Fréttablaðið - 07.07.2005, Síða 10
7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Malarflutningabifreið valt á Siglufirði:
Mildi a› ekki hlaust af stórslys
ÓHAPP Fulllestuð mannlaus malar-
flutningabifreið rann stjórnlaust
niður brekku á Siglufirði í fyrra-
dag; fór fram af steyptum vegg og
stöðvaðist á hvolfi á húsvegg.
Lögreglan á Siglufirði segir mildi
að ekki hafi orðið slys á fólki en
börn eru oft að leik á þeim stað
þar sem bifreiðin hafnaði.
Malarflutningabifreiðin var í
gangi þegar hún rann af stað en
talið er að handbremsa hafi gefið
sig. Ökumaðurinn reyndi að kom-
ast inn í bifreiðina eftir að hún fór
af stað en varð frá að hverfa sök-
um þess hve mikill hraði var á bif-
reiðinni.
Húsið sem bifreiðin stöðvaðist
á skemmdist nokkuð en það er
einkum notað til sumardvalar og
var mannlaust.
Gatan sem malarflutningabif-
reiðin valt fram af ber við mæni
húsanna neðan götunnar. Íbúarnir
hafa þrýst á bæjaryfirvöld um að
vegrið verði sett á götuna til varn-
ar því að þeir fái ökutæki inn á
gólf hjá sér og segir lögreglan að
íbúum næstu húsa hafi brugðið
mjög við óhappið.
- kk
Farartæki yfir löglegri hæð í Hvalfjarðargöngum:
Hafa valdi› tugmilljóna tjóni
TJÓN „Því miður er það allt of al-
gengt að keyrt sé undir burðar-
bita í Hvalfjarðargöngunum og
frá opnun ganganna hefur tjónið
numið af þeim völdum tugum
milljóna,“ segir Atli Rúnar Hall-
dórsson sem vinnur að kynning-
armálum fyrir Spöl.
„Ástandið var mjög slæmt á
tímabili, en mánuðina desember-
janúar sl. voru sjö tilvik þar sem
skemmdir voru unnar vegna
ólöglegrar hæðar. Eftir þær
hremmingar ákvað Spölur að
senda út fréttatilkynningu til
flutningafyrirtækja, alþingis-
manna og fjölmiðla þar sem
þetta vandamál var reifað. Við
bentum meðal annars á að viður-
lög eru óvenju lág hérlendis mið-
að við það sem gerist erlendis.
Viðurlögin hafa ekki hækkað
en ástandið hefur skánað.
Myndavélakerfið er orðið svo
gott hjá okkur að það telst til
undantekninga ef ekki næst í
brotavald. Þrátt fyrir að ástandið
hafi skánað er vandinn fjarri því
horfinn. Það eru ekki nema
nokkrir dagar frá síðasta til-
viki.“ -íös
Nýtt bryggjuhverfi í Reykjavík:
Slippurinn ver›ur
menningarsvæ›i
SKIPULAGSMÁL Nýtt bryggjuhverfi
mun rísa á slippasvæðinu við
Mýrargötu í Vesturbæ Reykjavík-
ur árið 2010. „Við erum að fara að
endurskipuleggja allt svæðið og
byggja fimm hundruð nýjar íbúð-
ir. Þarna verður blanda af íbúðum
og atvinnustarfsemi, veitinga-
staðir og fiskmarkaður. Vonandi
verður iðandi mannlíf á bryggjun-
um, þannig að Reykvíkingar end-
urheimti þetta nána samband við
sjóinn,“ segir Dagur B. Eggerts-
son, formaður skipulagsráðs
borgarinnar, en hann er einnig í
stjórn stýrihóps Mýrargötu-
slippasvæði verkefnisins.
Í vor voru haldnir kynningar-
fundir á svæðinu um hverfið og
nú er verið að vinna að nákvæm-
ari áætlun að því í deiluskipulagi
borgarinnar.
„Fyrst þarf að flytja slippinn,
hreinsa svæðið upp og setja Mýr-
argötu í stokk. Við höfum áætlað
að þetta taki tvö til þrjú ár, að
fyrstu íbúarnir flytji inn 2008 eða
9. Þetta getur orðið gríðarlega
skemmtilegt svæði,“ segir Dagur.
Borgaryfirvöld sjá fyrir sér að
hverfið verði framlenging á
menningarsvæðinu í miðborginni,
en á svæðinu verður einnig smá-
bátaútgerð og önnur hafnarstarf-
semi. - rsg
HAFNAÐI Á HÚSINU Fulllestuð
vó malarflutningabifreiðin um
25 tonn og að mati eigandans
er hún ónýt eftir óhappið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
K
LEYFILEG HÆÐ AFTANÍVAGNA Ekki er leyfilegt að aka um Hvalfjarðargöngin með farartæki
sem er hærra en 4,2 metrar.
BRYGGJUHVERFIÐ Smábátaútgerð verður innan um veitingastaði og íbúðarhúsnæði.
TILLAGA AÐ RAMMASKIPULAGI Mýrargata leggur þvert í gegnum hverfið en hún verður
lögð í stokk.