Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 22
Upp með buxurnar
Íslandsbanki hefur keypt tíu prósenta hlut í nýstofnuðum
banka í Noregi. Bankinnn heitir Bank2 og sérhæfir sig í
endurfjármögnun á skuldum einstaklinga og lítilla og
meðalstórra fyrirtækja sem eru í tímabundnum greiðslu-
erfiðleikum.
Bankinn stefnir að því að marka sér sterka sér stöðu þeg-
ar kemur að því að endurfjármagna og endurskipuleggja
fjárhag fyrirtækja og einstaklinga. Menn voru að leika sér
að því að þýða yfir á mannamál hlutverk þessa banka
og kom þá fyrst í hugann að bankinn sinnti þeim sem
væru með allt niður um sig. Bankinn sæi því um að
girða upp um þá sem þannig væri ástatt fyrir. Það
þarf ekki að vera slæmur bisness, því sag-
an kennir að margir þeirra sem hafa náð
verulegum árangri í viðskiptum hafa áður
en tindinum er náð farið á hausinn oftar
en einu sinni eða lent í verulegum erfið-
leikum. Í þessu sambandi getur samt
verið hollt að minnast þess að eitt sinn
var fyrirtæki sem sérhæfði sig í fjárhags-
legri endurskipulagningu. Það lenti í erfiðleikum, því
kúnnarnir borguðu ekki.
Rann á lyktina
Útrásin heldur áfram, þrátt fyrir að skuggi neikvæðrar um-
ræðu í breskum fjölmiðlum sé yfir henni þessa dagana.
Eignarhaldsfélag Karls Wernerssonar og systkina hans sem
eiga Lyf og heilsu, keypti fyrirtæki í sölu á mark-
aðssetningu á ilmvötnum. Innkoma Karls á
markaðinn í Bretlandi þarf ekki að koma á
óvart, enda höfðu borist fregnir af því að hann
væri farinn að þefa af tækifærum í Bretlandi.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann rekur
inn nefið á breska markaðinn, því hann
kom að kaupum á Big Food Group
með Baugi og á hlut í Iceland-versl-
unarkeðjunni. Sala lyfja hefur verið
að taka miklum breytingum víða um
lönd og ekki ólíklegt að eigendur
Lyfja og heilsu hugsi sér frekari
landvinninga á þeim markaði.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.188,13
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 286
Velta: 1.786,93 milljónir
+0,30%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Mikill meirihluti, eða 77 pró-
sent þeirra sem keyptu sér íbúðir
á fyrstu þremur mánuðum ársins,
telur að verð á því húsnæði sem
viðkomandi keypti muni hækka á
næstu tólf mánuðum. Kemur
þetta fram í könnun sem IMG
Gallup hefur unnið fyrir Íslands-
banka.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
jókst um 0,7 milljarða króna í
mánuðinum og nam 62 milljörð-
um króna í lok hans sem jafngild-
ir 960 milljónum Bandaríkjadala
miðað við gengi í mánaðarlok.
Yfirtöku á Samherja er lokið.
91,64 prósent heildarhlutafjár í
Samherja í er nú í eigu Fylkis,
tengdra aðila sem hafa gert með
sér samkomulag um stjórnun og
rekstur Samherja og fjárhagslega
tengdra aðila.
22 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Helstu fyrirtækjum í
Kauphöllinni er spáð yfir
50 milljörðum í hagnað á
öðrum ársfjórðungi.
Burðarás skilar mestum
hagnaði vegna 15 millj-
arða hagnaðar af sölu
Eimskips. Þar á eftir
kemur KB banki með
rúmlega 11 milljarða
hagnað.
Hagnaður fyrirtækja á öðrum
ársfjórðungi tæplega fjórfaldast
frá sama tíma árið 2004 ef spár
bankanna ganga eftir. Íslands-
banki, KB banki og Landsbanki
spá fyrir um afkomu helstu
skráðu félaganna á öðrum árs-
fjórðungi og meðaltal þeirra spáa
er sýnt í töflu hér að ofan.
Burðarási er spáð mestum
hagnaði eða um 18,5 milljörðum.
