Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 59
GLENN CLOSE Samkvæmt fyrirtæki
Webbers er hugsanlegt að Ewan McGregor
og Hugh Jackman leiki einnig í myndinni.
Close í Sunset
Boulevard
Glenn Close leikur í kvikmynd
sem gerð verður eftir söngleikn-
um Sunset Boulevard eftir
Andrew Lloyd Webber. Close lék í
söngleiknum þegar hann var sett-
ur á svið árið 1993 í Los Angeles
og fékk hún Tony-verðlaun fyrir
hlutverk sitt í honum á Broadway.
Webber gerði söngleikinn eftir
sögu kvikmyndar frá árinu 1950,
en nýja Sunset Boulevard, sem
verður frumsýnd um jólin 2006,
verður fjórða stóra myndin sem
gerð er eftir söngleik Webbers.
Áður hafa Jesus Christ Superstar,
Evita og The Phantom of the
Opera verið kvikmyndaðir. ■
Hin fjögur fræknu
á toppinn
Fantastic Four var aðsóknar-
mesta kvikmyndin í Bandaríkjun-
um um helgina og skaut þar með
stórmyndunum War of the Worlds
og Batman Begins ref fyrir rass.
Fantastic Four hefur ekki hlotið
góða dóma en aðsóknin á myndina
rauf nítján vikna lægðartímabil í
kvikmyndageiranum vestra.
„Það þurfti fjórar ofurhetjur
til að enda þessa lægð og Holly-
wood er þakklátt,“ sagði Dergara-
bedian, forstjóri Exhibitor
Relations sem gefur frá sér list-
ann yfir vinsælustu myndirnar.
Fantastic Four er byggð á sam-
nefndum Marvel teiknimyndasög-
um en 11 ár eru liðin frá því byrj-
að var að huga að bíómynd
byggðri á ævintýrum fjóreykisins
magnaða. ■
FRUMSÝNINGIN Julian McMahon,
Jessica Alba, Michael Chiklis og Maria
Menounos leika í myndinni.