Fréttablaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 18
20%
192%
‘80 ‘85 ’90 ‘95 ’00
18 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Tækifæri til ferðalaga á hagstæðum
kjörum hafa sjaldan eða aldrei áður
verið jafn aðgengileg Íslendingum eftir
að lággjaldaflugfélagið Iceland Express
hóf starfsemi og samkeppnisaðili
þeirra hér á landi lækkaði verð sín.
Geta þess vegna ævintýragjarnir ferða-
langar valið úr miklum fjölda ferða-
laga víða um heiminn á kostakjörum
með því að nýta sér þær fjölmörgu
leitarvélar sem sérhæfa sig í flugferð-
um og ferðalögum. Er þar hægt að
finna kostakjör hvern einasta dag og
afar auðvelt að setja saman pakkaferð
með litlum tilkostnaði.
Þrjár þær stærstu eru Expedia.co.uk,
Travelocity.co.uk og Orbitz.com en auk
þeirra eru Travelprice.es, Lastminu-
te.com, Kayak.com, Sidestep.com og
Mobissino.com einkar góðar. Á öllum
er hægt að leita ferða frá nánast
hvaða flugvelli sem er hvert í heim
sem er og má þar finna ýmis tilboð
sem vandfundin yrðu meðal íslenskra
ferðaskrifstofa. Nýleg dæmi eru viku-
ferð á fimm stjörnu hótel í Egypta-
landi á 38 þúsund frá Bretlandi.
Tveggja vikna ferð til Dóminíska lýð-
veldisins á hóteli með öllu innifalið á
tæpar 60 þúsund krónur frá Bretlandi
og svo má lengi telja.
Þrátt fyrir þann aukakostnað sem fylg-
ir því að fljúga héðan geta áhugasamir
víkkað sjóndeildarhring sinn umtals-
vert með hagkvæmum hætti með því
að fylgjast með þeim tilboðum sem
finnast á viðkomandi vefsíðum.
- aöe
Sumarleyfi á tilbo›sver›i
ERLENDAR FERÐALEITARVÉLAR VÆNLEGUR KOSTUR:SKULDASTAÐAN
> SKULDIR HEIMILA SEM HLUTFALL AF
RÁÐSTÖFUNARTEKJUM 1980-2004
og hagur heimilanna
Aðeins 599 kr.
5 690691 2000
08
Lífsreynslusaga • Heils
a • • Matur
• Krossgáturg•á~t
Persónuleikaprófið
26. tbl. 67. árg., 6. júlí
2005.
Aðeins
599 kr.
Notar þú rétta stærð
af brjóstahaldara?
Þannig mælir þú m
eð
hjálp Vikunnar!
Alma
Guðmundsdóttir
um frægðina,
ástina og sam-
skiptin við hinar
Nylon-píurnar
Lífið
breyttist
á einni
nóttu!
Það sem þú
vissir ekki ...
Þórhildur
Þorleifsdóttir
Hvernig
vinkona ertu?
Skoðaðu týpurnar!
Er kærastinn að
gera þig vitlausa?
Þannig áttu að bre
gðast við!
Konurnar á ba
k við
aðþrengdar hú
smæður
Þau kynntust á Net
inu!
Og hún ætlar að fly
tja til hans
góð ráð
fyrir þreytta
fætur
10
Íslensk
fjölskylda í
fátækasta
ríki heims
Glæsisýning í
Skautahöllinni
00 Vikan26.
tbl.'05-1
24.6.2005
11:15 Pag
e 1ný og fersk í hv
erri viku
Náðu í eintak á næsta sölustað
Hvað skal varast við kaup
gegnum netið?
