Fréttablaðið - 06.06.2005, Blaðsíða 76
6. júní 2005 MÁNUDAGUR
> Okkur hlakkar til að sjá ...
... hvernig varnarlínu íslenska landsliðsins í
fótbolta verður stillt upp gegn
Möltu á miðvikudagskvöldið.
Öll varnarlínan eins og hún
lagði sig gegn Ungverjum
verður ekki til taks gegn
Möltu, ýmist vegna
leikbanna eða
meiðsla, og er ljóst
að einhver ný
andlit munu sjást í
íslensku vörninni.
Heyrst hefur ...
... að handknattleiksmaðurinn Arnar
Pétursson, sem nýlega var leystur undan
samningi sínum hjá FH, sé á leið til
Valsmanna. Segir sagan að Hlíðar-
endaliðið hafi boðið Arnari fimm ára
samning og mun hlutverk hans vera að
leysa af Heimi Örn Árnason í leik-
stjórnendastöðunni, en hann gekk nýlega
í raðir Fylkis.
sport@frettabladid.is
20
> Við skorum á ...
.... almenning á Íslandi til að fjárfesta í
gömlum treyjum íslenska landsliðsins í
handbolta. Þær verða til sölu á góðu verði
fyrir leik Íslands og
Svíþjóðar í Kaplakrika í
kvöld en meðal annars
er um að ræða treyjur
frá B-keppninni í
Frakklandi árið 1989.
Pétur Marteinsson, varnarma›ur íslenska landsli›sins, ökklabrotna›i illa í leiknum gegn Ungverjum og
fór í a›ger› í gærmorgun. Hann ver›ur í gifsi næstu sex vikurnar.
Vissi strax að þetta væri alvarlegt
FÓTBOLTI „Þetta gerðist þannig að
ég lendi í samstuði við einn Ung-
verjann og náði einhvernveginn
að festa takkana í grasinu í leið-
inni. Hann lendir ofan á löppinni á
mér þegar þunginn er á henni og
ég vissi strax að eitthvað alvar-
legt hefði gerst. Þetta var fyrir
það fyrsta alveg hrikalega vont og
síðan heyrði ég smellinn,“ segir
Pétur Marteinsson, varnarmaður
íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, en hann ökklabrotnaði
eftir rúman stundarfjórðung í
leiknum gegn Ungverjalandi í
undankeppni HM á laugardag.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
honum undir kvöldmat í gær var
Pétur enn að ná sér eftir svæfing-
una, en hann fór í aðgerð vegna
brotsins í gærmorgun þar sem
meðal annars voru settar skrúfur
í löppina á honum. „Þeir kalla
þetta ökklabrot en það er sperri-
leggurinn, sem er fyrir ofan
ökklann, sem er brotinn,“ segir
Pétur.
Ekki er víst hvenær Pétur mun
geta snúið aftur á fótboltavöllinn
og kveðst hann sjálfur lítið vera
byrjaður að hugsa um það. Ökkla-
eða sperrileggsbrot svipuð þeim
sem Pétur lenti í eru mjög misjöfn
en geta haldið leikmönnum frá
æfingum og keppni í allt að þrjá
mánuði. Pétur verður í gifsi í sex
vikur en ætlar sér að koma sterk-
ur til baka. Pétur leikur með
Hammarby í sænsku úrvalsdeild-
inni og þykir hafa staðið sig afar
vel það sem af er móti en sænsku
deildinni lýkur í byrjun nóvem-
ber. Pétur kveðst að sjálfsögðu
gera sér vonir um að spila aftur
áður en tímabilinu lýkur en hefur
þó varann á.
„Þetta kemur bara í ljós en ég
mun láta mína lækna í Svíþjóð
skoða þetta. Þetta er auðvitað
mikið áfall en þetta fylgir þessu,“
segir hann.
vignir@frettabladid.is
Nú er ljóst að allir þeir fjórir varnar-
menn sem byrjuðu inn á gegn Ungverj-
um munu ekki geta tekið þátt í leiknum
gegn Möltu á miðvikudag. Allir eru þeir
í leikbanni nema Pétur Marteinsson
sem er meiddur og verður væntanlega
frá í einhvern tíma. Til að bæta fyrir
þetta hafa tveir varnarmenn verið kall-
aðir inn í landsliðið, einn er vanur
landsliðsmaður en hinn er nýliði. Báðir
hafa staðið sig mjög vel það sem af er í
Landsbankadeildinni og það kemur
ekki á óvart að þeir koma frá þeim fé-
lögum sem enn hafa ekki tapað leik.
Valsarinn Bjarni Ólafur Eiríksson er ný-
liði en á að baki tvo U-21 landsleiki en
hann er nú 23 ára. „Þetta kom mér
verulega á óvart, ég var nú
ekki beinlínis að bíða
eftir símtalinu þegar það var ljóst að
alla varnarmennina myndi vanta í
næsta leik,“ sagði Bjarni Ólafur. „Það
verður því væntanlega boðið upp á
glænýja vörn í íslenska landsliðinu en
ég á nú ekki von á því að vera í byrjun-
arliðinu.
