Fréttablaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 44
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leik-
kona er mikil fjölskyldumann-
eskja og ætlar að eyða afmælis-
deginum með dóttur sinni og
barnabarni. Undanfarin ár hefur
hún haldið upp á afmæli sitt er-
lendis þar sem dóttir hennar var í
námi í Evrópu.
„Mér finnst voða gaman að fá
afmælisgjafir,“ segir Lilja Guð-
rún, sem veit þó ekki hvers hún
óskar sér í ár. Hún segir margar
gjafir minnisstæðar, sérstaklega
nokkur hálsmen og hringa. „Ég er
voðalegur fagurkeri,“ segir Lilja
góðlega, „en mér þykir líka af-
skaplega vænt um að fá bara eitt
bros.“
Lilja Guðrún er komin í sum-
arfrí en hún lauk nýverið tökum á
Dýrunum í Hálsaskógi sem kem-
ur út á dvd-diski á næstunni. Þá
lék hún í vor í bíómyndinni
Kvikyndi, með krökkunum úr
Vesturporti, sem verður frum-
sýnd í haust.
En hvað ætlar hún að gera í
sumarfríinu? „Ég ætla að fara
norður til Akureyrar og vera við-
stödd fæðingu nýs barnabarns,“
segir Lilja Guðrún spennt.
„Stærsta stund sem nokkur getur
átt er að verða amma,“ segir Lilja
sem á eitt barnabarn fyrir. Við
fæðingu þess var hún að æfa fyr-
ir frumsýningu Ástkvenna
Picassos í leikstjórn Hlínar Agn-
arsdóttur. „Ég var gersamlega
ónýt,“ segir Lilja hlæjandi þegar
hún minnist dagsins. Það endaði
með því að hún var rekin upp á
fæðingardeild þar sem hún fékk
dótturdóttur sína nýfædda í fang-
ið.
„Það er ekki hægt að lýsa þess-
ari stund,“ segir hún og er orða
vant yfir þeirri stórkostlegu til-
finningu sem þessu fylgdi.
Nú verður hún viðstödd fæð-
ingu barnabarns síns og telur að
það verði stærsta afmælisgjöfin.
Lilja Guðrún er spennt fyrir
næsta leikári. Í haust mun hún
leika í nýju verki eftir Hrund
Ólafsdóttur. Nokkur leynd hvílir
yfir verkinu eins og ávallt þegar
nýtt leikrit er frumsýnt en Lilja
segir verkið spennandi og leik-
stjórann ungan.
Lilju Guðrúnu þykir vænt um
öll hlutverk sín en þó misjafnlega
mikið eftir því hvað þau voru erf-
ið. „Síðasta hlutverk sem tók á
mig andlega var Marta í Hver er
hræddur við Virginíu Woolf. Ég
hef leikið mörg hlutverk sem
heita Marta, og mér þykir vænt
um þær allar,“ segir Lilja Guðrún
hlæjandi og bætir við að líklega
standi Mörturnar upp úr á leik-
ferlinum. ■
24 7. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
ARTHUR CONAN DOYLE (1859-1930)
lést þennan dag
LILJA GUÐRÚN ÞORVALDSDÓTTIR LEIKKONA ER 55 ÁRA.
Mörturnar eru minnisstæðar
„Það er gömul meginregla mín að þegar
allt hið mögulega hefur verið útilokað hlýt-
ur það sem eftir verður, hversu ólíklegt sem
það virðist, að vera sannleikurinn.“
Sir Arthur Conan Doyle er höfundur
bókanna um spæjarann Sherlock Holmes
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Sverrir Vilbergsson, Sæunnargötu 9,
Borgarnesi, lést á Landspítala við Hring-
braut miðvikudaginn 22. júní. Útförin
hefur farið fram.
Sveinn Ómar Elíasson, Miðtúni 48,
Reykjavík, lést á heimili sínu laugardag-
inn 2. júlí.
Páll Pétursson húsasmíðameistari, Sól-
heimum 16, áður til heimilis í Árskógum
13, Egilsstöðum, lést á Landspítala við
Hringbraut sunnudaginn 3. júlí.
Hjörtur Jónsson, Brjánsstöðum, Gríms-
nesi, lést af slysförum mánudaginn 4.
júlí.
Páll Kristinn Kristófersson, Fríholti 8,
Garði, lést á Landspítalanum mánudag-
inn 4. júlí.
Hildur Björnsdóttir, Tjarnarbóli 2, Sel-
tjarnarnesi, lést á krabbameinslækninga-
deild 11E á Landspítala, Hringbraut
þriðjudaginn 5. júlí.
Þennan dag árið 1985 sigraði Boris Becker
Wimbledon-mótið í tennis. Hann var einungis
sautján ára og varð þar með yngsti sigurvegari
þess móts frá upphafi. Hann var einnig fyrsti
Þjóðverjinn til að hampa titilinum. Becker var al-
veg óþekktur við upphaf móts en vann hug og
hjörtu heimsins þegar hann lyfti silfurbikarnum
yfir höfuð sér.
Boris Becker byrjaði að æfa tennis átta ára gam-
all. Við tólf ára aldur átti íþróttin hug hans allan.
