Fréttablaðið - 28.06.2005, Side 35
Nefið á Nicole Kidmanvar ástæða þess að
hún var valin í hlutverk
nornarinnar Samönthu í
Bewitched. Leikstjórinn,
Nora Ephron, segir að
nef leikkonunnar sé svo
líkt nefi Elizabethar
Montgomerys, sem lék
nornina í Bewitched-
þáttunum á sjöunda
áratugnum, að hún hafi orðið að fá
hlutverkið. Eins og margir vita er
sérstakur nefsnúningur einkenni
nornarinnar í Bewitched.
Liam Gallagher segistóska þess að hann
gæti spilað á Live 8 – en
eingöngu til þess að geta
gert lítið úr Robbie
Williams. „Ef Oasis
hefði ekki verið að
spila á öðrum tón-
leikum sama dag þá hefðum við pott-
þétt mætt á Live 8,“ sagði Gallagher í
viðtali við kanadískt blað. „Við mynd-
um svo sem alveg vilja vekja athygli á
ástandinu, eða hvað það nú er, en við
myndum gera allt brjálað og svo
myndi ég segja: Robbie Williams,
reyndu að leika þetta eftir, delinn
þinn!.“
Jennifer Aniston segist ekki eiga íástarsambandi við leikarann Vince
Vaughn. Þau vinna nú saman að kvik-
myndinni The Break Up og fór
hávær orðrómur í gang þegar
þau sáust faðma hvort annað í
tíma og ótíma. „Ég held að
fólk vilji bara endilega sjá hana
í nýju ástarsambandi, en hún
er bara ástrík manneskja,“
sagði Stephen Huvane, tals-
maður Jennifer. Vaughn sést nú
í myndinni The Wedding Cras-
hers en svo skemmtilega vill til
að hann er einnig í myndinni
Mr. and Mrs. Smith.
Brittany Murphy opnaði hina ár-legu sumarútsölu í
Harrods. Mohamed Al
Fayed fær alltaf fræga
stjörnu til að opna út-
söluna og hafa Victoria
Beckham og Christina
Aguilera báðar sinnt því
starfi. Þetta þykir mjög
eftirsóknarvert því við-
komandi fær að gera
sérstaklega góð kaup á
útsölunni.
FRÉTTIR AF FÓLKI