Fréttablaðið - 06.06.2005, Blaðsíða 2
2 6. júní 2005 MÁNUDAGUR
Tölur um verð á íbúðarhúsnæði í fjölbýli á fyrsta fjórðungi ársins:
firi›jungshækkun milli ára
FASTEIGNIR Fasteignamat ríkisins
hefur birt í fyrsta sinn tölur um
þróun íbúðaverðs eftir borgar-
hlutum á höfuðborgarsvæðinu
með ársfjórðungstíðni. Fram-
vegis munu tölur af þessu tagi
birtast ársfjórðungslega.
Tölurnar taka til íbúðaverðs í
fjölbýli og sýna þróun einfalds
meðaltals staðgreiðsluverðs á
fermetra. BreytingarÝá stærð,
aldri o.fl. milliÝtímabila geta
skýrt breytingar á fermetra-
verði
Milli fyrsta ársfjórðungs
2004 og fyrsta ársfjórðungs
2005 er hækkunin mest 33,2 pró-
sent á svæðinu innan Hring-
brautar sem er svæðið milli
Hringbrautar að sunnan og
Snorrabrautar að austan.
Á fjórum svæðum er hækk-
unin milli ára meiri en 30 pró-
sent: á áðurnefndu svæði, í
Laugarnesinu, Vogunum og á
svæðinu Norðurmýri, Holt,
Hlíðar norðan Miklubrautar og
Múlar.
Minnst er verðhækkunin
milli ára í Mosfellsbæ (21,1 pró-
sent), Garðabæ (21,8 prósent) og
á Seltjarnarnesi (23,5 prósent).
Tölurnar má finna á heima-
síðu Fasteignamats Ríkisins,
www.fmr.is. -ifv
Eldur kom upp í sumarbústað í Tálknafirði:
firír taldir hafa fengi› reykeitrun
ELDSVOÐI Þrír menn voru fluttir á
heilsugæslustöð Patreksfjarðar
vegna gruns um reykeitrun eftir
að eldur kom upp í sumarbústað í
Tálknafirði aðfaranótt sunnudags.
Samkvæmi var í bústaðnum og
fjöldi manns var á svæðinu þegar
eldur kom upp í geymslu í húsinu.
Þegar slökkvilið og lögreglu bar
að garði voru gestirnir búnir að
slökkva eldinn að mestu og greið-
lega gekk að slökkva það bál sem
eftir lifði en rétt þótti að flytja
þrjá menn á heilsugæsluna til að-
hlynningar.
Geymslan sem kviknaði í er
mikið skemmd af völdum elds og
reyks og þá urðu talsverðar
skemmdir af völdum reyks í öðr-
um innviðum bústaðarins. Elds-
upptökin liggja ekki fyrir en
samkvæmt lögreglunni er ekki
ólíklegt að kviknað hafi í út frá
glóð. - bs
Sakar forystumenn
frjálslyndra um ósannindi
STJÓRNMÁL Gunnar Örn Örlygsson
þingmaður segir formann Frjáls-
lynda flokksins fara með ósann-
indi í yfirlýsingum um brott-
hvarf hans úr flokknum þegar
hann fullyrðir að hvergi hafi
gætt misræmis í málefnalegum
áherslum milli Gunnars og þing-
flokksins. Hann vísar til bréfs
sem hann skrifaði formanninum
18. nóvember síðastliðinn. Í því
segist Gunnar
ekki eiga samleið
með flokknum
nema til grund-
vallarbreytinga
komi á störfum
hans. Hann segir
flokkinn hafa
einangrað sig frá
almennri um-
ræðu um þjóð-
mál og telur
honum líkt við
gamla Alþýðu-
b a n d a l a g i ð
vegna upp-
hrópana í hvert
sinn sem tals-
menn fyrir-
tækja opni
m u n n i n n .
„Flokkurinn er
miklu frekar
vinstri sinnað-
ur en nokkurn
tímann hægra
megin við
miðju. Flokk-
urinn hefur
elt skottið á
S t e i n g r í m i
og Össuri
frá fyrsta
degi þessa kjörtímabils,“ segir í
bréfinu.
Í Gullkistunni, málgagni
Frjálslynda flokksins, sem út
kom í gær biður Guðjón A. Krist-
jánsson formaður flokksmenn
afsökunar á brotthvarfi Gunnars
og segir sinnaskipti hans hafa
komið mjög á óvart „því tveim
tímum áður höfðum við rætt
saman um þátttöku hans í eld-
húsdagsumræðu daginn
eftir, 10. maí“.
