Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 22
Costa del Sol
M
all
or
ca
Sóla
rlottó
• Þú velur áfangastað og ferðadag
og tekur þátt í lottóinu
um hvar þú gistir.
• Viku fyrir brottför
staðfestum
við gististaðinn.
Sólríkt haust
-sama sólin, sama fríið en á verði fyrir þig.
*Innifalið er flug, gisting í 7 nætur,
flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
á mann miðað við 2 eða 4 í stúdíói eða íbúð.
Enginn barnaafsláttur.
Spilaðu með!
Krít
22. 29. ágúst
5. 12. 19. sept.
Mallorca
24. 31. ágúst
7. sept.
Costa del Sol
25. ágúst
1. 8. og 15. sept.
Portúgal
22. 29. ágúst
5. 12. og 19. sept.
Netverð frá
Óhressir Danir
Danir eru ekkert sérstaklega ánægðir með þá þró-
un að erlendir fjárfestar geti keypt fyrirtæki í Dan-
mörku. Nú hafa erlendir fjárfestar keypt hlut í
Legolandi, sem er eitt af krúnudjásnum
Dana. Berlingske Tidende sagði frá tíð-
indunum undir fyrirsögninni „Legoland
í útlenskar hendur“. Líklega er frekar
um að ræða þjóðarrembing af verstu
gerð en vantrú á rekstrargetu erlendra
aðila.
Íslendingar hafa keypt Magasin og flug-
félögin Sterling og Maersk og Danir
hafa ekkert tekið þeim opnum örmum.
Danir verða bara að fara að sætta sig
við það að erlendir fjárfestar kaupi
rekstur í Danmörku, sérstaklega í ljósi
þess að þeir virðast ekki hafa viljað það
sjálfir áður. Í viðskiptum er ekkert til sem heitir „ég
á“.
Nú er bara að bíða og sjá hver kaupir Tívolíið sem
er almenningshlutafélag og ekki væri það slæmt ef
þar yrðu Íslendingar á ferð.
Tvo milljarða í KB banka
Eyrarfeðgarnir, Þórður Magnússon og
Árni Oddur Þórðarsson, fjölluðu með
jákvæðum hætti um samstarf stjórn-
enda og eigenda KB banka í Markaðin-
um í gær. Sjálfir hafa þeir verið stórir
hluthafar í KB banka allt frá því að
Gilding sameinaðist Búnaðarbankan-
um hf. Eftir sameininguna keyptu þeir
meira í bankanum og áttu orðið um
fjórðungshlut áður en hann var endan-
lega einkavæddur og sameinaður
Kaupþingi. Það vakti því nokkra athygli
þegar þeir seldu stóran hlut í KB banka
fyrr á árinu og einbeittu sér meira að
Össuri, Bakkavör og Marel. Væntingar þeirra til KB
banka hafa þó síst minnkað því nýlega fjárfestu
þeir aftur í bankanum fyrir um tvo milljarða króna.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.180,52
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 148
Velta: 723 milljónir
-0,19%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Mótorhjólaframleiðandinn
Harley-Davidson tilkynnti að
hagnaðurinn á öðrum ársfjórð-
ungi minnkaði um fjögur prósent
milli ára.
Bernard Ebbers, einn af fyrr-
verandi forstjórum WorldCom,
var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir
tengsl sín við WorldCom-
hneykslið. Hann grét í dómssal
við uppkvaðninguna.
Olíuverð hækkaði í gær og var
nálægt 61 Bandaríkjadal á fat.
Olíuverðið hækkar þrátt fyrir spár
um minnkandi eftirspurn og
meira framboð.
Bandaríkjadalur hækkaði
gagnvart flestum gjaldmiðlum í
Evrópu. Verð á gulli í heiminum
lækkaði.
22 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 41,30 +0,49% ... Bakkavör
38,40 +0,26% ... Burðarás 16,00 +0,00% ... FL Group 14,40 -1,03% ...
Flaga 0,00% ... Grandi 8,35 +0,00% ... Íslandsbanki 13,55 -0,73% ...
Jarðboranir 0,00% ... KB banki 548 +0,00% ... Kögun 58,50 +0,00% ...
Landsbankinn 17,10 -1,16% ... Marel 58,20 +0,00% ... SÍF +0,00 ...
