Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.07.2005, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 07.07.2005, Qupperneq 46
7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Heyrst hefur ... ... að forráðamenn og leikmenn kvennaliðs Vals í Landsbankadeildinni séu æfir eftir að hafa horft á myndbandsupptöku af markinu sem Greta Mjöll Samúelsdóttur, sóknarmaður Blika, skoraði á lokamínútunni í leik liðanna á mánudagskvöldið. Þar þykir sjást greinilega að Greta Mjöll er rangstæð áður en hún skorar. sport@frettabladid.is 26 > Við hrósum ... .... forráðamönnum Keflavíkur í Landsbankadeild karla, sem voru ekki lengi að taka til sinna ráða eftir að þeir sáu að akkilesarhæll liðsins var slök vörn. Á skömmum tíma hefur liðið samið við tvo öfluga miðverði og ætlar félagið greinilega að halda sér í efri hluta Landsbanka- deildarinnar. Dregi› var í gær í fjór›ungsúrslit í Visa-bikarkeppni karla. Tvö stærstu li›in í pottinum, FH og Valur, sluppu vi› hvort anna› en Valsmenn fá fla› erfi›a verkefni a› heimsækja KR í Vesturbæinn á me›an FH tekur á móti ÍA. Stórleikur í Frostaskjóli FÓTBOLTI Eins og svo oft áður í bik- ardráttum var fyrst og fremst horft til þess að fá heimaleik. Flestir fyrirliðar liðanna og þjálf- arar voru sammála um að and- stæðingurinn skipti minna máli á þessu stigi keppninnar en heima- leikjarétturinn þeim mun mikil- vægari. Þá skiptir einnig máli að leikirnir í fjórðungsúrslitum keppninnar verða þeir síðustu sem fara fram á heimavöllum liðanna, héðan í frá fara leikirnir fram á Laugardalsvelli. Sterkasti heimavöllur landsins er án efa Kaplakriki í Hafnarfirði þó svo að FH-ingar virðist vera jafnsterkir á útivelli. Liðið sem fékk það miður öfundsverða hlut- verk að mæta FH í Hafnarfirði eru Skagamenn, sem hefur oft gengið betur í deildinni en nú í sumar. „Já, þetta var nú ekki léttasta verkefnið sem hægt var að fá,“ sagði Gunnlaugur Jónsson, fyrir- liði ÍA, eftir útdráttinn. „En ef liðið ætlar sér bikarmeistaratitilinn yfir höfuð þarf það að vinna FH rétt eins og önnur lið. Það var óheppni að leikurinn færi fram á þeirra heimavelli en svona er þetta í bikarnum. Þetta verður vissulega erfiður veggur að klífa en við ætl- um okkur sigur í þessum leik og ekkert annað.“ Þannig er málunum háttað með flest lið – þau leggja nú allt kapp á gott gengi í bikarnum þar sem FH virðist í algerum sérflokki í deild- inni og aðeins Valur er í þeirri að- stöðu að eiga möguleika á að ógna þeim. KR er eitt þeirra liða sem hefur ekki unnið bikarinn síðan 1999. Þeir mæta nú Völsurum. „Við höf- um einmitt verið að ræða þetta. Við ætlum að leggja enn þá meiri kraft í bikarinn enda verðum við ekki Íslandsmeistarar í ár. Ég held að allir sjái það,“ sagði Kristján Finnbogason fyrirliði KR. Í öðrum leikjum tekur 1. deild- arlið HK á móti Fylki og Fram mætir ÍBV. eirikurst@frettabladid.is Fyrirliði Liverpool skiptir um skoðun: FÓTBOLTI Steven Gerrard olli miklu fjaðrafoki í fyrradag þeg- ar hann tjáði Rick Parry, stjórn- arformanni Liverpool, að hann vildi fara frá félaginu, en í gær snerist honum hugur og ákvað að vera um kyrrt hjá uppeldis- félagi sínu. Gerrard sagðist eftir mikla umhugsun ekki hafa getað hugs- að sér að fara frá félaginu. „Ég vil ekki kenna neinum um hvernig málin þróuðust, en ég hélt á ákveðnum tímapunkti að félagið vildi losna við mig. Það reyndist því betur vera mis- skilningur. Ég gat á e n d a n - u m ekki hugsað mér að fara frá Liverpool, vegna þess að mér þykir vænt um félagið og það sem félagið stendur fyrir.