Gunnar Örn segir fullyrðing-
ar Guðjóns og Magnúsar Þórs
Hafsteinssonar, varaformanns
frjálslyndra, rangar um að
hvergi og aldrei hafi bólað á mál-
efnalegum áherslumun milli
hans og þeirra. „Báðir hafa ít-
rekað komið fram og fullyrt
þessi ósannindi. Það verða þeir
að eiga við sig og getur varla
talist þeim til framdráttar. Ég
bið kjósendur Frjálslynda
flokksins afsök-
unar á hverflyndi
þeirra sem eftir
sitja í veikum
þingflokki frjáls-
lyndra,“ segir
Gunnar Örn og tel-
ur flokkinn hafa
brugðist kjósend-
um sínum. Þá gefur
hann lítið fyrir
vangaveltur um
tímasetningu úr-
sagnar sinnar og
áréttaði að Guðjón
hefði fyrstur fengið
að vita af ákvörðun
sinni.
Þó freistandi hafi
verið segist Gunnar
hafa ákveðið að birta
ekki umrætt bréf til
Guðjóns þegar um-
skiptingarnar stóðu
yfir. „Ég leyfði mér að
trúa að forsvarsmenn
frjálslyndra og sér-
staklega Guðjón myndu
mæta þessari ákvörðun
minni með reisn. Því
miður hefur hið önd-
verða komið í ljós. Ég vona að
birting bréfsins muni hreinsa
mig af þeim ósannindum sem
eftirstandandi þingflokkur
frjálslyndra hefur haldið uppi og
afhjúpi þá um leið sem rangt
höfðu við.“
olikr@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
Magnús, er flingmannakaupi›
svona naumt skammta›?
„Alls ekki. Mér finnst bara gaman að
komast á sjó aftur og taka til hendinni.“
Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda
flokksins, fór túr sem háseti á síldveiðar um dag-
inn og ætlar aftur innan tíðar. Hásetahluturinn í
sæmilegum túr er í kringum tvö til þrjú hundruð
þúsund krónur.
NOKKUÐ SKEMMDUR Fjöldi fólks var í gleðskap í bústaðnum þegar eldurinn kom upp.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
ER
G
ST
EI
N
N
S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Gunnar Örn Örlygsson segir formann og varaformann Frjálslynda flokksins fara me› ósannindi í l‡singum
á a›draganda fless a› hann sag›i sig úr flokknum og gekk til li›s vi› Sjálfstæ›isflokkinn. Gu›jón A. Krist-
jánsson, forma›ur frjálslyndra, hefur be›i› kjósendur flokksins afsökunar á brotthvarfi Gunnars Arnar.
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
GUNNAR ÖRN ÖRLYGSSON
HÆKKUN Á FASTEIGNAVERÐI
MILLI FYRSTU ÁRSFJÓRÐUNGA
ÁRANNA 2004 OG 2005
Svæði Hækkun
Innan Hringbrautar 33,2%
Vogar 32,6%
Norðurmýri, Holt, Hlíðar
norðan Miklubrautar, Múlar 32,2%
Laugarnes 31,1%
Hafnarfjörður 29,7%
VERÐ ÍBÚÐARHÚSNÆÐIS Í FJÖLBÝLI Á fjór-
um svæðum er hækkunin á verði íbúða-
verðs í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu
hærri en 30 prósent.
RÁNYRKJA Stórtækur fiskistuldur á sér stað
á Atlantshafi.
Skip á veiðum:
Sjóræningjar
ræna fiskinum
SJÁVARÚTVEGUR Sex til sjö sjóræn-
ingjaskip frá löndum sem ekki
eiga aðild að fiskveiðistjórnunar-
svæði Norðaustur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndarinnar hafa stund-
að ólöglegar veiðar á Reykjanes-
hrygg á undanförnum mánuðum.
Vitað er að einhver skipanna
koma frá löndum eins og
Dóminíku og Belís.
Á föstudag hafði Landhelgis-
gæslan spurnir af flutningaskip-
inu Sunny Jane, sem skráð er í
Belís, sem ólöglega veiddum afla
hafði verið umskipað í. Sunny
Jane var búið að boða komu sína í
Hollandi samkvæmt hollensku
strandgæslunni. Íslenska land-
helgisgæslan hefur ekki haft
neinar spurnir af Sunny Jane síð-
an. -ifv
MEÐ TÓL TIL FÍKNIEFNANEYSLU Í
FARTESKINU Lögreglan í Vík í
Mýrdal stöðvaði nokkra ökumenn
fyrir of hraðan akstur í umdæm-
inu í gær. Þeirra á meðal var einn
sem hafði ekið bíl sínumá Mýr-
dalssandi á tæplega 130 kíló-
metra hraða á klukkustund. Við
nánari athugun komu í ljós tæki
til fíkniefnaneyslu og lítilræði af
sterkum efnum. Ökumaðurinn
var þó ekki sjálfur undir áhrifum
eftir því sem best er vitað.
LÖGREGLUFRÉTTIR