Hann sigraði Wimbledon-mótið einnig árið 1986
og í þriðja sinn árið 1989. Hann hlaut sex stóra
titla á ævinni og árið 1991 var hann efstur á
heimslistanum í tennis.
Hann hafði ávallt sérstakan stíl sem einkenndist
af kraftmikilli uppgjöf og dramatískum leikflétt-
um. Sá stíll einkenndi tennisheiminn í mörg ár
eftir sigur hans
á Wimbeldon-
mótinu árið
1985 og enn
eimir af hon-
um í dag.
Becker lagði
atvinnuskóna á
hilluna árið
1999 eftir að
hann tapaði í
fjórðu lotu á
Wimbledon-
móti. Hins veg-
ar hefur hann
verið tíðræddur á síðum slúðurblaða vegna ým-
issa hneykslismála.
7. JÚLÍ 1985
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1852 Samkvæmt bókum Arthur
Conan Doyle um Sherlock
Holmes, fæddist doktor
Watson þennan dag. Höf-
undurinn sjálfur lést þenn-
an dag árið 1930.
1915 Konur halda hátíðarfund á
Austurvelli við setningu Al-
þingis til að fanga kosn-
ingarétti sem þær fengu
19. júní. Saman dag stofna
konur Landspítalasjóð Ís-
lands.
1941 Bandaríkjaher kemur til
landsins og annast vernd
landsins til stríðsloka.
1942 Himmler ákveður að hefja
læknisrannsóknir á föngum
í Auschwitz-útrýmingar-
búðunum.
1978 Breskir loftfimleikamenn
aka vélhjóli á línu sem
strengd er milli turns Iðn-
skóla Reykjavíkur og Hall-
grímskirkju.
Boris Becker sigrar á Wimbledon
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þóra Guðlaug Þorsteinsdóttir
Lokastíg 18, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn 30. júní, verður jarð-
sungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 8. júlí kl. 13.00.
Gunnar Rósmundsson
Lilja Magnúsdóttir Páll Bergsson
Páll Magnússon Jóhanna Rögnvaldsdóttir
Gylfi Gunnarsson Kolbrún Hauksdóttir
Valgerður Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdamóðir, amma, systir, mágkona og frænka,
Hildur Björnsdóttir
Tjarnarbóli 2, Seltjarnarnesi,
lést þriðjudaginn 5. júlí á Krabbameinslækningadeild 11E á
Landspítala Hringbraut. Jarðarförin auglýst síðar.
Róbert Guðlaugsson
Björn Róbert Ómarsson
Elín Thelma Róbertsdóttir Reynir Þór Reynisson
Tómas Darri Róbertsson
Anna Hildur Bjönsdóttir
Emilía Mist Reynisdóttir
Elín Kröyer Kristinn Arason
Björn Helgason Guðrún Ólafsdóttir
Díana Björnsdóttir
Lára Björnsdóttir Ólafur Pálsson
Elísa Kristinsdóttir Vilhjálmur Sveinbjörnsson
Gunnar Friðrik Björnsson
Sigurlaug Björnsdóttir Guðmundur Þorleifsson
Ari Kristinsson Margrét Pálsdóttir
Ástríður Kristinsdóttir Vigfús Ingvarsson
Kristrún Kristinsdóttir Sverre Rasch
Sigríður Kristinsdóttir Hallgrímur Helgi Helgason
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur sonur minn, bróðir og mágur,
Sveinn Ómar Elíasson
Miðtúni 48, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 2. júlí. Útförin verður auglýst síðar.
Alda Ármanna Sveinsdóttir
Jón Júlíus Elíasson Kristín Þóra Harðardóttir
Margrét Elíasdóttir Ólafur Sigrtryggsson
Sigurður Þór Elíasson
og systkinabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og
útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
Margrétar Þórdísar Egilsdóttur
Glerlistakonu, Kambaseli 21, Reykjavík,
Óskar Smári Haraldsson
Haraldur Helgi Óskarsson Anna Fanney Gunnarsdóttir
Brynjar Þór Óskarsson Magdalena Hilmisdóttir
Oddur Jarl Haraldsson.
JAR‹ARFARIR
13.00 Niels J. Hansen húsasmíða-
meistari, Dvergholti 17, Mos-
fellsbæ, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
14.00 Guðrún Margrét Arngríms-
dóttir, áður til heimilis að Harð-
angri, verður jarðsungin frá
Glerárkirkju.
AFMÆLI
Helga Thorberg blómasölukona er 55
ára.
Jón Viðar Jónsson, forstöðumaður Leik-
minjasafns Íslands, er 50 ára.
Friðrik Skúlason tölvumaður er 42 ára.
Patrekur Jóhannesson íþróttamaður er
33 ára.
BRÚ‹HJÓN
Gefin voru saman þann 18. júní í Garða-
kirkju, þau Katrín S. Einarsdóttir og
Haukur Garðarsson, af séra Hans Mark-
úsi Hafsteinssyni. Þau eru til heimilis í
Garðabæ.
LJ
Ó
SM
YN
D
AS
TO
FA
H
AF
N
AR
FI
RÐ
I
LILJA GUÐRÚN Lilja Guðrún ætlar að vera viðstödd fæðingu barnabarns síns í sumar.
Hún segir eina stærstu stund sem nokkur geti átt vera þá að verða amma.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »