Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 14

Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 14
14 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Breskur og finnskur matur er gjörsamlega frábær ÁSTKÆRA YLHÝRA A› detta til hugar Fyrr á árum lét Bibba á Brávallagöt- unni gamminn geisa á öldum ljós- vakans og bætti afbökunum á orða- tiltækjum í sarp landans, sem virðist þó stundum vera að bera í bakka- fullan lækinn. Mjög vinsælt er til dæmis að detta eitthvað til hugar frekar en að detta í hug eða koma til hugar. Þá heyrist eitthvað í líkingu við: „Mér myndi ekki detta til HUUUUgar að...“. Ekki hefur hins vegar bólað á setningum á borð við: „Hei, mér var að detta eitt til hug- ar...“. Kannski er það neitunin sem gerir gæfumuninn, enda dettur aldrei neinum neitt til hugar, nema kannski Bibbu. magnus@frettabladid.is Það var gaman og tilkomumikið að fá að ganga í gegnum jarðgöngin um Almannaskarð í gærmorgun. Gangandi umferð um göngin er al- mennt bönnuð en við fengum und- anþágu og gengum í gegn í fylgd lögreglu. Umferð var hleypt um göngin fyrir aðeins nokkrum dögum og og ef hægt er að tala um að jarðgöng séu falleg þá eru þessi glæsileg. Við tókum því rólega í gærmorgun og hófum ekki gönguna fyrr en klukkuna vantaði fimmtán mínútur í níu. Þegar í gegn var komið var skýjað og hæglætis veður en eftir svolítinn spöl brast á með suðvestan átt og skúrum. Vind lægði svo á ný og und- ir lok göngunnar var komið ágætis veður á ný. Þegar veðrið er vont vex okkur ás- meginn í göngunni, við stoppum sjaldnar og örkum hraðar yfir en vanalega. Því má segja að vondu veðri fylgja bæði kostir og gallar. Í gær hljóp fríður flokkur fólks fram á okkur en þar voru á ferðinni hlauparar úr Vináttuhlaupinu sem hlaupa með logandi kyndil hringinn í kringum landið. Við tókum við kyndl- inum og gengum með hann nokkra kílómetra og var sannur heiður af. Í dag göngum við frá Reyðará að Geithellum sem er rúmlega 28 kíló- metra leið. Kærar kveðjur, Guðbrandur og Bjarki. Gengi› í gegnum n‡ju göngin HALTUR LEIÐIR BLINDAN: PÓSTKORT FRÁ BJARKA OG GUÐBRANDI nær og fjær „Vi› höfum ekki fengi› svar vi› óskum um hækkun afnotagjalda og flá er ekki anna› a› gera en a› fara í fless- ar a›ger›ir.“ GUÐMUNDUR GYLFI GUÐMUNDSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI FJÁRMÁLASVIÐS RÍKISÚTVARPSINS, Í FRÉTTABLAÐINU. „fiú getur stillt klukk- una flína eftir opnun- artímanum. fia› er grundvallaratri›i í svona rekstri a› opna á réttum tíma.“ BJÖRN VÍFILL ÞORLEIFSSON, VEIT- INGAMAÐUR Á RÁNNI Í KEFLAVÍK, Í MORGUNBLAÐINU. OR‹RÉTT„ “ Fjöldi gesta streymir nú til Nes- kaupstaðar til þátttöku í Landsmóti harmonikuunnenda sem hefst þar í kvöld og stendur til sunnudags. Nánast allir gististaðir eru full- bókaðir en þrettán af nítján aðild- arfélögum Landssambands harm- onikkuunnenda hafa tilkynnt þátt- töku, auk þess sem stórsveit frá Færeyjum sækir mótið sem og fimm unglingasveitir. Landsmót eru haldin á þriggja ára fresti og draga til sín æ fleiri áheyrendur. Síðasta mót var haldið á Ísafirði og sóttu það um á milli átta hundruð og eitt þúsund gestir. Búist er við að mótsgestir nú verði um eða yfir eitt þúsund. Félag harmonikuunnenda á Norðfirði heldur mótið nú en félag- ið fagnar 25 ára afmæli sínu. Lag mótsins heitir Á vorléttum vængjum og er það vals eftir Norð- firðinginn Þorlák Friðriksson við ljóð Helga Seljan. Heiðursgestur mótsins er Sören Brix, átján ára dani, sem hefur tvisvar orðið Dan- merkurmeistari í harmonikuleik. Víst er að dillandi harmoniku- tónar munu óma næstu þrjá daga innan norðfirska fjallahringsins og viðbúið að margur muni draga fram dansskóna. - eg HORFT YFIR NESKAUPSTAÐ Fótbolta- völlurinn fyrir miðri mynd verður notaður sem stæði fyrir húsbíla. Landsmót harmonikuunnenda hefst í kvöld: Nikkurnar flandar í Nor›fir›i Úlfar Eysteinsson mat- reiðslumeistari segir Berlusconi og Chirac vaða í villu þegar þeir segja breskan og finnsk- an mat vondan. Milli- ríkjadeila er í uppsigl- ingu vegna orða þeirra. Almenningi í Bretlandi og Finn- landi er nú í nöp við Frakkland og Ítalíu og þó sér í lagi við leiðtoga ríkjanna tveggja. Tilefnið er orð Chiracs Frakklandsforseta og Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, um að breskur og finnskur matur sé óætur. Ástandið í ríkjun- um er eldfimt og stappar nærri milliríkjadeilu. Stjórnmálamenn í Bretlandi og Finnlandi hafa ekki viljað tjá sig um yfir- l ý s i n g a r Berlusconis og Chiracs en leiðarahöfund- ar blaða hafa tekið tvímenning- ana á beinið. Úlfar Eysteinsson, matreiðslumeistari á Þremur frökkum, skilur úlfúð Breta og Finna enda veit hann sem er að um fátt þykir þjóðum vænna en matinn sinn. Og hann vísar ummælum leið- toganna tveggja út í hafsauga. „Ég hef borðað mína bestu máltíð í Bretlandi og unnið með finnsk- um kokkum sem eru hreinir snill- ingar,“ segir Úlfar, þar sem hann stendur yfir pottunum sínum á Þremur frökkum. Og eins og það sé ekki nóg hefur Úlfar misjafna sögu að segja af frönskum kokk- um. „Ég hef orðið hungurmorða í Frakklandi því ég fann ekki nógu góðan veitingastað.“ Úlfar átelur Berlusconi og Chirac fyrir að hafa sagt þetta en býst helst við því að þeir hafi ver- ið búnir að fá sér aðeins í tána þegar stóru orðin féllu. „Chirac gagnrýndi líka haggis sem er þjóðarréttur Skota. Það má ekki dæma matreiðslu heillar þjóðar út frá svona löguðu. Það er til dæmis ekki hægt að segja að það sé bara ógeðslegur matur á Ís- landi af því að við höfum svið og blóðmör.“ David Barnwell, golfkennari hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, er breskur að uppruna en hefur búið á Íslandi um árabil. Honum sárn- ar ekki orð Chiracs en segir þau engu að síður þvælu. „Það er hægt að fá frábæran mat í Englandi og það má ekki miða matreiðsluna þar við aldagamla þjóðarrétti sem kunna að bragðast einkennilega,“ segir hann. Hin finnska Katri Raakel Tauriainen, sem hefur getið sér gott orð í Inn- lit/útlit á Skjá ein- um, er sama sinnis og David og Úlfar og bendir á að í sínu f ö ð u r - l a n d i t í ð k i s t m e ð a l a n n a r s að baka brauð með fiski inn í. „Það þýðir ekkert að dæma finnska matargerð út frá slíkum réttum,“ segir hún. „Í Finnlandi eru mjög margir æðislega góðir veitingastaðir og finnskir mat- reiðslumeistarar hafa náð góðum árangri á alþjóða vettvangi.“ Katri sárnaði ekki ummæli þjóð- arleiðtoganna tveggja, hún hló frekar að vitleysunni í þeim. bjorn@frettabladid.is „Ég hef aldrei óttast þessa menn“ Vítisengill Íslands í fangelsi DAVID „Það er hægt að fá frábæran mat í Englandi.“ KATRI „Í Finnlandi eru mjög margir æðis- lega góðir veitingastaðir.“ ÚLFAR EYSTEINSSON „Ég borðaði mína bestu máltíð í Bretlandi og hef unnið með finnskum kokkum sem eru hreinir snillingar.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M G O T T F Ó LK M cC A N N M YN D /E LM A G U Ð M U N D SD Ó TT IR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.