„Þetta var ánægjulegt að fá þessi tíð-
indi, þó svo að maður hefði
auðvitað viljað vera með frá
byrjun,“ sagði Auðun
Helgason, varnarmaður
FH, sem var kallaður í
landsliðið í gær. „En við
þjálfararnir ræddum vel
saman í morgun og ég hef
ákveðið að gefa mig alger-
lega í þetta verkefni.“
Aðspurður
segir Auðun að hann stefni alltaf að því
að vinna sér sæti í landsliðinu. „Svo
lengi sem maður hefur metnað og telur
sig vera í góðu standi gerir maður það.
Það er þó alls ekki að ég hafi orðið eitt-
hvað svekktur þegar ég var ekki valinn.
Maður er orðinn þetta gamall og búinn
að ganga í gegnum þetta allt saman.“
Um nýju vörnina segir Auðun að hann
voni að þeir sem verði í byrj-
unarliðinu hafi náð að stilla
saman strengi. „Það tekur
alltaf tíma. En auðvitað
vona ég að ég verði einn af
þeim fjórum og fái tækifæri
til að miðla af minni
reynslu.“
ÍSLENSKA VARNARLÍNAN ÞURRKUÐ ÚT: AUÐUN HELGASON OG BJARNI ÓLAFUR EIRÍKSSON TEKNIR INN
Bei› ekki eftir símtalinu frá fljálfurunum
Fyrrum leikmaður Stoke:
Fór vegna
stjórnarinnar
FÓTBOLTI Wayne Thomas, fyrr-
um leikmaður Stoke City, hefur
nú greint frá því af hverju hann
kaus að ganga til liðs við Burnley
í síðustu viku og segir að hann
hefði aldrei yfirgefið Stoke ef
honum hefði liðið vel hjá liðinu.
Thomas var einn eftirsóttasti
leikmaður 1. deildarinnar eftir
tímabilið og sagði Steve Cotterill,
stjóri Burnley, að hann hefði
klófest besta leikmanninn sem
var án samnings í sumar.
„Ég hef ekkert á móti leik-
mönnum liðsins, ekkert á móti
knattspyrnustjóranum eða félag-
inu yfir höfuð,“ sagði Thomas.
„Það eru bara stjórnarmennirnir
sem ég líð ekki. Þeir verða að hafa
hraðari hendur ef þeir ætla ekki
að missa alla leikmennina frá lið-
inu,“ bætti Thomas við.
Keppni allra landsmanna
Frítt á leiki og happdrættispottur
Sextán ára og yngri fá frítt á leiki í Landsbankadeildinni í sumar og lenda
í happdrættispotti þar sem dregnir verða út 100 glæsilegir vinningar.
Miðar eru afhentir í útibúum bankans.
1. vinningur: 4 flugmiðar og 4 miðar á leik í Meistaradeild Evrópu.
Aðrir vinningar: Áritaðar landsliðstreyjur og vandaðir fótboltar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
86
14
06
/0
5
UMFERÐ KVENNA
mán. 6. jún 20:00 Breiðablik - KR
mán. 6. jún 20:00 Keflavík- ÍBV
mán. 6. jún 20:00 FH - Stjarnan
mán. 6. jún 20:00 Valur- ÍA
410 4000 | www.landsbanki.is
VIÐ STYÐJUM ÍSLENSKA
KNATTSPYRNU MEÐ STOLTI
|4.
Leit Alex Ferguson að markverði lokið í bili:
Van der Saar til
Manchester United
FÓTBOLTI Fulham hefur samþykkt
2,5 milljóna punda tilboð
Manchester United í hollenska
landsliðsmarkvörðinn Edwin van
der Saar, sem mun undirrita nýj-
an tveggja ára samning við liðið
þegar hann kemur úr landsleikj-
um Hollands í vikunni.
Van der Saar var sterklega orð-
aður við United í jan-
úar, en ekkert varð
af skiptunum sem
varð til þess að hann
undirritaði nýjan
tveggja ára samning
við Fulham. Eftir að
United-menn leystu
Roy Carroll undan
samningi á dögunum
hafa þeir hins vegar
lagt mikla áherslu á
að ná sér í traustan
markvörð, sem þeir
hafa nú landað í hin-
um 34 ára gamla
Hollendingi. Þetta
eru fyrstu kaup liðs-
ins síðan milljarða-
mæringurinn Malcom Glazer
eignaðist meirihluta í félaginu, en
þeir höfðu einnig verið að skoða
markverði á Ítalíu. „Edwin er í
skýjunum yfir því að fara til jafn
virts félags og Manchester United
og getur ekki beðið eftir að byrja
að leika með þeim,“ sagði umboðs-
maður hans í gær.
Í GIFSI Í SEX VIKUR Pétur var kominn heim í faðm fjölskyldunnar þegar ljósmyndara
Fréttablaðsins bar að garði og ætlar hann að jafna sig þar næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VAN DER SAR SÁTTUR Skrifar undir 2ja ára samning við
Manchester United í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP