Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 52
Ofninn hitaður í 220°C. Tómatarnir skornir í helminga og þeim raðað í eldfast fat með skurðflötinn upp. Kryddaðir með kummini, sykri, pipar og salti. Settir í ofninn og bakaðir í um 45 mínútur. Þá er olíunni dreypt jafnt yfir þá og þeir bakaðir í 10-15 mínútur í viðbót. Látnir kólna þar til þeir eru volgir. Salatblandan sett í skál eða á fat, tómötunum blandað saman við og olíunni úr mótinu hellt yfir. Nokkrar flögur skornar af parmesanosti og dreift yfir. 8-10 íslenskir tómatar 1 tsk. kummin (cumin) 1 tsk. sykur nýmalaður pipar salt 6 msk. ólífuolía 1 íslensk salatþrenna, eða klettasalat parmesanostur (biti) Fleiri ljúffengar uppskriftir og fróðleikur á www.islenskt.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S G RA 2 85 65 06 /2 00 5 bökuðum Salat með tómötum DEAKIN ESTATE SHIRAZ: Ólgandi og afgerandi Áströlsku vínin Deakin Estate sem nýlega komu á markaðinn hérlendis hafa vakið mikla athygli og þykja öflug vín á hagstæðu verði. Deakin Estate leggur mik- ið upp úr því að rækta gæðaþrúgur og framleiða úr þeim vín með ólgandi bragði og afgerandi karakter. Deakin Estate er framleitt í Victoria, einu frjósamasta og gjöfulasta svæði Ástralíu. Nafnið Deakin er til heiðurs Alfred Deakin, fyrrum for- sætisráðherra Ástralíu og frumkvöðli í landbún- aði og víngerð. Hér á landi fást fimm tegundir vína frá Deakin Estate í öllum helstu Vínbúðum. Eitt þeirra er Deakin Estae Shiraz sem þykir ein bestu kaup í áströlskum vínum í dag. Áströlsk blöð hafa verið óspör á lofsyrði, The Courier Mail gaf víninu 90 stig og telur það „bestu kaup“ og Herald Sun telur það með bestu vínum í sínum verðflokki. Verð í Vínbúðum 1.290 kr. 36 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Anna María Ragnarsdóttir er ekki í vandræðum með að miðla upp- skrift að hollum og góðum réttum enda hefur hún unun af því að búa til eitthvert gúmmulaði. Anna María er snyrtifræðingur hjá Clarins en hún hefur líka verið viðriðin líkamsræktargeirann og kennir nú leikfimi í World Class. Aðspurð um uppáhaldsmatinn sinn segist hún vera afar svag fyrir taílenskum og indverskum réttum en hún sé jafnframt orðin ansi lagin við að útbúa kjúklinga- salöt og hún gefur uppskrift af einu slíku hér fyrir neðan. „Ég elda eiginlega bara kjúklingarétti, fyrst og fremst af því að kjúklingur er svo góður en líka vegna þess að hann er hollur og próteinríkur. Maður er jú alltaf að reyna að hugsa um heilsuna og mataræðið þótt maður leyfi sér ýmisleg við og við,“ segir Anna María og bætir við að hún eldi mest af kjúklingabringum. Hún segist oft vera bara með kjúkl- ingabringur og gott salat með. Þótt Anna María sé ein í heimili með syni sínum eldar hún nánast alltaf. „Mér finnst voða gaman að elda og finnst gaman að prófa eitt- hvað nýtt þegar ég er með matar- boð. Þá glugga ég gjarnan í Gest- gjafann eða fæ góð ráð hjá bróður mínum sem er kokkur af guðs náð. Ég hef lært heil ósköp af hon- um, sérstaklega þegar kemur að taílenskri matargerð.“ Anna María segist nánast alltaf eiga pestó og salat í ísskápnum ásamt tómötum. Hún notar aldrei niðursoðna tómata heldur ferska því það er svo mikið af andoxun- arefnum í þeim sem eru svo holl. Ég versla mjög mikið í Maður lifandi. Ég kaupi spelt pasta í stað venjulegs því stráknum mínum finnst pasta svo gott og ef það er spelt þá get ég fengið mér með honum,“ segir hún og hlær. KJÚKLINGASALAT FYRIR 2-4 2 kjúklingabringur Smá pipar 3 msk. bbq-sósa 1 poki jöklasalat 1/2 poki klettasalat 2 tsk. grænt pestó 1 box kirsuberjatómatar 1 rauð paprika 1/2 rauðlaukur 1/2 krukka af fetaosti með sól- þurrkuðum tómötum Smá hvítlaukssalt 2 lúkur nachos-flögur Anna María byrjar alltaf á því að skera kjúklingabringurnar í litla munnbita og steikja þá á pönnu upp úr smá olíu. Þegar bit- arnir eru orðnir brúnaðir