Fréttablaðið - 28.06.2005, Síða 13

Fréttablaðið - 28.06.2005, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2005 19 MANNRÉTTINDI Félögum í Íslands- deild Amnesty International fjölg- aði um tæplega tvö þúsund á síðast- liðnu ári. Þeir eru nú um fjögur þús- und. Þetta sagði Jóhanna K. Eyjólfs- dóttur, framkvæmdastjóri deildar- innar í hádegisþætti Fréttablaðsins á Talstöðinni í gær. Jóhanna sagði einnig að hún teldi að íslensk stjórn- völd verði við áskorun þeirra ríf- lega sjötíu sem óski þess að þau hvetji Bandaríkjastjórn til að leyfa rannsóknir á meintum pyntingum í Guantanamó-fangelsinu á Kúbu. Ís- lensk stjórnvöld hafi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna stutt tillögur um að mannréttindi séu virt í stríð- inu gegn hryðjuverkum. „Það væri því eðlilegt framhald að íslensk stjórnvöld þrýstu á bandarísk stjórnvöld um að allar ásakanir um pyntingar verði rann- sakaðar og hinir ábyrgu verði dregnir til ábyrgðar; að eftirlitsfull- trúi Sameinuðu þjóðanna fái aðgang að öllum þessum fangelsum; að þeir sem eru í haldi fái ákæru og réttláta dómsmeðferð ellegar verði leystir úr haldi og að Guantanamo verði lokað,“ sagði Jóhanna. - gag Íslandsdeild Amnesty International: Fjöldi félagsmanna tvöfaldast FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA MEÐ ÁRSKÝRSLU MANNRÉTTINDA- SAMTAKA Í HÖND Jóhanna K. Eyjólfs- dóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. BRAKANDI ÞURRKUR Úrkoma hefur verið með minnsta móti á Ítalíu í sumar og því er yfirborð vatnsbóla helmingi lægra en í meðalári. Fljótið Pó er ekki svip- ur hjá sjón, raunar má segja að það líkist frekar læk þessa dagana. SIGRÚN JÓHANNESDÓTTIR Forstjóri Persónuverndar Fjölmiðlar að ná nýrri lægð „Mér finnst margt í fjölmiðlum hafa náð ákveðinni lægð sem ég hef ekki séð fyrr,“ segir Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar. „Burtséð frá lögmæti fréttamennskunnar þá vekur þessi umfjöllun oft spurningar um það hvort viðkomandi blaðamenn kunni einföldustu mannasiði.“ Hún tekur fram að þetta séu sínar skoðanir en ekki Persónuverndar. „Að mínu mati er það hlutverk dómstóla frekar en Persónuverndar að fjalla um slík mál. Einungis þeir geta skorið úr um það hvort fjölmiðill hafi við gerð fréttar brotið lög og skapað sér bóta- eða refsiábyrgð. Við höfum hins vegar í nokkrum tilvikum gefið almennt álit um opinbera umfjöllun en það hafa ekki verið mál sem tengjast hefðbundinni fréttamennsku. Síðustu mánuði hafa nokkrar slíkar kvartanir borist til okkar en það bíður stjórnar Persónuverndar að taka af- stöðu til þess að hvaða marki það falli undir hennar valdsvið að af- greiða þau mál.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.