Fréttablaðið - 06.06.2005, Blaðsíða 86
30 6. júní 2005 MÁNUDAGUR
Lárétt: 2 ólogið, 6 í rö, 8 hundasig, 9 lík-
amshluti, 11 tveir eins, 12 mælieining, 14
rangur vitnisburður, 16 tónn, 17 öfug röð,
18 skel, 20 grastotti, 21 sver.
Lóðrétt: 1 drykkjar, 3 tveir eins, 4 trygg, 5
traust, 7 erfiðaði, 10 eins um r, 13 stríðni,
15 málmur, 17 tónverk, 19 sting.
Lausn.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Opið laugardaga frá 10-14.30
SIGIN GRÁSLEPPA
OG SJÓ SIGINN
FISKUR
SIGIN
RÁSLEPPA
OG KÆST SKATASTÓR H M R
,
Bókin Móðir í hjá-
verkum hefur slegið í
gegn í Bandaríkjun-
um, Bretlandi og víðar.
Höfundur bókarinn-
ar er Allison Pearson
en einn af höfundum
Dísar, Oddný
Sturludóttir, sá um
að þýða bókina.
Bókin fjallar um
framakonuna Kate
Reddy sem starfar í
fjármálaheiminum.
Hún er sjóðsstjóri
sem veltir milljónum á
degi hverjum, en hún
er líka eiginkona og
tveggja barna móð-
ir. Þetta gerir það
að verkum að hún
á í mesta basli með að sameina
vinnu og einkalíf. Kate þarf ekki
aðeins að kljást við kröfuharða yf-
irmenn, langþreyttan eiginmann
og þurftafrek börn. Barnapían er
uppstökk, tengdaforeldrarnir af-
skiptasamir og hún á í harðri sam-
keppni á vinnustaðnum. Hún þarf
að halda sér til, vera í fínu formi,
fylgjast með því sem er efst á
baugi, sinna vinum sínum og svo á
hún myndarlegan elskhuga í
netheiminum. Það er deginum
ljósara að eitthvað verður að láta
undan. Edda gefur bókina út og er
hún væntanleg í verslanir 19. júni.
martamaria@frettabladid.is
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Mahmoud Abbas
Íslendingar
Kristján Örn Sigurðsson
Rapparinn Snoop Dog mætir til
landsins 17. júlí og heldur tón-
leika í Egilshöllinni. Það er
sjaldan lognmolla um þennan
rappara og í fljótu bragði mætti
ætla að þessir tónleikar væru
bara fyrir ungmenni. Meðal tón-
leikagesta verður engu að síður
að finna fimmtuga húsmóður
frá Keflavík, Birnu Bjarnadótt-
ur, sem er einlægur aðdáandi
rapparans.
Þeir eru eflaust ekki margir
jafnaldrar Birnu sem hlusta á tón-
list Snoop en hún segist hafa
kynnst honum þegar hún hafi ver-
ið að þrífa heima fyrir. „Krakk-
arnir mínir voru með fullt af lög-
um inni á mp3 spilaranum og ég
setti hann bara á mig þegar ég var
að þrífa.“ Einn af þeim tónlistar-
mönnum sem þar var að finna var
Snoop og það var ekki sökum að
spyrja, Birna kolféll fyrir honum.
„Það var mjög gott að þrífa með
Snoop í eyrunum,“ segir hún.
„Reyndar sagði sonur minn við
mig að ég hlyti að hafa verið aga-
legur sýruhaus í fyrra lífi miðað
við þá tónlist sem ég hlusta á,“
bætir hún við hlæjandi.
Nú þegar börnin eru flogin að
heiman fer minna fyrir Snoop á
heimilinu en hún segist þó enn
hlusta á hann þegar tækifæri
gefst. „Ég flakka á milli barnanna
og spjalla við þau.“
Þegar Ísleifur Þórhallsson
fékk bréf frá systkinunum þess
efnis að móðir þeirra væri ein-
lægur aðdáandi Snoop þá stóð
ekki á honum heldur bauð hann
þeim á tónleikana. Það vildi þó
ekki betur til en svo að Birnu
hafði loksins tekist að fá sumar-
bústað í Húsafelli þessa sömu
helgi. „Þetta er í fyrsta skipti sem
ég fæ sumarbústað yfir sumar-
tímann,“ segir hún og allt leit út
fyrir að hún kæmist ekki á tón-
leikana. Birna leggur þó ekki árar
í bát heldur ætlar hún að keyra í
bæinn á tónleikadeginum til þess
að sjá Snoop Dog. „Ég hef aldrei
farið á tónleika áður svo að þetta
verður alveg ný upplifun,“ segir
Birna sem þegar er farin að
hlakka til 17. júlí þegar Snoop Dog
mætir í Egilshöllina til þess að
trylla unga jafnt sem aldna.
freyrgigja@frettabladid.is
BIRNA Lætur ekki 140 kílómetra aftra sér frá því að komast á tónleika Snoop Dog heldur brunar í bæinn til að geta barið goðið sitt augum.
BIRNA BJARNADÓTTIR: ELSTI RAPPAÐDÁANDI LANDSINS
Þrífur með Snoop Dog
... fær hinn fjölhæfi Villi naglbítur
fyrir að sýna á sér enn eina hliðina
með myndlistarsýningu á Sólon.
HRÓSIÐ
SNOOP DOG Er væntanlegur á Klakann
og mun vonandi flytja slagara á borð við
Gin & Juice og Drop it Like it's Hot fyrir ís-
lenska aðdáendur sína.
Lárétt:2satt,6ab,8arr, 9bak,11úú,12
skref, 14skrök,16la,17tsr, 18aða,20
tó,21gild.
Lóðrétt:1tabs,3aa,4trúföst,5trú,7
baksaði,10krk,13ert, 15króm,16lag,
19al.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Á föstudaginn streymir æska
landsins fram á gróin sumartún til
að fegra ásýnd borgarinnar. Alls
3.200 unglingar munu gleðja borg-
arbúa með
vinnuframlagi
sínu í nafni
V i n n u s k ó l a
Reykjavíkur í
sumar, en vinnu-
tímabilið er frá
10. júní til 12.
ágúst.
„Vinnuskólann sækja nemendur
úr 8., 9. og 10. bekk grunnskóla
Reykjavíkur og vinna í fimm til sex
vikur í senn,“ upplýsir Henry
Henrysson aðstoðarskólastjóri.
„Þar verður þeim kennt að vinna og
fá þrenns konar fræðslu: náttúru og
umhverfi; listir og menningu, og
lífsleikni og sjálfsstyrkingu.“
Að sögn Henrys starfar stærstur
hluti reykvískra unglinga í Vinnu-
skólanum.
„Það er þó misjafnt eftir árgöng-
um. Þeir sem eru orðnir sextán eiga
auðveldar með að fá sumarvinnu
annars staðar, en sextíu prósent
fimmtán ára unglinga og áttatíu
prósent fjórtán ára unglinga úr
hverjum árgangi vinna hjá okkur í
sumar.“
Launataxti Vinnuskólans fer
eftir aldri. Tímakaupið skiptist í
þrennt: 273 krónur, 308 krónur og
409 krónur.
„Yngsti hópurinn starfar mest á
skólalóðum, miðhópurinn til helm-
inga í Heiðmörk og garðaþjónustu
fyrir eldri borgara, en þau elstu í
blómabeðum bæjarins, á leikskóla-
lóðum og víðar,“ segir Henry sem
kannast vel við kvart borgarbúa
yfir sofandi unglingum undir trjám
borgarinnar.
„Skattborgarar hringja mikið
yfir sumartímann til að kvarta yfir
sofandi unglingum eða í sólbaði við
garðyrkjustörfin, en sjaldnast er
um unglinga Vinnuskólans að ræða,
heldur oftast eldri unglinga,“ segir
Henry, en alls vinna eldri hóparnir
sjö stunda vinnudag, meðan yngsti
hópurinn vinnur þrjá og hálfan tíma
á dag.
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur
við unglingum nýfluttum til lands-
ins í samstarfi við móttökudeildir
grunnskólanna, og fötluðum ung-
lingum sem fá sumarvinnu á Mikla-
túni og í Húsdýra- og fjölskyldu-
garðinum.
„Þeim hjálpum við í félags-
færni og með þeim eru liðsmenn
sem aðstoða við garðyrkjustörf
og fleira. Þannig ná þeir að kynn-
ast ófötluðum jafnöldrum sínum
og mikil gleði og fjör sem tengj-
ast þeim kynnum, á báða bóga,“
segir Henry, stoltur af unglingum
höfuðborgarinnar. ■
ODDNÝ STURLUDÓTTIR
þýðandi bókarinnar.
MÓÐIR Í HJÁVERKUM
Hefur algerlega slegið í gegn.
Sofna sjaldnast í blómabe›um
Henry Henrysson, aðstoðarskólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur, fær 3.200 unglinga í vinnu.
HENRY HENRYSSON
Allt í fimmta gír