setur hún bbq-sósuna út í, kryddar með pipar og lætur malla í nokkrar mínútur. Svo setur hún kjúkling- inn í skál og lætur hann kólna meðan hún útbýr salatið. Þá setur hún salatið í skál og blandar því saman. Að þessu loknu er pestó- inu bætt út í og salatinu velt vel upp úr því. Síðan eru kirsu- berjatómatar skornir í tvennt og bætt út í ásamt papriku sem er gróft skorin. Næst er rauðlaukur- inn saxaður afar smátt og settur út í ásamt fetaostinum. Anna María leyfir olíunni úr krukkunni að fljóta með. Svo kryddar hún ör- lítið með hvítlaukssalti til að skerpa á salatinu. Svo eru nashos- flögurnar muldar yfir og síðast er kjúklingnum settur með og bland- að saman við salatið. Anna María lætur salatið standa í um það bil 20 mínútur inni í ísskáp áður en það er borið fram svo það verði meira djúsí. Salatið er borið fram með snittubrauði og pestói en líka er voða ljúffengt að hafa spelt- brauð með. martamaria@frettabladid.is Skvísulegt kjúklingasalat MYNDARLEG Anna María Ragnarsdóttir gerir salatið oft enda hentar það vel fyrir svona dömur sem koma seint heim á kvöldin og hafa ekki allan heimsins tíma til að eyða í eldhúsinu. Hvaða matar gætir þú síst verið án? Ég er sólgin í allt ítalskt og indverskt. Einn af mínum uppáhaldsréttum er Tikkamasala með kjúklingi, en kannski bara af því ég er orðin svo góð í að matbúa það. Fyrsta minningin um mat? Ég hef alltaf verið alger mathákur og hef alltaf elskað að borða. Ég held að það sé mömmu að þakka að ég er ekki matvönd því hún byrjaði snemma að gefa okkur systkinunum rammís- lenskan mat eins og sviðakjamma og slátur. Ég var reyndar ekki sérlega hrif- in af sviðakjömmum við fyrstu smökk- un en steingleymdi hvernig þeir litu út þegar ég byrjaði að borða þá því mér fannst þeir svo góðir. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Kibba vinkona mín er besti kokkur sem ég þekki. Besti matur sem ég hef fengið er kjúklingaréttur sem hún mat- reiddi eitt sinn en annars eru matar- boðin hjá henni ógleymanleg. Bestu matarboðin sem ég fer í eru hjá henni. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Nei, mér finnst allur matur góður. Leyndarmál úr eldhússkápunum? Mér finnst alltaf gott að nota sýrðan rjóma í staðinn fyrir venjulegan af því hann er miklu hollari. Þegar ég bý til túnfisksalat þá nota ég sýrðan rjóma í staðinn fyrir majones. Það klikkar aldrei. Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Þá borða ég mikið grænmeti og heim- sæki Grænan kost eða Á næstu grös- um. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Ég á alltaf AB mjólk, djús, ost, smjör og brauð ásamt mjólk. Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða rétt tækir þú með þér? Ég tæki með mér Tikkamasala- kjúkling. Hvað er það skrítnasta sem þú hef- ur borðað? Það er án efa hrár fiskur í fyrsta skipti sem ég fékk mér sushi, en um leið og ég setti fyrsta bitann upp í mig var ekki aftur snúið. Sus- hi er einn af mínum uppá- haldsmat í dag. MATGÆÐINGURINN NÍNA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR LJÓSMYNDARI FR ÉT TA B LA Ð IÐ : G VA Kann a› meta rammíslenskan mat Frankhof Hocheimer Daubhaus Riesling Kabinett eins og þetta hvítvín heitir fullu nafni, á sér trygga aðdá- endur á Íslandi enda búið að vera í sölu í Vínbúðum um áratuga skeið. Þetta er ferskt og gott vín með töluverðri sætu sem býður manni upp á að njóta þess eins og sér eða með góðum mat eins og laxi, salati og hvítu kjöti. Það er ein- staklega gott með austurlenskum réttum svo sem indverskum korma-kjúklingi eða svínakjöti í vindaloo. Ekki skemmir verðið fyrir en flaskan kostar ekki nema 890 kr. og fæst í flest öllum Vínbúðum. Vert er að geta þess að í þeim búðum þar sem kæliskápur er til staðar má finna vínið í þeim. Verð í Vínbúðum 890 kr. HOCHEIMER: Stöðugt vinsælt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.