Fréttablaðið - 07.07.2005, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
86
51
06
/2
00
5
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is
fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1.
Mánaðargjald GSM er 600 kr.
Ég hringi heim, ég hringi í Gunna
í London, ég hringi í konuna og
sendi henni SMS.
Allt þetta á 0 kr.
0 kr. 0 kr. 0 kr.
120 mínútur á mánuði úr GSM í heimasíma í
einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga
mest samskipti við.
Þú heldur áfram að tala við GSM vin fyrir 0 kr.
á mínútuna í 60 mín. á dag og senda honum
30 SMS fyrir 0 kr. á dag.
Þú hringir heim úr GSM símanum þínum án þess
að greiða mínútugjöld í allt að 60 mínútur á dag.
Og1 lækkar verulega kostnað heimila sem eru með GSM áskrift, Heimasíma og Internet hjá Og Vodafone.
Kynntu þér einnig ávinninginn fyrir Heimasíma og Internet.
GSM
Vinur í útlöndum GSM vinur Þegar þú hringir heim
Mikil vitundarvakning hefurverið um fátækt að undan-
förnu. Live 8 tónleikarnir eru ný-
afstaðnir undir slagorðunum: Út-
rýmum fátækt! Yfirvöld eru hvött
til að fella niður skuldir fátækustu
ríkjanna. Mörg lönd eiga sér ekki
viðreisnar von vegna skulda.
Myndir af sveltandi börnum eru
sýndar í sjónvarpi og við erum
hneyksluð og reið. En erum við
eins saklaus og við höldum?
Á VISSAN hátt viðgengst þræla-
hald ennþá. Að vísu búa þrælarnir
ekki fyrir utan heima hjá okkur
lengur heldur heima hjá sér í
Þriðja heiminum. Við erum líka
búin að flytja bómullar- og sykur-
akrana þangað líka. Í staðinn
sleppum við að gefa þrælunum að
éta, eða veita þeim húsaskjól og
heilbrigðisþjónustu. Við þurfum
heldur ekki að tryggja þá. Við
meira að segja borgum þeim lúsar-
laun fyrir þannig að okkur finnist
þeir ekki vera þrælar. Við látum
eins og þeir séu frjálsir en þeir fá
þó aldrei að koma hingað, heim til
okkar.
ÞRÆLARNIR sjá okkur fyrir
ódýrum tískufatnaði, sykri, kaffi,
ávöxtum, olíu, tölvum, plastvörum,
matvælum, hveiti, bílum og bara
flestu sem við notum í okkar dag-
lega lífi. Við byggjum afkomu okk-
ar á ódýru vinnuafli íbúa þriðja
heimsins. Þar er fólk að búa til skó
á okkur fyrir 50 kr. á tímann
þannig að við getum gengið á lofti.
ÞAÐ þýðir ekki að skella skuld-
inni á hin ósýnilegu „yfirvöld“.
Þau eru bara lýðræðislega kosnir
fulltrúar okkar. Við erum sjálf
sökudólgarnir og lífsstíll okkar.
Meirihluti mannkyns stritar svo
við getum lifað við „lágmarksþæg-
indi“. 90% af auðæfum heimsins
eru í höndum 5% jarðarbúa. Við
erum hluti af þessum heppnu 5%
prósentum. Við erum þrælahaldar-
ar nútímans. Það er til nóg fyrir
alla. Fátækt verður ekki til af
sjálfu sér, hún verður til út af
græðgi. Ef við ætlum að útrýma
fátækt verðum við fyrst að útrýma
græðgi og þá aðallega okkar eigin.
VIÐ þurfum að fara að lifa ein-
faldara lífi, svo þau geti einfald-
lega lifað! Erum við tilbúin að
sleppa þrælunum og fara að borga
500 kr. fyrir einn kaffibolla og
3.000kr. fyrir hálft kíló af sykri?
Höfum við efni á því að hætta að
versla í Bónus og fara að kaupa í
matinn í Yggdrasil?
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Fátækt