Fréttablaðið - 28.06.2005, Side 38

Fréttablaðið - 28.06.2005, Side 38
Snoop Dogg kemur til landsins og spilar í Egilshöllinni þann 17. júlí. Áður en hann stígur á svið- ið og þegar hann kemur niður af því vill hann þó hafa ákveðna hluti til taks. Þetta er ekkert einsdæmi en stórstjörnur gera iðulega ákveðnar kröfur um að- búnað á tónleikum og Snoop verður jafnvel að teljast nokkuð hóflegur í samanburði við ýmsa minni spámenn sem hafa viljað láta dekra við sig í hvívetna. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir þvi að Snoop vilji hafa vatn, te og pakka af Fisherman’s Friends í búningsherberginu sínu. Þá á hann að hafa beðið um að átta flöskur af Moet kampa- víni yrðu til taks auk tveggja stórra kartöfluflögupoka. Auk þess vill Snoop fá eina flösku af Hennessey og ferska ávexti. Rapparinn virðist einnig vera mikill kjúklingamaður en hann mun hafa pantað Hot Wings fyr- ir allt að tuttugu manns að ógleymdum einum kassa af kleinuhringjum og einum Hubba Bubba Bubble tyggjópakka. Hljómsveitin hans, Snoopa- delics, biður ekki um alveg jafn mikið; einn kassi af Corona bjór, einn lítri af appelsínudjús auk kleinuhringja, tortilla flögur og salsa sósa gera hana glaða auk annarra smáhluta. Tíu mínútum áður en Snoop stígur á sviðið þurfa nokkrir hlutir að vera komnir upp á svið og þar á meðal eru ein flaska af Henness- ey, tuttugu flöskur af vatni, fjórar flöskur af Moet kampavíni og þrjú kampavínsglös. Þegar tónleikahaldinu er lokið vill rapparinn fá sitt- hvað að borða og þar mun steiktur kjúklingur vera algjört lykilat- riði. Vanilluís er einnig mjög mik- ilvægur að ó g l e y m d u m smábrauðum. Þá má finna óskir um pasta, bak- aðar kart- öflur með s ý r ð u m rjóma sem og broccoli. Snoop verður því seint sakaður um að vera gikkur á mat ef marka má þennan lista. Steiktur matur virðist þó vera ákaflega mikil- vægur á matseðli rapparans. Hvað afþreyingu varðar er mjög nauðsynlegt að X – Box leikjatölva sé á svæðinu auk sjónvarps og út- varps. Þá er krafist rólegs andrúmslofts í b ú n i n g s h e r - bergjunum og að þau séu ennfremur upphituð. Snoop Dogg leggur mikið upp úr hreinlæti á tónleika- ferðum og kærir sig ekki um skítuga að- stöðu. freyrgigja@frettabladid.is SNOOP DOGG Á TÓNLEIKUM Meðal hluta sem rapparinn vill hafa klára inn í búningsherberginu sínu er einn pakki af Fisherman’s Friends og Hubba Bubba Bubble tyggjópakki 30 28. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR „Þetta var orðið fínt. Ég stend í stórræðum með fyrirtækið mitt, skólann og allt það sem ég er að gera. Idolið varð því að víkja,“ segir Þorvaldur Bjarni Þorvalds- son, sem hætti dómarastörfum í Idol-stjörnuleit. „Ég er líka að semja nýjan söngleik svona í framhaldi af Ávaxtarkörfunni, sem stendur einmitt í stórræðum um þessar mundir. Þetta er fjöl- skyldusöngleikur með vinnuheitið Hafið bláa hafið og gerist neðan- sjávar – svona einhvers konar sjávarréttasöngleikur,“ segir Þor- valdur Bjarni í gamansömum tón. „Idolið varð að víkja þar sem að það á að lengja það. Fleiri þætt- ir verða og núna er stórt fyrirtæki í kringum þetta.“ Þorvaldi Bjarna líst vel á arf- taka sína í dómarasætinu, þá Ein- ar Bárðarson og Pál Óskar Hjálmtýsson. „Þetta eru engar smá bombur sem eiga aldeilis eft- ir að standa sig vel.