Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 30
Fatnaður Írisar ber nafnið Krúsilíus. Blár bolur með fiðr- ildi 4.300 kr. pils 8.700 kr. gyllt hálsmen 2.500 kr. Rautt dress eftir Kolbrúnu sem hannar undir merkinu Kow. Bolur 4.360 kr, pils 7.800 kr. Fallegar varir Til að viðhalda fallegum og mjúkum vörum er besta að drekka nógu mikið af vatni og hafa varasalva ætíð við höndina til að koma í veg fyrir að þær þorrni. [ ] Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776 Opið virka daga kl. 11:00-18:00 Útsala 20 - 50% afsláttur Opið mán-fös 10-18 www.atson.is Brautarholti 4 Tískuvöruverslun Glæsibæ Sími 588 4848 Útsalan í fullum gangi Frakkar í þrem litum 2.950 Ný tæki - Betra verð! 17.900.-kr. kr. 12.900.- S: 588 5518 Opnunartími • Mörkinni 6 mán. – fös. 10 – 18 • lau. 10 – 16 Mikið úrval af yfirhöfnum á 50% afslætti Pjúra íslensk hönnun Í versluninni Pjúra við Ingólfsstræti er seld falleg íslensk hönnun á viðráðanlegu verði. Verslunin er björt og skemmtileg. Þar er opið alla virka daga milli klukkan 12 og 18 og á laugardögum frá 12 til 17. Þær Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir, Hildur Hinriksdóttir, Íris Eggertsdóttir og Elín Arndís Gunnarsdóttir eru konurnar á bak við Pjúra. Þær hafa unnið að hönnun og listsköpun undanfarin ár en létu í vor gamlan draum rætast og opnuðu verslun þar sem þær selja eigin hönnun. Búðin fór af stað í apríl og að sögn Kolbrúnar gengur reksturinn vel. „Við hönnum allt og saumum sjálfar, hver og ein undir sínu merki. Þetta er fatnað- ur á konur og börn og við erum líka með tölu- vert úrval af fatnaði fyrir barnshafandi konur,“ segir Kolbrún. Búðin er björt og falleg og hönnun þeirra vinkvennanna nýtur sín vel. Verslunin er í sama húsi og Frú Fiðrildi og saman mynda búðirn- ar skemmtilega heild. Stemningin er notaleg og stundum er staðið fyrir skemmtilegum uppá- komum. Um daginn var til að mynda haldið dömukvöld í Pjúra og þangað mættu um 100 manns. Þessa dagana er sumarútsala í Pjúra og góður afsláttur af völdum vörum. Pils, kjólar og bolir eru á tilboði og hægt er fá einstakar flíkur á frá- bæru verði. thorgunnur@frettabladid.i Því ódýrari því betri Lágverðvöruverslanir í Bretlandi eru að gera miðlungsverðs- vöruverslunum lífið leitt. Leikkonan Sienna Miller er mikið tísku- tákn og finnst gaman að eyða peningun- um sínum í lágverðvöruverslunum. Lágverðsvöruverslanir eru al- deilis að sækja í sig veðrið – sér- staklega í Bretlandi þar sem ríka og fræga fólkið eyddi 4,8 milljón- um punda meira í skó og föt í lág- vöruverslunum í fyrra heldur en árið áður. Stjörnur eins og Sienna Miller og ofurfyrirsætan Kate Moss versla mikið í lágverðsvöruversl- unum og blómstra því verslanir eins og Asda’s George og TK Maxx um þessar mundir. Miðl- ungsverðsverslanir eins og Marks & Spencer og Next heyja hins vegar stöðuga baráttu gegn lágverðvöruverslunum. Það gildir greinilega í Bret- landi að því ódýrari sem verslun- in er þeim mun betri og þurfa verslanir annað hvort að vera ódýrar eða sérstakar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY Drottningarilmur frá McQueen ALEXANDER MCQUEEN HEFUR BÚIÐ TIL ILMVATN Á VIÐRÁÐANLEGU VERÐI SEM ER SÆMANDI FYRIR DROTTNINGAR. Hönnuðurinn vinsæli Alexander McQueen ætlar að setja nýjan ilm á markaðinn í haust sem heitir einfald- lega My Queen. Þróunaraðilar ilmsins eru YSL Beaute og samkvæmt þeim á ilmurinn að kalla fram fjögur viðbrögð: „unaðslegt“, „dul- arfullt“, „ljómandi“ og „höfugur“. Ilmur- inn sameinar alla þessa flokka sem túlka fjögur ilmsett sem búa til My Queen. Nýi ilmurinn mun kosta minna en ilmir frá Chanel og Christian Dior en 35 millilítra glas mun kosta rúmlega þrjú þúsund krónur. Hildur hannar barnafatnað undir merkinu HiN. Buxur 3.500 kr. mussa 3.000 kr Rósóttur kjóll eftir El- ínu sem notar merkið elina. Kr. 13.700. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Skemmtilegar barna- húfur eftir Hildi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.