Þar vegur þyngst 15 milljarða
söluhagnaður af sölu Eimskips til
Avion Group nýlega. KB
banki, sem skilaði methagnaði á
fyrsta ársfjórðungi, er spáð rúm-
um 11 milljörðum í hagnað á
tímabilinu. Skýrist hagnaðurinn
meðal annars af miklum þóknun-
artekjum vegna góðrar verkefna-
stöðu fyrirtækjaráðgjafar bank-
ans. Einnig telur gengishagnaður
af eign bankans í Bakkavör, beint
og óbeint, ágætlega en Bakkavör
hækkaði um 23 prósent á tímabil-
inu.
Mikil breyting hefur átt sér
stað á rekstri margra félaganna
milli ára og aðallega þá vegna
kaupa á öðrum fyrirtækjum.
Velta félaganna hefur því aukist
mikið frá fyrra ári, sem og
rekstrarhagnaður þeirra.
Aðeins Granda er spáð tapi á
tímabilinu en félagið skilaði
einnig tapi á sama tíma árið 2004.
Össur er eina félagið sem spáð
er samdrætti í hagnaði milli tíma-
bila.
Spár bankanna eru mjög sam-
stíga og munar aðeins fjórum
prósentum á hagnaðarspá þeirra
fyrirtækja sem allir spá fyrir um.
Íslandsbanki er bjartsýnastur,
svo KB banki og Landsbankinn
spáir fyrirtækjunum minnstum
hagnaði. - dh
Peningaskápurinn…
Actavis 41,20 +0,98% ... Bakkavör
39,00 +0,00%... Burðarás 16,00 +1,27%... FL Group 15,00 +0,67% ...
Flaga +0,00% ...Grandi 8,55 +0,59 ... Íslandsbanki 13,50 +0,00% ...
Jarðboranir +0,00 ... KB banki 547 +0,37% ... Kögun 58,20 -0,51% ...
Landsbankinn 17,20 +0,00% ... Marel 58,90 -0,00% ... SÍF 4,88 -0,20
...Straumur 12,15 -0,41% ... Össur 79,00 -0,63%
Hagnaður margfaldast milli ára
Icelandic Group +1,87%
Burðarás +1,27%
Actavis +0,98%
Mosaic Fashions -0,72%
Össur -0,63%
Kögun -0,51%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
LAUGAVEGI 87 • SÍMI 511 2004
Vegna sameiningar Dún og fiður hreinsunar og
Dún og fiður sérverslunar bjóðum við frítt með
hverri sæng sem kemur í hreinsun;
Nýtt ver utan um koddan
AFKOMUSPÁR BANKANNA
FYRIR ANNAN ÁRSFJÓRÐUNG
– Í MILLJÓNUM KRÓNA:
Actavis 1.459 1.219
Bakkavör 923 408
Burðarás 18.589 2.032
FL Group 2.143 903
Grandi -400 -95
Icelandic 264 128
Íslandsbanki 6.024 2.256
KB banki 11.380 3.508
Kögun 140 90
Landsbanki 3.634 1.785
Marel 214 113
Og Vodafone 240 118
SÍF 503 -296
Straumur 3.058 1.122
Tryggingamiðstöðin 1.722 208
Össur 273 284
Samtals: 50.166 13.783
Félag Hagnaðarspá
meðaltal
2005
Hagnaður
2004
N‡tt lyf hjá
Actavis
Lyfjafyrirtækið Actavis hefur
sett nýtt samheitalyf á markað í
Hollandi, Bretlandi og Svíþjóð, en
einkaleyfi á lyfinu rann nýverið
út. Um er að ræða blóðþrýstings-
lyfið Fosinopril og verða í fyrstu
settar um 13 milljónir taflna á
markað.
Lyfið er framleitt í verksmiðju
Actavis á Íslandi. Medis, dótturfé-
lag Actavis, annast sölu lyfsins í
Vestur-Evrópu en Actavis Nordic
selur lyfið undir eigin merkjum í
Svíþjóð.
Fosinopril verður markaðssett
í Austur-Evrópu undir merkjum
Actavis síðar á árinu.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá Actavis,
býst ekki við því að sala lyfsins
hafi afgerandi áhrif á afkomu fé-
lagsins: „Fosinopril er mikilvæg
viðbót við lyfjasafn okkar þó það
verði ekki í hópi mest seldu lyfja.“
-jsk
Nýtt ver utan um kod n