Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
85
20
06
/2
00
5
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is
fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1.
Ég hringi heim til allra,
ég næ Kalla í gemsanum
og hringi til Binnu í Köben.
Allt þetta á 0 kr.
HEIMASÍMI
Og1 lækkar verulega kostnað heimila sem eru með GSM áskrift, Heimasíma og Internet hjá Og Vodafone.
Kynntu þér einnig ávinninginn fyrir GSM og Internet.
Mánaðargjald í Heimasíma er 1.340 kr.
0 kr. 0 kr. 0 kr.
500 mínútur á mánuði í alla heimasíma
innanlands.
120 mínútur á mánuði úr heimasíma á
Íslandi í heimasíma í einu af þeim 30
löndum sem Íslendingar eiga mest
samskipti við.
Þú heldur áfram að að tala við GSM
vin fyrir 0 kr. í 60 mínútur á dag.
innanlands vinur í útlöndum í GSM vin
Ég hef verið að velta karl-mennsku mikið fyrir mér undan-
farið. Mér finnst ég nefnilega stund-
um vera svo mikil lydda. Stundum
óska ég þess að ég gæti verið pínu-
lítið eins og Tony Soprano. Hann
leysir sín vandamál hratt og örugg-
lega. Töffararnir í bíómyndunum fá
sér viskíglas og fara svo og taka í
lurginn á óvinum sínum og sofa hjá
þremur konum í leiðinni. Ekkert
kjaftæði eða væl, bara karlmennska.
EN HVAÐ er karlmennska? Er það
að vera duglegur að leysa vanda-
mál? Er það að vera sterkur? Er
karlmennskan kannski mæld í vöðv-
um eða því hversu mörgum konum
maður hefur sofið hjá? Verða sannir
karlmenn aldrei hræddir? Fer karl-
mennska eftir typpastærð? Er karl-
mannlegt að þegja? Hver er mesta
karlmennið, Clint Eastwood, Egill
Skallagrímsson, bandaríski land-
gönguliðinn, James Bond, Arnold
Schwarzenegger eða Donald Trump?
ÉG HELD að ímynd karlmennsk-
unnar sé á villigötum. Það er ekkert
karlmannlegt við það að berja fólk
eða drepa. Það er bara heimskt.
Drykkja er ekki karlmannleg heldur
frekar aumingjaleg. Sannir karl-
menn eiga ekki að þurfa að drekka í
sig kjark eins og einhverjir rónar.
Það er ekkert töff við að reykja. Það
er álíka töff og bora í nefið. Hefnd
er ekki karlmannleg því sannir karl-
menn hafa stjórn á reiði sinni. Karl-
mennska verður heldur aldrei mæld
í peningum eða völdum því oft ráða
litlir kallar miklu. En það þarf mik-
inn kjark og mikla karlmennsku til
að geta fyrirgefið.
KARLMENNSKA er ekki heimsk
eða frumstæð. Hún er gerandi afl.
Hún býr í hjarta og samvisku hvers
manns. Hin fullkomna karlmennska
er auðmýkt. Jóhannes Páll páfi var
sannur karlmaður. Hin fullkomna
karlmennska er æðruleysi, að trúa á
Guð og óttast ekkert þess vegna.
Hinn fullkomni karlmaður þorir að
viðurkenna vanmátt sinn og að hann
geti ekki stjórnað öðrum en sjálfum
sér. Karlmennska er sjálfsstjórn.
Hún er sjálfsagi. Það er karl-
mennska að rétta hina kinnina.
Ghandí var meira karlmenni en allar
hasarhetjur, kraftajötnar og millar
heimsins samanlagðir. En mesta
karlmenni allra tíma er að mínum
dómi Jesús. Töffarar trúa á Jesúm
og elska náunga sinn eins og sjálfa
sig. jongnarr@frettabladid.is
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Karl-
mennska