða bursta og varastu að
hylja andlitið eins og grímu. Berðu farðann frekar á þau
svæði sem þurfa farða til að halda áferðinni léttri.
Galdratrikkið til að líta út eins og stórsöngkonan Jenni-
fer Lopez er að bera ferskjulitaðan hyljara í kringum aug-
un og þá sérstaklega undir augun og örlítið niður á kinnarn-
ar og meðfram nefi. Berðu þunnt lag af ljósum sanseruðum
augnskugga yfir augnlokin og upp að augabrún. Dustaðu
sólarpúðri létt yfir krem skuggann því það gefur hon-
um festu og er góður grunnur undir venjulegan
augnskugga. Nú er komið að ljósa blýantinum.
Berðu hann í kringum augum (Í glóbus línuna)
til að gefa augunum meiri dýpt. Næst skaltu
krulla augnhárin og bera á þau maskara.
Ljósgulur blýantur er settur inn í augnkrók-
ana til að opna augun og gefa þeim meiri
ljóma.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
O
G
F
LE
IR
I.
PACT-LÍNAN er sérlega falleg og spennandi. Línan fæst
í heild sinni í Linsunni, Aðalstræti 9.
SÖNGKONAN hefur dálæti af MAC-snyrtivörum enda
lumar merkið á ógrynni af sniðugum snyrtivörum til að
láta mann líta vel út og geisla.
Stjarnfræðilega sjarmerandi
Niður með sléttujárnið
Söngkonan Ashanti sannaði það á dög-
unum að það er kúl að vera með liði í
hárinu. Ekki er laust við að söngkonan
hafi verið með örlítið „Dallas-útlit“ á MTV-
hátíðinni sem haldin var í Japan á dög-
unum. Til þess að geta haft hár eins og
Ashanti er nauðsynlegt setja í sig kar-
menrúllur og blása hárið svo til með
krullubursta. Sérfræðingar segja að þetta
sé ekki sérlega flókið, það þurfi bara að
kunna réttu handtökin og svo er hin
gullna regla alltaf í gildi sem segir að æf-
ingin skapi meistarann.
SÖNGKONAN ASHANTI er með frábært
hár í Dallas-stíl.