“ Umboðsmaður Gerrards, Struan Marshall, hefur einnig verið mikið í umræðunni, en talið var að hann væri að leggja hart að Gerrard að fara frá fé- laginu. „Ég verð að verja um- boðsmann minn, því hann hefur reynst mér afar vel á þessum tíma og tekið vel í allt sem ég hef beðið hann um. Hann myndi aldrei gera eitthvað sem ég hefði ekki beðið hann um að gera.“ Gerrard verður launahæsti leikmaður Liverpool frá upphafi þegar nýr samningur milli hans og félagsins tekur gildi. Líklega verður gengið frá undirskrift samningsins í dag. -mh Steven Gerrard ver›ur áfram hjá Liverpool Ásgeir Elíasson og stjórn knattspyrnu- deildar Þróttar komust að þeirri niður- stöðu í gær að Ásgeir léti af stjórn sem þjálfari liðsins. Við hans starfi tekur Atli Eðvaldsson, fyrrverandi þjálfari KR og ís- lenska landsliðsins, og markar hann þannig endurkomu sína í íslenska bolt- ann frá því að hann hætti með íslenska landsliðið fyrir tveimur árum. Kristinn Einarsson, formaður Þróttar, sagði við Fréttablaðið í gær að ástæðan fyrir þjálfaraskiptunum væri mjög einföld. „Árangurinn hefur verið lélegur og ekk- ert gengið.“ „Það er mjög góð tilfinning að vera kominn í boltann aftur,“ segir Atli sem stýrði KR-ingum til Íslandsmeistaratitils árið 1999 og veit því hvað þarf til að búa til vinningslið. Hann segir að hlut- irnir hafi gerst hratt í gær. „Þróttur hafði samband við mig í gær og ég fékk nokkurra klukkustunda umhugsunar- frest áður en ég játti,“ segir Atli. „Ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni og markmiðið er sjálfsögðu að halda liðinu uppi. Ég er í svipaðri stöðu og Bryan Robson hjá WBA í vetur, hon- um tókst að bjarga liðinu frá falli. Ef það tekst hjá mér verð ég mjög sáttur,“ sagði Atli í léttum tón. „Ég ætlaði alltaf að snúa aftur í þjálfun- ina og hafði hugsað um næsta haust í því sambandi. En svo kemur þetta upp og mér líst mjög vel á,“ segir Atli sem gerði samning við Þrótt sem gildir út leiktíðina. „Ég tek við góðu búi Ásgeirs og tel mig þekkja nokkuð vel til liðsins. Þetta er góður hópur leikmanna sem hafa leikið lengi saman og þekkja hvor annan vel. En hver þjálfari hefur sínar áherslur og ég á ekki von á öðru en að skipu- lagið muni eitthvað breyt- ast,“ segir hann. ATLI EÐVALDSSON SNÝR AFTUR: TEKUR VIÐ LIÐI ÞRÓTTAR Í LANDSBANKADEILDINNI Landsbankadeild karla: Svíi kominn til Keflavíkur FÓTBOLTI Kenneth Gustavsson, sænskur knattspyrnumaður, leik- ur með Keflavík út sumarið í Landsbankadeildinni. Hann er væntanlegur til landsins fyrir helgi en hann getur bæði spilað í vörn og á miðju. Hann er 22 ára gamall, er 1,93 á hæð og 90 kg. Hann er uppalinn í Gautaborg en hefur einnig verið í herbúðum Malmö, Lyn og Trelleborg. Um er að ræða sterkan leikmann en nokkuð hægan. Hann var hjá Mal- mö á sama tíma og Kristján Guð- mundsson, þjálfari Keflavíkur, og markvörðurinn Ómar Jóhannsson voru þar. Eins og kunnugt er hefur Keflavík einnig fengið Guðmund Mete til liðsins og hefur hann skrifað undir samning við félagið og verður í hópnum í næsta leik. Þá er sóknarmaður frá Jamaíka, Sean Fraser, hjá liðinu og verður til reynslu næstu daga en hann er 22 ára og lék síðast með liði í heimalandinu. KR-FH KL. 20 Í KVÖLD. Fjölskyldustemning í KR-heimilinu frá kl. 18 og fram að leik. Kvöldverður fyrir alla fjölskylduna. Matur 500 krónur fyrir fullorðna