Fréttablaðið - 07.07.2005, Síða 56

Fréttablaðið - 07.07.2005, Síða 56
36 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Utangarðsmennirnir Rodriguez og Miller „Oh you're in charge? Well I got news for you Dwayne, from up here it doesn't look like you're in charge of jack shit.“ John McClane lét lögreglustjórann Dwayne heyra það í fyrstu Die Hard-myndinni þegar Dwayne sagð- ist hafa alla stjórn á umsátrinu um háhýsið í Los Angeles. Myndin gerði Bruce Willis að stórstjörnu. Stuart Wilson, sem lék vonda náungann í Nonna og Manna, lék þjófinn Hans Gruber. bio@frettabladid.is Ferill Benicio Del Toro er keimlíkur margra annarra leikara. Eintómt basl í umhverfi þar sem þolinmæði er dyggð. Del Toro er fæddur í Púertó Ríkó og bjó þar við ágæt efni enda foreldrar hans báðir lögfræðing- ar. Eftir að móðir hans dó flutti faðir hans með fjölskylduna til Pennsylvaníu og allt útlit var fyrir að Del Toro myndi feta í fót- spor föður síns. Hugur hans stefndi þó alltaf í leiklistina. Hann lét drauminn rætast og lærði hjá hinni virtu Stellu Adler í Los Angeles. Það var ekki mikið um að vera hjá Del Toro þegar því námi lauk. Hann kom með- al annars fram í Miami Vice árið 1987 og lék í myndbandi hjá Madonnu. Þá lék hann í Pee Wee Hermann mynd þar sem hann fór með hlutverk Duke the Dog – Faced Boy. Það var ekki fyrr en framleiðendur James Bond vantaði suður-amerískan ribb- alda í kvikmyndina Licence to Kill að Del Toro fékk að reyna sig við alvöru hlutverk. Því miður fyrir Del Toro er Licence to Kill talin vera versta Bond- myndin og hún varð honum ekki til framdráttar. Fimm árum síðar var loks tekið eftir Del Toro af einhverri alvöru. Þá lék hann ásamt Ed Harris í kvikmyndinni China Moon. Frammistaða hans varð til þess að Bryan Singer valdi hann til að leika Fred Fenster í gæðamyndinni Usual Suspects. Þar með var ferill hans tryggður. Del Toro er af mörgum talinn einn besti leikari Hollywood og fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Traffic. Hann hefur reynt að halda sig sem lengst frá „ekta“ Hollywood-myndum og kýs frekar að taka áhættu í vali sínu á hlutverkum. Lék í myndbandi me› Madonnu BENICIO DEL TORO Á upphafsárum sínum í leiklist- inni fékk Del Toro ekki úr miklu að moða. Hann lék í einum Miami Vice-þætti þar sem per- sóna hans skipti svo litlu máli að hún hafði ekkert nafn. Kvikmyndin Who's Your Daddy? verður frumsýnd í Sambíóunum á morgun. Segir hún frá Chris Hughes sem telur sig vera venju- legan úthverfastrák frá Ohio. Þegar hann er rétt búinn að klára framhaldsskólann kemst hann í raun um að hann er ættleiddur og foreldrar hans séu Peter og Hon- ey Mack, eigendur stærsta klám- blaðafyrirtækis Bandaríkjanna. Þau eru nýlátin og Chris þarf að stjórna blaðinu. Hann verður því umkringdur fallegum, fáklædd- um konum auk þess að þurfa berj- ast við frænda sinn, Duncan Mack, sem reynir að hrifsa völd- inu úr höndunum á honum. CHRIS HUGHES Sveitastrákurinn Chris Hughes kemst heldur betur í feitt þegar hann erfir klámblaðafyrirtæki foreldra sinna. Sveitapilts- ins draumur Leikstjórinn Robert Rodriguez eyddi ansi mörgum símtölum í að sannfæra höfund Sin City, Frank Miller, um að leyfa sér að kvik- mynda sögur hans um Syndabælið. Frank Miller, sem á meðal annars heiðurinn af endurvakningu Leður- blökumannsins, var fullur efasemda enda hefur hann misjafna reynslu af Hollywood. Rodriguez hafði eitt lokatromp á hendinni og bauð Miller til sín í Texas þar sem höfundurinn fékk að fylgjast með þegar Rodrigu- ez tók upp atriði með Josh Hartnett. Þrír leikstjórar í stað eins Þrátt fyrir að Miller væri ekki alveg sannfærður þá varð hann það end- anlega þegar Rodriguez upplýsti hann hvernig hann ætlaði að gera myndina. Hann ætlaði ekki að breyta myndasögunum í kvikmynd heldur kvikmyndinni í myndasögur. Eftir það varð ekki aftur snúið. Ekk- ert eiginlegt handrit er