Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 8
1 Í hvaða breska fyrirtæki hefur Lyf ogheilsa keypt 70 prósenta hlut?
2 Hvaða stofnun ætlar að gera úttekt á að-gerðum hér á landi gegn peningaþvætti?
3 Hvar verða ólympíuleikarnir haldnir árið2008?
SVÖRIN ERU Á BLS. 42
VEISTU SVARIÐ?
8 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Árás á hindúamusteri í Uttar Pradesh:
Sex uppreisnarmenn skotnir
INDLAND, AP Sex íslamskir upp-
reisnarmenn týndu lífi í umsátri
eftir að hafa ráðist inn í
hindúamusteri á Norður-Indlandi
í fyrradag.
Einn þeirra beið bana þegar
hann sprengdi sig í loft upp til að
rjúfa stálhlið sem lokaði musterið
af. Hinir fimm réðust þá til inn-
göngu og voru komnir í um fimm-
tíu metra fjarlægð frá helgasta
dómi musterisins þegar öryggis-
verðir skutu þá til bana.
Langvinnar deilur hafa staðið
um musterið sem er í borginni
Ayodhya í Uttar Pradesh hérað-
inu. Árið 1992 sprengdu hindúar
upp mosku frá 16. öld og hrintu
þannig af stað ofbeldisfullum trú-
ardeilum í borginni sem hafa skil-
ið tvö þúsund manns eftir í valn-
um. Hindúaleiðtogar halda fram
að moskan hafi verið reist á rúst-
um helgs hindúamusteris og að
þetta sé fæðingarstaður Rams,
eins heilagasta guðs hindúa.
Múslimar segja hins vegar enga
sönnun fyrir þessu. Deilan er enn
fyrir indverskum dómstólum.
Þrír öryggisverðir særðust í
árásinni en enginn lést úr þeirra
röðum. ■
Flutningur opinberra verkefna út á land:
Frumkvæ›i nor›anmanna gott fordæmi
RÍKISSTÖRF Stjórn Kaupfélags Ey-
firðinga hefur lýst sig tilbúna til
að veita hundruðum milljóna
króna til að fjölga opinberum
störfum, og störfum almennt, á
Akureyri. Viðræður eru hafnar
á milli KEA og iðnaðarráðuneyt-
isins um hugsanlegan flutning
stofnana og verkefna ráðuneyt-
isins til Akureyrar og í næstu
viku ræða forsvarsmenn KEA
við Árna M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra um flutning opin-
berra verkefna til Akureyrar.
Valgerður Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, seg-
ir frumkvæði stjórnar Kaupfé-
lags Eyfirðinga afar áhugavert
og skapi gott fordæmi. „Mér vit-
anlega hefur félag í eigu al-
mennings ekki áður boðist til að
koma að fjármögnun á flutningi
opinberra starfa frá höfuðborg-
arsvæðinu og út á land. Kostn-
aður við flutninginn hefur í
gegnum tíðina haft letjandi
áhrif á ríkið og þótt ýmislegt
takmarki slíkan flutning þá eru
hugmyndir KEA mjög áhuga-
verðar og ég fer betur yfir þau
tækifæri sem í stöðunni eru með
forsvarsmönnum félagsins,“
segir Valgerður.
- kk
Hugmyndir um ni›-
urrif húsnæ›is Vistors
Í Gar›abæ eru uppi hugmyndir um a› rífa hús lyfjafyrirtækisins Vistor til a›
r‡ma fyrir stækkun mi›bæjarins. Minnihlutinn vill a› tillögur flessa efnis
ver›i nú flegar lag›ar á hilluna. Vistor vill ekki færa sig um set.
BÆJARMÁL Lögfræðistofa lyfjafyr-
irtækisins Vistor í Garðabæ hefur
sent bæjaryfirvöldum þar bréf
vegna hugmynda Klasa hf. um að
rífa hús fyrirtækisins og byggja
íbúðir og verslanir. Bæjarstjórn
gerði í apríl samning við Klasa hf.
um að þróa deiliskipulag fyrir
miðbæinn og gerir tillaga fyrir-
tækisins sem lögð var fram á dög-
unum ráð fyrir útvíkkun miðbæj-
arins í átt að Hafnarfjarðarvegi
og þar með yfir lóð Vistors.
„Í bréfinu fóru þeir fram á að
Garðabær felldi út úr skipulags-
hugmyndum sínum að húsið verði
fjarlægt. Þeir tala um það í þessu
bréfi að ekkert samráð hafi verið
haft við þá um þetta mál, þetta er
mjög ankannalegt,“ segir fulltrúi
minnihlutans Einar Sveinbjörns-
son. Á bæjarráðsfundi á þriðjudag
lagði Einar til að hugmyndir um að
stækka miðbæinn í átt að Hafnar-
fjarðarvegi yrðu nú þegar lagðar á
hilluna. „Þessi hugmynd gengur
bara alls ekki upp ef að Vistor vill
vera þarna áfram og ég skil það
vel, þeir eru í framtíðarhúsnæði
og með 110 starfmenn,“ segir Ein-
ar. Tillaga hans var felld með
tveimur atkvæðum gegn einu.