“ ■ fiorvaldur í sjávarréttasöngleik ÞORVALDUR BJARNI Er hættur sem dómari í Idolinu en stefnir að því að frumsýna nýj- an fjölskyldusöngleik í desember. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Magnús Jóhannesson Tryggvi Guðmundsson og Ragnar Sigurðsson. Rúmar 200 milljónir. SNOOP DOGG: VILL HAFA SNYRTILEGT Í KRINGUM SIG Kampavín og kjúklingar efstir á lista Dótið? Sundlaugarvörðurinn eða Safety Turtle Pool Alarm System. Sem er? Bráðsniðugt tæki sem hentar þeim sem eiga börn og sundlaug. Tækið er sérstaklega hannað til að vernda lítil forvitin börn, sem eiga það til að sulla í vatni þegar fullorðnir eru ekki nálægt, frá drukknun. Hvernig virkar tækið? Armband er sett utan um úln- lið barns. Það fer lítið sem ekkert fyrir því, er svipað að stærð og úr. Móðurstöð er komið fyrir nálægt sundlauginni sem lætur svo vita ef barnið stekkur eða dettur út í sundlaugina með háværu pípi. Móðurstöð- in gengur fyrir rafmagni og henni er einfaldlega stungið í samband. Ef innstunga er ekki nálægt er óþarfi að fara á taugum því stöðin gengur einnig fyrir rafhlöðum. Nágrannarnir gætu einnig fengið sér álíka kerfi en það þarf ekki að örvænta. Hvert kerfi fyrir sig er stillt inn á sína eigin tíðni svo nálæg armbönd ættu ekki að hafa áhrif. Þó er hægt að hafa mörg armbönd tengt við eina móðurstöð. Kostir? Sundlaugarvarðar-armbandskerfið þarf ekki að festa við einhvern einn stað heldur er hægt að flytja það á milli staða. Það hentar því vel fyrir þá sem ætla í sumarfrí eða til ættingja sem eiga sundlaug. Armbandið er afar einfalt í notkun og það helst kyrfilega á barninu þar sem það þarf lykil til að opna það og loka. Þannig losnar það ekki af þótt börnin séu að ólmast og lítil sem engin hætta á að það týnist. Eitt verður þó að hafa í huga þegar armbandið er notað. Það kemur ekki í veg fyrir að barn geti drukknað. Því verður að fylgjast vel með ef tækið byrjar að pípa og hlaupa strax til. Tækið hentar einnig ágætlega þar sem heitir pottar eru en það má ekki nota í saltvatni. Hvað kostar það? Sundlaugarvörðurinn kostar tæpa 110 dollara eða rúmar sjö þúsund krónur. Allar nánari upplýsingar um það má finna á heimasíðunni www.smarthome.com. DÓTAKASSINN ...fær innkaupadeild Sjónvarps- ins fyrir skjót viðbrögð og að skella stúlkunni í Kaffihúsinu, The Girl in the Café, á dagskrá. Myndin var að hluta til tekin upp hér á landi. HRÓSIÐ Björgólfur Takefusa stórslasaði markmann Sauma þurfti sjö spor í punginn MEÐAL ÞESS SEM SNOOP VILL: Vatn Te Fisherman’s Friends Flaska af Hennessey Ferskir ávextir Kassi af kleinuhringjum Kartöfluflögur X – box tölva Útvarp Sjónvarp 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Lárétt: 1 lúi, 6 bætti við, 7 tveir eins, 8 ármynni, 9 virti, 10 fataefni, 12 ærða, 14 uppi- staða, 15 kextegund, 16 fæddi, 17 óskaði, 18 formóðir. Lóðrétt: 1 drykkja, 2 blóm, 3 teppi, 4 varla, 5 gott eðli, 9 leiðtogi, 11 litla eyju, 13 eyðimörk, 14 fugl, 17 prófgráða. Lausn Lárétt: 1þreyta, 6jók,7rr, 8ós,9mat,10tau, 12óða,14lón,15lu,16ól,17bað,18 amma. Lóðrétt: 1þjór, 2rós,3ek,4trauðla,5art, 9 maó,11hólm,13auðn,14lóa,17ba.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.