til að mynd- inni því að myndasögur Millers eru handritið. Rodriguez krafðist þess enn fremur að Miller yrði aðstoðar- leikstjóri. Það gekk þó ekki þrauta- laust fyrir sig. Samtök bandarískra leikstjóra mótmæltu þessari tilhög- un þar sem Miller væri ekki í sam- tökunum. Rodriguez svaraði sam- tökunum með úrsagnarbréfi með þeim orðum að það væri annaðhvort að fylgja reglunum eða gera mynd- ina. Þar með hafði flestum hindrun- um verið rutt úr vegi og þeir gátu loksins hafist handa. Rodriguez fékk lærimeistara sinn, Quentin Tar- antino, til þess að vera með. Það er því ekki bara einn leikstjóri að Sin City heldur þrír. Sin City er ekki venjuleg kvik- mynd. Hún er tekin upp stafrænt og allir leikarar stóðu fyrir framan grænt tjald. Þeir léku því sjaldnast hvor á móti öðrum. Í einu atriði sjást nánast allir aðalleikararnir en þótt ótrúlegt megi virðast hittust þeir ekki til að taka það atriði upp. Leik- ararnir fengu enn fremur send til sín hasarblöð og vissu því nokkurn veginn hvernig kvikmyndin yrði. Þetta auðveldaði Rodriguez að fá þá leikara sem hann vildi því þeir vissu að hverju þeir gengu. Þar að auki fer það orðspor af Rodriguez að and- rúmsloftið á vinnustaðnum sé mjög afslappað og leikarar fái tiltölulega frjálsar hendur. Utangarðsmaður í Hollywood Rodriguez er hálfgerður utangarðs- maður í Hollywood. Hann var nemi í Austin í Texas þegar hann settist niður og skrifaði handritið að El Mariachi. Hann klippti myndina sjálfur og samdi við hana tónlist. Hún kostaði einungis sjö þúsund dali og Rodriguez fjármagnaði hana með því að taka þátt í allskyns til- raunum hjá lyfjafyrirtækjum. Svo fór þó á endanum að hún hlaut áhorfendaverðlaun á Sundance- kvikmyndahátíðinni. Í kjölfarið fylgdi endurgerð á henni þar sem Antonio Banderas fór með hlutverk leigumorðingjans. Myndin varð gríðarlega vinsæl og Rodriguez varð eitt heitasta nafnið í Hollywood. Myndir eins og From Dusk to Dawn, The Faculty, Once Upon A Time in Mexico voru næstu verkefni Rodriguez að ógleymdum Spy Kid-myndunum sem nutu gríð- arlegra vinsælda. Rodriguez náði þó ekki að viðhalda orðspori sínu í Hollywood og hann varð þekktari og þekktari fyrir að vera „góður vinur Tarantino“. Sin City hefur nú fleytt honum aftur í sviðsljósið og það verður forvitnilegt að sjá hvernig honum gengur að fylgja þeirri vel- gengni eftir. Rodriguez er þó ekki bara kvik- myndaleikstjóri heldur velur hann yfirleitt tónlistina við myndir sínar sjálfur. Hann valdi einnig tónlistina í Kill Bill-myndir Tarantino. Hann hafði lesið fyrstu þrjátíu blaðsíðurn- ar árið 1994 og sagðist vilja koma að þessu verkefni. Þegar Tarantino loks lét verða af því að búa til mynd- irnar hermdi hann loforðið upp á Rodriguez sem sagðist myndi gera það frítt. Vegna lagalegra ákvæða mátti hann það ekki svo hann rukk- aði einn dollara, það sama og Tar- antino fékk fyrir að koma að Sin City. Myndin verður frumsýnd í Smárabíói í kvöld. ■ ROBERT RODRIGUEZ Leikstjórinn tók alla Sin City myndina upp í myndverinu sínu í Austin, Texas. Leikararnir þurftu sjaldnast að dvelja lengi við, Bruce Willis eyddi til að mynda einungis tíu dögum í tökur. FRANK MILLER Hefur misgóða reynslu af því þegar Hollywood hefur sett myndasög- ur hans á hvíta tjaldið. Rodriguez sagði sig úr samtökum kvikmyndaleikstjóra til þess að Miller gæti verið meðleikstjóri. Fær 75 milljónir en er samt blankur Segist veiða sér sjálfur í soðið Það voru fáir leikmunir notaðir. Kannski eitt barborð, tré og bíll. Leikararnir stóðu yfirleitt einir fyrir framan grænt tjald og hittu varla samleikara sína. Hún er öll í svart/hvítu og heitir Sin City. FRUMSÝNDAR UM HELGINA Sin City Internet Movie Database 8,3 / 10 Rottentomatoes.com 78% / Fresh Metacritic.com 7,5 / 10 Who's Your Daddy Internet Movie Database 4,5 / 10 Rottentomatoes.com Metacritic

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.