Fréttablaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 7. júlí 2005 29
sig mjög vel á æfingum en ég
hafði aldrei séð hann spila áður
en hann kom. Og þegar aðstæður
eru þannig er ekki svo auðvelt að
slá út menn sem eru fyrir í liðinu
og ég gjörþekki alla þeirra styrk-
leika og veikleika.“
Pulis ítrekar að hann hafi ekk-
ert persónulegt á móti íslenskum
leikmönnum og bendir einfald-
lega á feril sinn hjá Stoke máli
sínu til stuðnings.
„Fólk segir að ég hafi andúð á
íslenskum leikmönnum en það er
fráleitt. Fyrsta árið mitt hjá
Stoke var Brynjar Gunnarsson
lykilmaður í liðinu. Síðan varð
hann samningslaus og við gátum
ekki haldið honum. Sá leikmaður
sem var efst á óskalistanum mín-
um í sumar var Heiðar Helguson.
Hann er Íslendingur. Allir ís-
lenskir leikmenn sem ég hef unn-
ið með hjá Stoke hafa verið frá-
bærir félagar og einstaklega við-
kunnalegir fjölskyldumenn. Þeir
hafa ávallt lagt hart af sér og eru
allir fagmenn út í fingurgóma.“
Vona að liðið komst upp
Pulis ber Gunnari Þór góða
söguna og segir hann, sem og
Magnús Kristinsson, eiga rétt á
því að hafa sína skoðun á því
hvernig félaginu er stjórnað.
„En sem knattspyrnustjóri
hefurðu einnig ákveðinn rétt,“
bætir Pulis við. Hann segir
stærsta vandamálið hjá Stoke
vera fólgið í þeirri staðreynd að
formaður stjórnarinnar sé bú-
settur í öðru landi.
„Gunnar stjórnar félaginu frá
Íslandi. Það hefur sína kosti en
einnig sína galla. Ég kann mjög
vel við Gunnar, ég hef kynnst
hans yndislegu fjölskyldu og okk-
ar samskipti hafa alltaf verið
mjög góð. Það hefur ekki verið
vandamál að ná sambandi við
hann símleiðis en það er eitthvað
sem mér líkar ekki til lengdar,“
segir Pulis, en bætir því við að sé
vel hægt að reka enskt knatt-
spyrnufélag frá Íslandi.
„En ég neita því ekki að það
væri gott að hafa hann nær félag-
inu. Ég hef verið hjá öðrum fé-
lögum þar sem hægt var að setj-
ast niður með stjórnarformann-
inum eftir leiki og ræða um allt
milli himins og jarðar, um hvaða
leikmenn ætti að kaupa eða selja
o.s.frv. Það gat ég ekki hjá
Stoke.“
Það sem Pulis sér mest eftir á
tíma sínum hjá Stoke er að hafa
ekki fengið að ljúka sínu æðsta
og eina takmarki – að koma Stoke
í ensku úrvalsdeildina. „Þar á lið-
ið heima,“ segir Pulis án þess að
hika. „Það yrði uppselt á alla
heimaleiki liðsins í úrvalsdeild-
inni og þótt ég hafi skilið við liðið
á þennan hátt óska ég félaginu
alls hins besta í framtíðinni. Ég
vona innilega að liðið komist upp
og leiki á meðal þeirra bestu í
hverri viku. Það yrði stórkostlegt
fyrir félagið og ekki síst stuðn-
ingsmennina.“
vignir@frettabladid.is
Keppni allra landsmanna
Frítt á leiki og happdrættispottur
Sextán ára og yngri fá frítt á leiki í Landsbankadeildinni í sumar og lenda
í happdrættispotti þar sem dregnir verða út 100 glæsilegir vinningar.
Miðar eru afhentir í útibúum bankans.
1. vinningur: 4 flugmiðar og 4 miðar á leik í Meistaradeild Evrópu.
Aðrir vinningar: Áritaðar landsliðstreyjur og vandaðir fótboltar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
89
18
07
/0
5
410 4000 | www.landsbanki.is
VIÐ STYÐJUM ÍSLENSKA
KNATTSPYRNU MEÐ STOLTI
fim. 7. júlí 20:00 KR - ÍA
fös. 8. júlí 20:00 FH - Keflavík
sun. 10. júlí 19:15 ÍBV - Fram
mán. 11. júlí 19:15 KR - Fylkir
NÆSTU LEIKIR LANDSBANKADEILDAR KARLA
Lífsaugað
Þriðjudagskvöld 22-24