Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 62
42 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Það varsveitt
stemmning
á seinni
tónleikum
Reykjavík
Rocks þar
sem hljóm-
sveitirnar
Foo
Fighters,
Queens of
the Stone Age og Mínus spiluðu. Harðir
rokkarar sem lyftu höndum og „slömm-
uðu“ voru áberandi að þessu sinni.
ÍEgilshöllinni máttisjá nokkra fræga
rokkunnendur á
borð við Sigfús Sig-
urðsson, línumann
Magdeburg, sem eyðir
sumarfríinu sínu hér á
landi. Þá létu einir þrír
júróvisionfarar sjá sig á
svæðinu því sjálfur
Jónsi mætti og þá
mátti sjá þá Vigni
Snæ og Gunnar
Óla skemmta sér.
Körfuknattleikshetjan Jón Arnór Stefáns-
son mætti og einnig gamli rokkhundur-
inn Sigmar Guðmundsson
úr Kastljósinu. Barði Jó-
hannsson í Bang
Gang lét sig ekki
vanta ekkert frekar
en Halldóra Rut
Bjarnadóttir sjón-
varpskona á Sirkus.
Það verður ínógu að snúast
hjá fréttakonunni
Önnu Kristínu
Jónsdóttur
næsta vetur. Anna Kristín hefur verið ráð-
in sem verkefnisstjóri í MA-námi fjöl-
miðlafræðideildar Háskóla Íslands en hún
er með próf í fjölmiðlafræði frá London.
Auk þess hefur Anna
verið ráðin sem dóm-
ari í Gettu betur,
spurningakeppni
framhaldsskól-
anna, þar sem
hún mun
leysa af hólmi
Stefán Pálsson
sem hefur farið
með dómara-
hlutverkið þrjú
síðustu ár.
Anna Kristín
er mikið spurninganörd og hefur verið
viðloðandi hina ýmsu spurningaleiki síð-
ustu ár. Anna Kristín verður því áberandi
á skjánum næsta vetur ásamt spyrlinum
Loga Bergmanni Eiðssyni.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
GLÆNÝR
VILTUR LAX
Stór humar - medium humar
Bandaríska leikkonan Adrienne
Frantz er væntanleg til lands-
ins. Stúlkuna þekkja íslenskir
sápuóperuunnendur sem hina
klækjóttu en seinheppnu Amber
Moore úr Glæstum vonum. Hún
ætlar að vera viðstödd Iceland
Fashion Week, sem á íslensku
útleggst sem Íslenska tískuvik-
an. Með henni í för verður um-
boðsmaður hennar og fylgdarlið
en þétt skipuð dagskrá verður
fyrir erlenda gesti á íslensku
tískuvikunni.
Frantz, sem er 27 ára gömul,
hlaut árið 2001 Emmy-verðlaun
fyrir frammistöðu sína á sviði
leiklistar. Hún er einnig hæfi-
leikarík söngkona og lagasmið-
ur og hefur reynt að hasla sér
völl í tónlistarheiminum. Nú
stefnir hún að því að ná frama í
kvikmyndaleik og þykir líkleg
til afreka.
Glæstar vonir, eða The Bold
and the Beautiful eins og þáttur-
inn heitir á frummálinu, hafa
verið sýndar á Íslandi um
margra ára skeið og þættirnir
eru sýndir í 109 öðrum löndum.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Ilmvatnssölunni Per-Scent.
Financial Action Task Force
stofnunin sem er innan OECD.
Peking í Kína.
Nýjasta tölublað hins virta tíma-
rits Time Magazine skartar
glæsilegri forsíðumynd af kaf-
ara. Þarna er enginn annar en Ís-
lendingurinn Tómas Knútsson
kafari á ferðinni og hefur það
varla oft gerst að Íslendingur
prýði forsíðu Time.
„Ég rek fyrirtæki sem heitir
Sportköfunarskóli íslands og í
gegnum tíðina hef ég verið að
bjóða blaðamönnum að koma
heim og skrifa um köfun og Ís-
land og varð það úr að tveir
blaðamenn frá þekktu kafara-
blaði komu í apríl. Ég kafaði með
þeim um allar jarðir og þeir tóku
fjöldann allan af myndum sem
greinilega hafa tekist svo vel að
myndin hefur ratað á forsíðuna
á Time Magazine,“ segir Tómas.
Inni í blaðinu er svo stærðar-
innar grein sem kallast „Wond-
ers of Europe“ þar sem fjallað er
um ýmis lönd og þar á meðal Ís-
land. „Þetta er náttúrlega voða
gaman og mikill heiður, blaðið
fæst í bókabúðum og ég er búinn
að kaupa tvö. Eitt handa mér og
eitt handa mömmu,“ segir hann
og hlær. „Blaðamennirnir sem
komu hingað skrifuðu grein í
kafarablaðið en hafa svo greini-
lega selt Time Magazine eitt-
hvað af vinnunni. Þetta var allt
saman virkilega vel gert og
þarna eru augljóslega atvinnu-
menn á ferð.“
Greinina sem blaðamaðurinn
Peter Rowland skrifaði er hægt
að finna á heimasíðunni
www.dive.is. Í henni talar hann
um ferðina til Íslands og er sér-
staklega hrifinn af ánni Silfru á
Þingvöllum. „Silfra er stórkost-
leg og þeir voru mjög hrifnir
eins og við mátti búast. Það er
endalaust hægt að fara þarna og
hún er alltaf í mismunandi litum
í hvert skipti sem maður fer,“
segir Tómas sem hefur verið í
kafarabransanum í þrjátíu ár.
