Fréttablaðið - 07.07.2005, Page 27
5FIMMTUDAGUR 7. júlí 2005
Hinar árlegu sumarútsölur hófust fyrir nærri tveimur vikum en
samkvæmt lögum mega þær aðeins standa yfir í fjórar til sex vikur
eftir héruðum. Sumarfrí hófust hér 1. júlí, þá eru skólar búnir og
hálf þjóðin fer af stað í frí (hinn helmingurinn í ágúst). Þannig get-
ur almenningur náð í allt sem þarf á ströndina og fyrir kvöldsam-
kvæmin á suðlægum slóðum með dágóðum afslætti. En kaupmenn
eru séðir og gefa margir hverjir ekki nema 30-40 prósenta afslátt í
byrjun þannig að þeir sem fóru fyrstir í frí urðu að láta sér það
duga. Að vanda voru biðraðir fyrir framan vinsælustu búðirnar eins
og hjá Gucci, Prada og Tods og víðar. Nú hækka margar verslanir af-
sláttinn í 50 prósent eða meira og sumar enda með 70 prósenta af-
slætti. Útsölurnar eru eitt af því mikilvægasta í lífi hverrar verslun-
ar í verslunarárinu, eins og jólaverslunin og svo upphaf hverrar árs-
tíðar, þ.e.a.s. september og október í vetrartískunni og mars og apr-
íl í sumartískunni. Ein af stórverslununum í París, Galerie
Lafayette, halaði inn sex milljónir evra á fyrsta útsöludegi, tæplega
fimmhundruð milljónir króna. Um tíundi partur af ársveltunni kem-
ur inn í kassann í kringum útsölurnar. Fínu tískuhúsin vilja þó ekki
gera allt of mikið úr útsölunum þótt peningarnir sem inn koma séu
jafn mikilvægir. Þess vegna bjóða þau góðum viðskiptavinum að
koma á einkaútsölur og versla í rólegheitum. Þá hringir hver sölu-
maður í sína viðskiptavini og býður þeim. Einkaútsölur eru reyndar
algjörlega ólöglegar því útsölur eru hér lögbundnar og mega aðeins
standa í ákveðinn tíma. Því er pukrast með þessar einkaútsölur svo
að hinn venjulegi viskiptavinur viti ekki af. Sömuleiðis til þess að út-
sendarar eftirlitsnefndar um ólögmæta viðskiptahætti, sem eru á
sveimi, gómi ekki tískuhúsin í svona svindli því þá hverfur ágóðinn
fljótt í sektir. Hins vegar vita allir af þessum einkaútsölum og
spyrja eftir afslætti og þá er vandamálið hvort taka eigi áhættuna
eða ekki og segja já. Mörg tískuhúsanna stilltu vetrartískunni út í
glugga fyrir útsölurnar þannig að myndin út á við er ekki sú sama
og innandyra. Útsölurnar eru reyndar oft settar baka til strax eftir
fyrstu vikuna eins og það sé eitthvað skammarlegt að gefa afslátt og
þar með viðurkenna að rándýr varan hafi tapað verðgildi sínu í lok
árstíðarinnar. Reyndar fer aldrei nærri allt á útsölu og fínu tísku-
húsin eru alltaf með einhvern hluta af vörum sem sögð er klassísk
og þar með áfram á boðstólum þegar útsölum lýkur.
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Útsala, útsala, útsala
11-18
VERSLUNIN VERÐUR
LOKUÐ Í DAG,
FIMMTUDAG
ÚTSALAN HEFST
Á MORGUN!
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Glæsilegt
úrval
skartgripa