og frítt fyrir börn. Kaffiveitingar í hálfleik. SKAGAMENN VELKOMNIR Í VESTURBÆINN KR - ÍA KL 20 Í KVÖLD Dagskrá: kl. 18.00 Útsending KR-útvarpsins FM 98,3 hefst kl. 18.30 Opið hús fyrir KR klúbbinn - léttar veitingar Heiðursgestur er Ríkharður Jónsson Kaffiveitingar í hálfleik LH-drykkurinn er gerður úr undanrennu sem sýrð er með venjulegum mjólkursýrugerli, Lacto- bacillus helveticus. Hann hefur þá eiginleika að geta klofið mjólkur- prótein í litlar prótein- einingar, lífvirk peptíð. Þessi peptíð geta hjálpað til við stjórn á blóðþrýstingi. Sjá nánar á www.ms.is Stjórn á blóð- þrýstingi Náttúruleg hjálp við stjórn á blóðþrýsting i H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA HVER VINNUR SLAGINN? Það fór létt á með þjálfurum Vals og KR, þeim Willum Þór Þórssyni og Magnúsi Gylfasyni FRÉTTABLAÐIÐ/E.OL HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 4 5 6 7 8 9 10 Fimmtudagur JÚLÍ ■ ■ LEIKIR  20.00 KR tekur á móti íA í Landsbankadeild karla í Frostaskjóli. ■ ■ SJÓNVARP  16.45 Formúlukvöld á RÚV.  18.40 PGA Golf á Sýn.  19.10 Stjörnugolf á Sýn.  19.40 Landsbankadeildin á Sýn. Bein útsending frá viðureign KR og ÍA í Landsbankadeildinni.  22.30 Sterkasti maður heims á Sýn.  19.40 Landsbankadeildin á Sýn. Útsending frá leik KR og ÍA. STEVEN GERRARD Skrifar að öll- um líkindum undir fjögurra ára samning við Liverpool á morgun. Ólympíuleikarnir 2012: London var› fyrir valinu ÓLYMPÍULEIKAR Mikil fagnaðarlæti brutust út í London í gær eftir að tilkynnt var að borgin hefði verið valin til að halda Ólympíuleikanna árið 2012. Valið á London þykir koma nokkuð á óvart þar sem flestir höfðu spáð því að París myndi hreppa vinninginn. Aðrir umsækjendur, Madríd, Moskva og New York, duttu fyrst út úr kosn- ingu hundrað meðlima ólympíu- nefndarinnar sem fram fór í Singapúr í gær. Tony Blair, forsætisráðherra Englands, lýsti deginum í gær sem einum þeim þýðingarmesta í sögu landsins. „Þetta er mikil lyftistöng fyrir okkar samfélag,“ sagði Blair. Talið er að útspil Englendinga um að senda David Beckham til Singapúr til að sinna hlutverki einskonar sendifulltrúa landsins hafi haft mikið að segja í vali ólympíunefndarinnar í gær. Halda sérfræðingar ytra því fram að Beckham hafi verið eitt besta útspilið í „taktískum“ sigri London í kosningunni í gær. Charlton Athletic er sagt vera aðundirbúa 1,5 milljón punda til- boð í miðjumanninn Lee Bowyer hjá Newcastle, en hann á ekki lengur upp á pallborðið hjá stuðn- ingsmönnum og forráðamönnum félagsins eftir að hann og félagi hans Kyeron Dyer slógust hressi- lega á knattspyrnuvellinum á síð- ustu leiktíð. Bowyer segist óttast ör- yggi sitt í borginni og er á því að fara frá Newcastle. Ígær slitnaði endanlega upp úrsamningaviðræðum milli Chelsea og AC Milan um framherjann Hern- an Crespo og nú er ljóst að hann þarf að snúa aftur til Chelsea þvert gegn vilja sínum. Milan hafði fullan hug á því að kaupa hann eða gera við hann nýjan lánssamning, en ekkert verður af því. Félagið keypti ítalska framherjann Christian Vieri í gær og því þurfa þeir ekki á öðrum framherja að halda á næstu leiktíð. ÚR SPORTINU Í sama hlutverki og Bryan Robson > Við fögnum ... ... því að Atli Eðvaldsson skuli vera kominn aftur í íslenska boltann. Atli er skemmtilegur karakter sem hefur ævinlega lífgað upp á fótboltasumarið í öll þau skipti sem hann hefur tekið þátt í þeim.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.