*
*
*
*
*
Höfuðborgarsvæðið
Ársgjald 55.000 Golfklúbbur Reykjavíkur 40.000 Golfklúbbur Bakkakots
Vallargjald 6.000 Golfklúbburinn Oddur 3.300 Golfklúbbur Bakkakots
Reykjanes
Ársgjald 46.000 Golfklúbbur Suðurnesja 28.000 Golfklúbbur Sandgerðis
Vallargjald 3.500 Golfklúbbur Grindavíkur 1.800
Vesturland
Ársgjald 45.000 Golfklúbburinn Leynir 17.500 Golfklúbbur Staðarsveitar
Vallargjald 3.000 Golfklúbburinn Leynir 1.800 Golfklúbburinn Mostri
Vestfirðir
Ársgjald 34.000 Golfklúbbur Ísafjarðar 15.000 Golfklúbbur Hólmavíkur
Vallargjald 2.000 Golfklúbbur Ísafjarðar 1.000 Golfklúbbur Bíldudals
Norðvesturland
Ársgjald 35.000 Golfklúbbur Sauðárkróks 14.000 Golfklúbbur Skagastrandar
Vallargjald 2.000 Golfklúbbur Sauðárkróks 1.000 Golfklúbbur Siglufjarðar
Norðausturland
Ársgjald 42,000 Golfklúbbur Akureyrar 25,000 Golfklúbbur Ólafsfjarðar
Vallargjald 3.000 Golfklúbbur Akureyrar 1.500 Dalvík, Ólafsfjörður, Ásbyrgi
Austurland
Ársgjald 30.000 Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs 19.000 Golfklúbbur Djúpavogs
Vallargjald 2.000 Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs 1.000 Golfklúbbur Seyðisfjarðar
Suðurland
Ársgjald 40.000 Golfklúbbur Vestmannaeyja 10.000 Golfklúbburinn Vík
Vallargjald 2.800 Golfklúbbur Þorlákshafnar 1.500 Vík, Laugarvatn
Dýrast Ódýrast
NEYTENDUR Það er góð ástæða fyrir
því að talað er um bakteríu eða
sýki þegar fjallað er um þann sí-
stækkandi hóp fólks sem stundar
golfíþróttina sér til heilsubótar og
ánægju. Þeim sem verst er komið
á um geta ekki á sér heilum tekið
fyrr en einn hringur á vellinum er
undir belti. Er áhugi margra svo
ákafur að heilu fjölskyldurnar
sýkjast í kjölfarið sem útskýrir
hvers vegna golf er mest vaxandi
íþrótt á landinu.
Gott dæmi um vinsældir
íþróttarinnar er að þrátt fyrir að
golfklúbbar í nágrenni höfuðborg-
arsvæðisins hafi undanfarin ár
gert sitt besta til að fjölga með-
limum giskar þjónustustjóri Golf-
sambands Íslands, Hinrik Hilm-
arsson, á að allt að þúsund um-
sóknum hafi þurft að hafna á
þessu ári.
„Óskastaðan er að hér í ná-
grenni höfuðborgarinnar væru
þrír 18 holu golfvellir til viðbótar.
Þá fyrst væri hægt að gera öllum
sem áhuga hafa til hæfis og álag á
þá golfvelli sem fyrir eru kæmist
í eðlilegt horf.“
Eins og sakir standa liggja fyr-
ir áætlanir um stækkun tveggja
valla á höfuðborgarsvæðinu. Ann-
ars vegar hjá í Garðabæ og í Mos-
fellsbæ. Það hrekkur þó skammt
enda bætast tugir ef ekki hund-
ruðir manna í hóp golfáhuga-
manna ár hvert.
Verðlag á höfuðborgarsvæðinu
endurspeglar þessa eftirspurn og
eru vallar- og ársgjöld þar tvö- til
þrefalt dýrari en á öðrum völlum
landsins. Þeir eru líka að mestu
leyti stærri og betri enda meiri-
hluti valla á landsbyggðinni að-
eins níu holur og viðhald og um-
hirða minni en gengur og gerist
hjá stærri klúbbunum. Þó eru
undantekningar á því og vellirnir
á Hellu og Akureyri jafnast að
mestu á við það sem best gerist
fyrir sunnan.
Á höfuðborgarsvæðinu eru
enn fremur einu klúbbarnir sem
heimta sérstakt inntökugjald af
nýjum meðlimum en engar hald-
bærar skýringar fengust á því
gjaldi nema að á flestum stöðum
er innifalið námskeið fyrir nýliða
áður en leyfi fæst til að spila á
stærri völlunum.
albert@frettabladid.is
Allt a› flúsund manns á höfu›borgarsvæ›inu eru á bi›lista í sumar til a› ger-
ast me›limir í golfklúbbi. firír 18 holu golfvellir flyrftu a› vera til vi›bótar
í nágrenni Reykjavíkur til a› anna eftirspurn.
Golfklúbbar höfnu›u
flúsund umsóknum
Bílalán Lýsingar:
Reiknivél bilu›
NEYTENDUR Í
síðustu viku
gerði Neyt-
e n d a s í ð a n
úttekt á
þeim bíla-
lánum sem í
boði eru fyr-
ir almenning
hér á landi
en þegar til
kom reynd-
ust upplýsingar þær er neytend-
ur fá á vefsíðum lánafyrirtækja
ekki alls kostar réttar og vart
samanburðarhæfar.
Í þeirri úttekt reyndust bíla-
lán Lýsingar hlutfallslega dýrust
en komið hefur í ljós að reiknivél
fyrirtækisins á netinu gefur vit-
lausa útreikninga. Er verið að
vinna að lagfæringu og standa
vonir til að eftir helgina verði
aftur hægt að reikna út réttar
upplýsingar um bílalán fyrirtæk-
isins. - aöe
Tékkhefti ó›um a› hverfa
NEYTENDUR Stakkaskipti hafa orð-
ið á greiðsluvenjum Íslendinga á
þeim tíu árum sem liðin eru síð-
an debetkort voru fyrst kynnt til
sögunnar en kortin eru komin
langleiðina með að leysa tékk-
heftin alfarið af hólmi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reiknistofu bankanna og Sam-
tökum banka og sparisjóða voru
skráðar tæpar 30 milljón tékka-
færslur á Íslandi 1993 en árið
eftir hófst fyrst útgáfa debet-
korta hér á landi. Rúmum tíu
árum síðar á síðasta ári voru
tékkafærslur aðeins ein og hálf
milljón meðan debetkortafærsl-
ur 2004 voru alls um 53 milljónir
talsins.
Landinn er afar framarlega
hvað þetta varðar að sögn Guð-
jóns Rúnarssonar hjá Samtökum
banka og sparisjóða en helstu ná-
grannaþjóðir nota tékkhefti enn í
talsverðum mæli og öll banka-
þjónusta hér á landi er því skil-
virkari en víða erlendis.
- aöe
ÁVÍSANIR Á UNDANHALDI Æ færri Íslendingar nota greiðslutékka í viðskiptum sínum.
ww
w
Alþjóðlegu neytendasamtökin, Consum-
er International, hafa tekið saman helstu
atriði sem hafa ber í huga þegar vörur
eða þjónusta er keypt gegnum netið en
nú loks hefur verslun á netinu tekið
þann kipp sem búist var við fyrir
nokkrum árum síðan.
Tæknisinnaðir nýjungagjarnir Íslendingar
eru framarlega í flokki þeirra sem kaupa
vörur í æ ríkari mæli gegnum netverslan-
ir. Öryggi flestra viðskipta þar er mun
tryggara en margur heldur og milljónir
manna kaupa þar vörur án vandkvæða á
degi hverjum. Hafi fólk sama fyrirvara á
sér þegar verslað er á netinu og í venju-
legri verslun er fátt sem komið getur
upp á. Þar að auki greiða flestir fyrir við-
skipti þar með kreditkortum og komi
upp vandamál getur neytandinn dregið
greiðslu eða neitað að greiða fyrr en við-
komandi vara eða þjónusta hefur skilað
sér eins og við var búist.
Consumer International telja fram fimm
atriði sem hafa skal í huga þegar kaup
standa fyrir dyrum:
Ekki trúa öllu sem þú lest: Margar vefsíður lofa gulli og grænum sem oftar en
ekki eru orðin tóm. Gamla máltækið um að sé það of gott til að vera satt á
alltaf við.
Gerðu samanburð: Leitið upplýsinga á fleiri en einu vefsetri og helst einnig í
venjulegum verslunum sem selja viðkomandi vöru.
Hver er seljandinn: Reyndu að finna út hver rekur vefverslunina enda sést þá
oft hvort um þekkt fyrirtæki er að ræða eður ei.
Eru uppgefnar upplýsingar ábyggilegar: Myndaðu þér þína eigin skoðun eftir
að hafa farið gegnum síðuna. Ef vafi leikur á leitaðu annað með viðskiptin.
Hver er áhættan: Ef viðskiptavinur þarf að gefa upp ýmsar persónulegar upp-
lýsingar er best að kanna hvernig farið er með þær upplýsingar. Sama gildir
hér að ef farið er fram á upplýsingar sem koma viðskiptunum ekkert við er mál
að staldra við.