Fréttablaðið - 06.06.2005, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 555 7500
®
Þakviðgerðir
Nánari upplýsingar á www.pace.is
Málarameistari
sér um þakið
Síðan 1991
Opel Zafira DVD útgáfan er á stær› vi› venjulegan skutbíl en tekur 7 manns í sæti. Hann er kjörinn fyrir stórar
fjölskyldur, ótrúlega rúmgó›ur en jafnframt einstaklega snúningalipur og skemmtilegur í akstri. Börnin geta
horft á DVD myndir á fer›alaginu, sætin birtast og hverfa me› einu handtaki og geymslur‡min eru bókstaflega
allssta›ar. Fylltu hann af fólki og leyf›u flér a› kynnast honum virkilega vel!
Opel. fi‡ski gæ›ingurinn.
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og laugardaga kl. 12:00 - 16:00
Sértilbo›: Álfelgur fylgja
www.opel. is
Nánari uppl‡singar um Opel hjá Ingvari Helgasyni fær›u á www.opel.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
1
2
6
4
7
Glæpamenn
og hálfvitar?
Stjórnmálaumræða á Íslandi er íbesta falli ákaflega einstrengings-
leg og í versta falli mannskemmandi
skítkast. Margir taka mjög tilfinn-
ingalega afstöðu til stjórnmálaflokka
eins og um sé að ræða íþróttafélög
eða átthagasamtök og leggja metnað
sinn í að styðja sinn flokk með sem
mestum stóryrðum.
ANDSTÆÐINGAR sjálfstæðis-
manna kalla þá frjálshyggjubjálfa og
stuttbuxnalið sem óttist ekkert nema
Bláu höndina og girnist ekkert nema
gróða og gefi skít í velferðarkerfi,
sjúklinga, gamalt fólk og einkum og
sér í lagi öryrkja. Samfylkingin fær
að heyra að hún sé ekki stjórnmála-
flokkur heldur sundurlynd samtök
bullukolla sem séu sammála um það
eitt að brýnna sé að eyða peningum
en afla þeirra. Vinstrigrænir eru
sagðir vera samsafn elliærra komm-
únista sem hatist við allt sem hefur
verið uppfundið eftir að Stalín dó og
ungra umhverfisglópa sem haldi að
peningar vaxi í villtri náttúru og
Sogsvirkjun muni sjá landinu fyrir
nægri orku um ókomna tíð.
ALKUNNA er að það er ósvinna að
kalla hörundsdökkt fólk negra eða
tala niðrandi um þá sem aðhyllast
önnur trúarbrögð en maður sjálfur.
En um framsóknarmenn mega allir
vera eins orðljótir og orðaforðinn
leyfir: Framsóknarfýla, Framsóknar-
fjós eru orð sem koma oft upp í ís-
lenskri stjórnmálaumræðu. Að vísu
slumaði aðeins í þeim sem daglega
útmála Framsóknarflokkinn sem
spillingarbæli og glæpafélag þegar
það kom í ljós að allir þingmenn
þessa hægfara miðjuflokks nema for-
maðurinn eru eignalausir launþegar
og formaðurinn, margrómaður kvóta-
kóngur upp á milljarða, reyndist ekki
eiga nema nokkrar millur sem eru
bundnar í útgerðarfyrirtæki í hans
heimabyggð.
KANNSKI er stjórnmálaumræðan
alls staðar á þessu plani, þótt hinu
svonefnda Kalda stríði eigi að heita
lokið og Bandaríkjamenn og Rússar
séu ekki lengur óvinir. Bandaríkja-
menn voru reyndar ekki seinir að
finna sér nýjan óvin í Múhameðstrú-
armönnum. Þurfa menn alltaf á and-
stæðingum að halda? Þrífast menn á
hatri? Ætli allir sem eru manni ósam-
mála séu örugglega glæpamenn eða
hálfvitar?
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR