Fréttablaðið - 07.07.2005, Síða 23

Fréttablaðið - 07.07.2005, Síða 23
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 11 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er fimmtudagur 7. júlí, 188. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 3.18 13.33 23.45 AKUREYRI 2.23 13.17 00.08 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Brynja Pétursdóttir, dansari, þarf dá- góðan umhugsunartíma til að finna það sem er ómissandi í fataskápnum hennar en finnur að lokum eitt sem hún gæti ekki lifað án. „Eitt skópar er í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er ný týpa af Adidas Ecstasy-skóm þar sem hermt er eftir „Old School“ týp- unum,“ segir Brynja, sem er frekar í þægilegum íþróttaskóm heldur en háhæl- uðum. „Já ég held að flestir hipphoppar- ar séu frekar veikir fyrir íþróttaskóm.“ „Ég keypti skóna í Danmörku í hitteð- fyrra og þeir eru mjög vel farnir – enda spara ég þá mikið. Ég held þeim mjög hreinum. Ég hef sýnt dans í þeim en ann- ars þori ég lítið að fara á þeim. Ég er bölvandi hægri og vinstri ef einhver stíg- ur á mig niðri í bæ þannig að það gengur eiginlega ekki að ég fari í þeim út. Ég verð bara pirruð,“ segir Brynja og hlær dátt. Skórnir hennar Brynju eru hvítir, gul- ir og vínrauðir og hún féll strax fyrir þeim þegar hún sá þá. „Þeir eru rosalega hipphopp og fönkí. Þeir eru stórir og áberandi þannig að þeir heilluðu mig strax,“ segir Brynja, sem er meiri skó- manneskja en fatamanneskja. „Ef ég fer í bæinn þá enda ég yfirleitt á því að glápa á skópar frekar en eitthvað annað.“ lilja@frettabladid.is Fer ekki út í uppáhaldsskónum Fyrrverandi tennisstjarnan Boris Becker er búinn að setja á markað sína eigin fatalínu. Kappinn frumsýndi línuna í München í Þýskalandi í vikunni en línuna þróaði hann með þýska íþróttafatafyrirtækinu Volkl. Becker fær innblástur sinn úr tennis ásamt hafna- bolta og krikketi en línan er mjög sportleg. Tískutáknið Kate Moss og kærastinn hennar, rokkarinn Pete Doherty, eru svalasta fólkið í London að mati tímaritsins Tatler. Þau tóku titilinn af leikaraparinu Siennu Miller og Jude Law sem trónuðu á toppn- um á síðasta ári. Önn- ur pör sem ná á list- ann yfir svölustu pör- in eru Mick Jagger og kærastan hans L’Wren Scott, Hugh Grant og Jemima Khan og Jamie Oliver og Jools. Leikkonan Juliette Lewis er nýtt andlit fatahönnuðarins J. Lindeberg. Hún birtist í auglýsingum ásamt Carl Barat í hljómsveitinni The Libertines og auglýsir nýjustu línu Lindeberg. Lindeberg hefur sjálfur sagt að þetta sé besta auglýsingaherferð sem hann hefur gert. Nú er hægt að kaupa English Rose barnafötin eftir söngkonuna Madonnu á netinu. Fötin eru nefnd eftir vinsælli barnabók Madonnu en í fatalínunni eru auk fata skartgripir, skór og alls konar fylgihlutir. Madonna er greinilega hrifin af Bretlandi því á vefsíðunni er hægt að finna stuttbuxur, boli og gallapils með breska fánanum á. Slóðin á vefsíðuna er englis- hrose.com. Maybelline fyrirsætan Erin Watson var sektuð um 25 doll- ara, eða rúmlega 1600 krónur, í New York fyrir stuttu. Fyrirsæt- an fékk sektina fyrir að halda á bjórdós úti á miðri götu en það er ólöglegt í borginni. Fyrirsæt- an hafði verið að djamma með tískuljósmyndaranum David LaChapelle og sagði seinna að atvikið með bjórdósina væri misskilningur einn. Hún var bara að kaupa bjór handa vini sínum. Watson hefur unn- ið fyrir fjöldamörg stór nöfn í tískuheiminum eins og Gucci, Val- entino, Dolce & Gabbana og Donnu Karan. Brynja heldur mikið upp á skóna enda eru þeir stórir og áberandi. FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ o.fl. KRÍLIN Ég er ekki að grenja yfir því að þurfa að fara í skólann. Ég er að grenja af því ég vil vera heima. Pottar fyrir alls konar eldamennsku BLS. 9 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is Hjólakörfur eru tilvaldar til að hengja upp á vegg í eldhúsinu og nota undir eldhúsáhöld auk ávexta og grænmetis sem ekki þarf að setja í kæli. Körfurnar eru með festingum að aftan og bak- hliðin er slétt og fellur vel að veggnum. Sömuleiðis er hægt að notast við körfur sem eru ætlaðar undir veggblóm og eru þær sér- staklega hentugar undir sleifar og önnur eldhúsáhöld. Körfunum er hægt að raða nokkrum saman á heilan vegg þar sem allt er skipu- lagt og á sínum stað. ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Hjólakörfur eru með festingum á bakinu og auðvelt að festa þær á vegg. Hirsla fyrir grænmeti og áhöld KÖRFUR Á VEGGINN Í ELDHÚSINU. tiska@frettabladid.is LIGGUR Í LOFTINU í tísku

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.