Fréttablaðið - 07.07.2005, Page 29

Fréttablaðið - 07.07.2005, Page 29
FIMMTUDAGUR 7. júlí 2005 af netinu } Kraftaverkin gerast enn SUNDBOLIR ÚR AÐHALDSEFNI. Á vefsíðunni figleaves.com er seld- ur allskyns varningur fyrir konur eins og undirföt, sundfatnaður, óléttufatnaður, brúðarfatnaður og margt fleira. Einnig er í boði lítil lína af undirfatnaði herra. Það nýjasta á síðunni þeirra eru hinn eini sanni „Miraclesuit“, sund- bolur sem forsvarsmenn Figleave lofa að minnki líkamsummálið um eina stærð! Ótrúlegt, en það lítur út fyrir að þeir hafi eitthvað fyrir sér í þessum loforðum, efnið í bolnum er sérstaklega teygjanlegt og þægilega stíft sem gerir að verkum að aðhaldið verður meira en ella og bolurinn leggst fallega að líkamanum. Í sníðagerðinni er leitast við að ná því allra besta fram við kvenlíkamann. Það verður að viðurkennast að marga dreymir um að losna við nokkur kíló af kroppnum svo nú er tækifærið að kíkja á það nýjasta í kroppabransanum á www.figlea- ves.com en kraftaverkasundbolirnir kosta um 100 bresk pund. Karlmannlegur og ferskur NÝI RAKSPÍRINN FRÁ LACOSTE ER SPORTLEGUR ENDA Á HANN AÐ HÖFÐA TIL ÍÞRÓTTAMANNA. Lacoste Red, nýi ilmurinn fyrir karlmenn frá Lacoste, er ferskur og af- skaplega karlmannlegur. Í ilminum blandast sam- an ferskleiki grænna epla, mjúkir blómatónar, frosinn lífviður, hrimvið- ur, jasmín og krydd- kenndur sedrusviður. Umbúðirnar eru af- skaplega þægileg- ar og sportlegar. Belgur sjálfs glassins er mjög þykkur en lögun- inni hefur verið breytt með riffl- um á hliðunum til að gefa gott grip, enda á rakspírinn að höfða til íþróttamanna. Botninn á glasinu er skærrauður sem og umbúðirnar. NÝBÝLAVEGUR 12, KÓPAVOGUR SÍMI 554 4433 Opnunartími virka daga 10-18 og laugardaga 10-16 Útsalan í fullum gangi G O T T F Ó LK M cC A N N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.