Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 55
Veitingastaðurinn Mið-
bar er nýopnaður og
hann hefur glæsilega
sérstöðu því eigandinn
ræktar sjálfur nauta-
kjötið sem hann býður upp á. „Ég
er með holdanautaræktun undir
vörumerkinu Arnarhóll,“ segir Krist-
inn Björnsson, bóndi í Gaulverja-
bæjarhreppi. „Þetta er þróunar-
verkefni hjá okkur. Ég er bara ís-
lenskur bóndi sem reynir að koma
sér á framfæri í borginni.“
Hvernig er stemmningin: Í sumar
ætla þau að vinna í því að komast
á kortið en í haust er stefnt að því
að móta staðinn í takt við and-
rúmsloftið sem hann hefur markað
sér.
Matseðillinn: Matseðillinn skiptist
í þrennt: hamborgara, nautasteikur
og rétti dagsins, en grunnuppistað-
an í allri matargerðinni er íslenskt
sérræktað nautakjöt af bóndabæn-
um. „Það er enginn með holda-
nautakjöt í hamborgurunum hjá
sér annars staðar,“ segir Kristinn.
Staðurinn býður upp á sérlínu af
spænsku rauðvíni með.
Vinsælast: Það á eftir að koma í
ljós. Á Miðbar verður boðið upp á
alvöru nautasteikur sem verða allt
frá 200 grömmum upp í 700
grömm og eru þær líklegar til að
slá í gegn. Einnig má ætla að T-
bone-steikurnar og nautakótelett-
urnar muni ganga vel í fólk.
Réttur dagsins: Á boðstólum verð-
ur réttur dagsins og er hann mis-
munandi dag frá degi. Dæmi um
rétti dagsins eru gúllassúpa, nauta-
snitsel, roastbeef og laukbuff með
spældu eggi.
Af básnum
á bor›i›
VEITINGASTAÐURINN
MIÐBAR LAUGAVEGI 73,
101 REYKJAVÍK
MIÐBAR Aðstandendur Miðbars bjóða
upp á safaríkar nautasteikur en halda
verðinu í lágmarki.
Þau eru Íslendingum vel kunn, vín-
in frá hinum ítalska Tommasi vín-
framleiðanda, enda algeng á svign-
andi veisluborðum við alls kyns til-
efni. Tommasi-fjölskyldan er
margbreytileg og margslungin, allt
frá léttum og þægilegum Rafael
kertaljósavíni eins og Le Volpare,
þéttu og miklu Le Rosse hvítvíni og
til hins dásamlega Amarone. Öll
hefur Tommasi vínfjölskyldan ver-
ið hlaðin verðlaunum, sem sést
best á töflunni hér við hliðina.
Helstu vínsérfræðingar hins vest-
ræna heims setja Tommasi meðal
bestu kaupa í víni. Það ætti að ein-
falda valið fyrir mann næst þegar
maður skreppur út í Vínbúð.
FIMMTUDAGUR 7. júlí 2005 35
TOMMASI: Heil fjölskylda verðlaunavína
WINE ENTHUSIAST WINE SPECTATOR DECANTER
AMARONE CLASSICO Bestu vínin 2004: 91/100 ❋ ❋ ❋ ❋ ❋
90/100
CREARO 89/100 Bestu meðmæli:
❋ ❋ ❋ ❋ ❋
RIPASSO Bestu vínin 2004:
88/100 86/100
RAFAEL Bestu vínin 2004:
86/100
LA ROSSE Bestu vínin 2004: 83/100 Bestu kaup:
86/100 ❋ ❋ ❋ ❋ ❋
LE PRUNEE 84/100 84/100
LE VOLPARE (SUAVE) Bestu vínin 2004: Bestu kaup:
87/100 85/100