Straumur 12,20 +0,41% ... Össur 77,50 -0,64%
Actavis +0,49%
Straumur +0,41%
Bakkavör +0,26%
Landsbankinn -1,16%
FL Group - 1,03%
Íslandsbanki - 0,73%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Hlutabréf í félaginu halda
áfram að lækka og sala
minnkar stig af stigi.
Sölutölur bresku verslunarkeðj-
unnar Marks og Spencer féllu um
5,4 prósent á síðasta ársfjórðungi.
Er það sjöundi ársfjórðungurinn í
röð sem sala fyrirtækisins minnk-
ar.
Hlutabréf í félaginu hafa lækk-
að undanfarið og standa nú í 360
pensum. Fyrir ári bauð Phillip
Green, sem á sínum tíma undirbjó
Arcadia-yfirtökuna ásamt Baugs-
mönnum, 400 pens á hlut í fyrir-
tækinu.
Fjárfestar eru æfir vegna
slæms gengis og segja stjórnar-
formanninn Stuart Rose ekki
starfi sínu vaxinn: ,,Herra Rose
hefur hálft ár til að bjarga fyrir-
tækinu. Hlutabréf í félaginu þola
það ekki haldi sala áfram að
minnka“, sagði einn hlutafjáreig-
enda.
Fyrr í sumar komu fram frétt-
ir um að íslenskir fjárfestar hefðu
keypt þriggja prósenta hlut í
Marks & Spencer á tæpa tuttugu
milljarða króna. Kaupin fengust
ekki staðfest en breskir fjöl-
miðlar töldu að Baugur ætti í hlut.
-jsk
Marks & Spencer í vandræðum
Atvinnuleysi var 2,1 prósent í júní
samkvæmnt vef Vinnumálastofnun-
ar. Atvinnuleysi var 2,5 prósent í
Reykjavík en 1,5 prósent á lands-
byggðinni.
Atvinnuleysi hefur minnkað
undanfarið samhliða miklum hag-
vexti. Á sama tíma í fyrra voru 3,1
prósent landsmanna án atvinnu.
Greiningardeild Íslandsbanka segir
spennu hafa myndast á vinnu-
markaði sem líklega leiði til launa-
skriðs og aukins verðbólguþrýst-
ings.
Spáir greiningardeildin því að
Seðlabankinn mæti aukinni spennu
á vinnumarkaði með vaxtahækk-
unum, vextir standi nú í 9,5 prósent-
um en hækki líklega í tíu prósent
áður en árið er á enda. -jsk
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
NÓG AÐ GERA Atvinnuleysi var 3,1 pró-
sent í júní. Fleiri eru atvinnulausir í höfuð-
borginni en úti á landi.
Færri án atvinnu
Hætti› notk-
un evrunnar
Næststærsti banki veraldar,
HSBC, segir sameiginlega gjald-
eyrisstefnu Evrópu ganga svo illa
að það kynni að þjóna hagsmunum
sumra aðildarríkjanna að hætta
notkun evrunnar.
Í nýrri skýrslu bankans segir
að hagkerfi Ítalíu, Þýskalands og
Hollands hafi öll borið skaða af
vaxtastefnu Seðlabanka Evrópu
og ef til vill ættu löndin að taka
upp eigin gjaldmiðla að nýju.
Verst er komið fyrir Ítölum.
Nema skuldir þeirra
107 prósent af
landsframleiðslu
og hagvöxtur hef-
ur verið neikvæð-
ur. -jsk
SA efast enn
Samtök atvinnulífsins lýsa áfram
yfir efasemdum um að það geti
samrýmst reglum um Íbúðalána-
sjóð að hann láni, með vísan til
kröfu um áhættustýringu, millj-
arðatugi til sparisjóða og við-
skiptabanka.
Árni Páll Árnason sagði í lög-
fræðiáliti sínu, sem greint var frá
í Markaðinum í gær, að Íbúðalána-
sjóði væri skylt að ávaxta peninga
sem bærust vegna uppgreiðslna
íbúðareigenda á eldri lánum. Lán
til sparisjóða og banka væri hluti
af áhættustýringu og samrýmdist
reglum um Íbúðalánasjóð.
Á heimasíðu SA segir að lög-
fræðiálitið skýri fátt um þetta
enda sé ekkert upplýst um efni
lánasamninganna við Íbúðalána-
sjóð. – bg
VERSLUN MARKS & SPENCER Íslenskir fjárfestar voru fyrr í sumar sagðir hafa keypt
þriggja prósenta hlut í félaginu. Sala hefur minnkað stig af stigi síðustu sjö ársfjórðunga.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »