Fréttablaðið - 06.06.2005, Blaðsíða 80
6. júní 2005 MÁNUDAGUR
Strákarnir okkar, ís-
lenska landsliðið í
fótbolta, virðist ekki
vera að ná vopnum
sínum eftir hrikalegt
gengi á síðasta ári.
Liðið er með eitt stig
eftir sex leiki í und-
ankeppni heims-
meistaramótsins og á
leiðinni niður fyrir hundraðasta sætið
á styrkleikalista FIFA. Alltaf samt
sama sagan: Við vorum óheppnir,
dómararnir voru okkur óhliðhollir,
menn voru meiddir, andstæðingarnir
grófir, við áttum slæman dag, áhorf-
endur létu ekki nógu mikið í sér
heyra, Eiður Smári var þreyttur eftir
erfitt tímabil með Chelsea, blablabla...
Krafan var sex stig úr þessum
tveimur leikjum, refjalaust, sex stig.
Fimm mínútum eftir leikinn á laugar-
daginn var krafan ekki lengur sex stig
og hafði í raun aldrei verið sex stig;
liðið hafði leikið FRÁBÆRLEGA,
besti leikurinn í langan tíma. Við vor-
um bara óheppnir. Einmitt.
Liðið hefur ekki sigrað í alvöruleik
síðan við mörðum sigur á móti Færey-
ingum í ágúst 2003, Færeyingum sem
eru þrjátíu sjóarar í jafnvel afskekkt-
ara landi en við búum í hér. Þjálfar-
arnir samt algjörlega skynhelgir.
Kemur ekki annað til greina en þeir
klári þessa keppni. Og öllum er skít-
sama, enginn nennir á völlinn og varla
einu sinni að horfa í sjónvarpinu.
Þriggja manna vörn, fjögurra
manna vörn, hriplek vörn alveg sama
hvað. Ég held einfaldlega að allir séu
búnir að missa trúna á því að þessir
ágætu menn sem þjálfa liðið geti gert
nokkurn skapaðan hlut sem virkar.
Meira að segja leikmennirnir eru bún-
ir að missa trúna. Agaleysið algjört,
sögur af landsliðinu sauðdrukknu í
miðbænum á laugardaginn þegar
næsti leikur er á miðvikudaginn og
krafan skýlaus; sigur, þrjú stig, buffa
Möltu. Spurning hvort krafan breytist
eitthvað þegar leiknum er lokið og
leikmenn sem spila með mætum stór-
liðum Vallettaborgar búnir að verða
íslenska landsliðinu enn og aftur til
skammar.
Spurning hvort það verði samt
ekki öllum sama, dómurunum að
kenna hvort sem er, frábær leikur
engu að síður. Ekki ætla ég á völlinn
að minnsta kosti.
ODDUR ÁSTRÁÐSSON VELTIR FYRIR SÉR GENGI ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS
Íslenska landsliðið
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
EINAR ÁGÚST
Fundinn, fallinn
og brjálaðist
á Sólon
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Mamma! Þú
hraktir hana í burtu!
Það er ekki satt! Við Tanja töluðum bara um þig og Söru, sem
minnti hana á hversu mikið hún saknar
kærastans síns og hún fór þá inn að hringja í
hann.
Á hún
kærasta?
Hún daðraði við mig á
fullu og svo á hún bara
kærasta??
Hafðu mig af-
sakaða, kald-
hæðnin í loftinu
er allt of þykk
fyrir minn
smekk.
Jæja? Sama gamla... ...Frosinn
matur.
Gjörðu svo
vel, elskan.
Vá er farinn að
borða mikið af
fastri fæðu undan-
farið.
Það líður ekki á löngu fyrr en
þú verður bara hætt að hafa
hann á brjósti!
STUÐ MILLI STRÍÐA