„Ég hef alltaf jafn gaman af
þessu, þetta er hobbíið mitt, líf
mitt og yndi,“ segir hann kátur.
hilda@frettabladid.is
...fær Eggert Skúlason sem er að
hjóla hringinn í kringum landið
til styktar Landssamtökum
hjartasjúklinga. Eggert er á
undan áætlun þótt á móti hafi
blásið.
HRÓSIÐ
TÓNLISTIN Coldplay er uppáhalds
hljómsveitin mín, en annars er ég hinn
mesti píkupoppari og veit að við Britney
værum góðar vinkonur, hefði hún verið
í Breiðholtsskóla eins og ég.
BÓKIN Ég er latur lestrarhestur og
minnir að síðasta bókin sem ég las hafi
verið um jökla, en þá átti ég að skila
einhverju verkefni um jökla í skólanum.
Ég ligg aftur á móti yfir Séð og Heyrt,
sem er uppáhaldsblaðið mitt.
BÍÓMYNDIN Ég er algjör sökker fyrir
hryllingsmyndum, en Dirty Dancing er
ofarlega í huga þegar ég hugsa um frá-
bærar myndir. Það gerist ekki betra en
sveittur og ástsjúkur Patrick Swayze. Sá
svo nýju Batman-myndina um daginn
og fannst hún þrusugóð. Er nú orðin
yfir mig ástfangin af Christian Bale sem
er auðvitað í algjöru uppáhaldi hjá mér
þessa dagana.
BORGIN Manchester í Englandi. Ég bjó
þar ásamt tveimur vinkonum í hálft ár
þegar við vorum 21 árs og sú borg er
mér alveg að skapi. Risastór og
skemmtileg. Við vinkonurnar vorum
duglegar að mæta á leiki Manchester
United á Old Trafford, sem vekur upp
frábærar minningar eins og þegar Ryan
Giggs reyndi að fara í sleik við mig, eða
mér fannst hann alltaf horfa á mig eins
og hann vildi fara í sleik. Ég hef kannski
misskilið hann eitthvað.
BÚÐIN Ég er alveg að missa mig í kjól-
unum og „ömmuskónum“ í Spútnik.
Flott „second-hand“-föt af bestu gerð.
Svo er ég algjört litafrík og vil helst vera
í regnbogans litum, öllum í einu. Er oft
skemmtilega gagnrýnd fyrir of sumar-
legan og litríkan klæðnað, sérstaklega á
veturna.
VERKEFNIÐ Maður er á fullu við að láta
sér detta í hug allskonar vitleysur ásamt
Lilju Katrínu meðleikonu, en við vinkon-
urnar sjáum um fíflalæti og skemmti-
legheit fyrir Kvöldþáttinn á Sirkus. Þetta
er frábærlega gaman og við þakklátar
fyrir tækifærið. Innskotin eru í anda
Smack the Pony og sýnd á mánudags-
kvöldum.
AÐ MÍNU SKAPI
Coldplay, Christian Bale og Manchester United
ÍRIS DÖGG PÉTURSDÓTTIR, BLAÐAMAÐUR OG SJÓNVARPSTRÚÐUR Á SIRKUS
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
Á forsíðu Time Magazine
TÓMAS KNÚTSSON: ÍSLENSKUR KAFARI
TÓMAS KNÚTSSON Hann komst óvænt á forsíðu hins virta og þekkta tímarits Time Magazine og má því segja að hann sé skyndilega
orðinn heimsfrægur kafari.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R
TIME Óneitanlega glæsileg forsíða.
Amber úr Glæstum
vonum á lei› til landsins
ADRIENNE FRANTZ
Hún var byrjuð að syngja, leika og dansa
þegar hún var þriggja ára gömul.
Lárétt: 1 fögur, 6 þvottaefni, 7 slá, 8
sólguð, 9 forfaðir, 10 hlass, 12 skel, 14
kvíði, 15 varðandi, 16 til, 17 snák, 18
málning.
Lóðrétt: 1 gamall, 2 leiða, 3 endir + k, 4
torveldur, 5 lít, 9 keyra, 11 fiskur, 13 for-
móðir, 14 herbergi, 17 byrði.
Lausn
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lárétt:1falleg,6omo,7rá,8ra,9afi,
10æki,12aða,14sút,15um,16að,17
orm,18lakk.
Lóðrétt:1forn,2ama,3lo,4erfiður, 4
gái,9aka,11lúða,13amma,14sal,17
okt
I LTUR L