Formaður bæjarráðs, Erling
Ásgeirsson, vill gefa Klasa vinnu-
frið en fyrirtækið á að skila skipu-
lagstillögum í árslok. „Þessi til-
laga nær aldrei fram að ganga
nema með fullu samráði við
Vistor,“ segir Erling. „Þetta er
stormur í vatnsglasi. Hugmyndir
að breytingu á Vistor reit er al-
gjörlega á ábyrgð Klasa og háð
samningum við Vistor, bæjarráði
að meinalausu, nái það ekki fram
að ganga. Bæjarráð Garðabæjar
vill alls ekki reka Vistor úr bæn-
um, það er af og frá. Þar af leið-
andi tel ég að þessi bókun Einars
sé ótímabær og til þess að gera
málið tortryggilegt,“ segir Erling.
Hreggviður Jónsson, forstjóri
Vistor, segir að fyrirtækið sé ekki
tilbúið til að færa sig um set.
„Okkur líður mjög vel þarna og
erum með lóð sem gefur okkur
tækifæri á stækkun.“ Hann segist
ekki hafa miklar áhyggjur af til-
lögum Klasa enda séu þær ein-
ungis á hugmyndastigi og á kynn-
ingarfundum með bæjarbúum
hafi ekki verið tekið vel í þær. „Ég
held að það gefi auga leið að ef
bæjarbúar eru neikvæðir gagn-
vart þessu fer þetta ekki í gegn.
Við sendum bréfið einungis vegna
þess að verið var að kynna breyt-
ingarnar og óskað eftir athuga-
semdum. Við vorum bara að
minna á okkur,“ segir Hreggviður.
rosag@frettabladid.is
Mannréttindi í Evrópu:
Sk‡rsla ger›
um Ísland
MANNRÉTTINDI Mannréttindafull-
trúi Evrópuráðsins, Alvaro Gil-
Robles, lauk í gær þriggja daga
opinberri heimsókn hér á landi.
Hann mun skrifa skýrslu um
stöðu mannréttinda á Íslandi
sem kynnt verður fyrir ráð-
herranefnd og þingi Evrópuráðs-
ins í september. Fulltrúinn hitti
forystumenn verkalýðshreyfing-
arinnar og ýmissa félagasam-
taka, umboðsmann Alþingis og
ráðherra meðan hann staldraði
hér við. Hann kynnti sér einnig
íslensk fangelsi og móttökustöð
fyrir hælisleitendur.
- rsg
Menntaskólinn Hraðbraut:
Fyrsta
útskriftin
MENNTAMÁL Menntaskólinn
Hraðbraut útskrifar fyrstu
stúdentana á laugardag en skól-
inn hóf störf árið 2003 og býður
upp á nám til stúdentsprófs á
tveimur árum. Nemendur í
fyrsta útskriftarárgangnum eru
36 en skólinn hefur vaxið hratt
og munu 140 nemendur hefja
nám í skólanum næsta haust.
„Þetta hefur tekist frábærlega
vel. Nemendur eru ánægðir, en
námið er auðvitað erfitt, það er
ekkert hægt að neita því,“ segir
Ólafur Haukur Johnson skóla-
stjóri Menntaskólans Hrað-
braut. - rsg
Samfylkingin Akureyri:
Loka›
prófkjör
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Stjórn
Samfylkingarinnar á Akureyri
hefur ákveðið að efna til próf-
kjörs á meðal um 800 félags-
manna vegna sveitarstjórnar-
kosninganna á næsta ári. Jón
Ingi Cesarsson, formaður stjórn-
arinnar, segir að stefnt sé að
bindandi prófkjöri fyrir fjögur
efstu sætin og þau sæti skiptist
jafnt á milli kynja. „Vegna sam-
einingarkosninganna í haust er
ekki hægt að hafa prófkjörið
fyrr en síðla nóvembermánaðar
en líklega verður um póstkosn-
ingu að ræða og opinn kjörstað
síðasta daginn sem skila ber at-
kvæðum.“
- kk
Hagstofa Íslands:
Gistinóttum
fjölgar
FERÐAÞJÓNUSTA Um fimm prósent
aukning hefur orðið á gistinótt-
um á hótelum landsins það sem
af er árinu miðað við síðasta ár.
Þá töldust gistinætur alls 82.550
talsins en eru nú 86.680.
Fjölgaði þeim hvað mest á
Suðurnesjum, Vesturlandi og
Vestfjörðum eða um 18 prósent
en aðeins 13 prósent á Austur-
landi og 11 prósent fyrir norðan
land. Mest fjölgunin er vegna
Íslendinga sem gista oftar á
heilsárshótelum en áður var en
erlendum ferðamönnum fjölgar
þó einnig lítillega. - aöe
UPPREISNARMAÐUR LIGGUR Í VALNUM
Hatrammar deilur hafa staðið í áraraðir
milli hindúa og múslima um yfirráð yfir
helgum stað í borginni Ayodhya.
IÐNAÐAR- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA Val-
gerður segist afar ánægð með hvernig
starfsemi KEA hefur verið að þróast og
hversu mikill kraftur sé í starfseminni.
GARÐABÆR „Stormur í vatnsglasi,“ segir formaður bæjarráðs um deilurnar.
LEIÐRÉTTING
Rangt var farið með nafn
Hreiðars Hermannssonar í frétt
blaðsins í gær. Hann var þar
ranglega nefndur Heiðar og er
beðist velvirðingar á því.
HÓTEL GEYSIR