Fréttablaðið - 16.07.2005, Qupperneq 4
HELGARUMFERÐIN Þung umferð var í
báðar áttir frá Reykjavík í gær. Tvær skipu-
lagðar hátíðir verða haldnar á Norðurlandi
um helgina auk þess sem Þorláksmessu á
sumri verður fagnað í Skálholti.
Mikil ferðahelgi framundan:
Ve›raskipti á
morgun
HELGIN Besta veðursins er að
vænta á austurhluta landsins í dag
að sögn Sigurðar Þ. Ragnarssonar
veðurfræðings. „Þar verður
sæmilega sólríkt og hlýtt með
hægum vindi,“ segir Sigurður.
„Hins vegar verður líklega væta
vestast á landinu, rigning eða
skúrir.“
Úrkomusvæðið færist síðan
með norðurströndinni og má
vænta vætu í öllum landshlutum á
morgun að sögn Sigurðar. Þá
mega landsmenn eiga von á
veðraskiptum. „Þá kemur norðan-
átt með björtu veðri syðra,“ segir
Sigurður. „Þá gæti orðið sólríkt í
höfuðborginni en samfara því má
búast við kólnandi veðri, einkum
norðanlands.“ - ht
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,66 64,96
113,7 114,26
78,14 78,58
10,473 10,535
9,797 9,855
8,314 8,362
0,5771 0,5805
93,87 94,43
GENGI GJALDMIÐLA 15.07.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
109,5038
4 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Minnisvarði afhjúpaður á Ísafirði:
Sigldu á breskt tundurduflabelti
MINNISVARÐI Minnisvarði var af-
hjúpaður á Ísafirði í gær um
fólkið sem lét lífið þegar sex skip
sukku út af Vestfjörðum í síðari
heimsstyrjöld. Minnisvarðinn er
gjöf frá rússneskum stjórnvöld-
um í tilefni af því að 60 ár eru um
þessar mundir liðin frá lokum
styrjaldarinnar.
Hinn 6. júlí 1942 fórust fjögur
bandarísk flutningaskip, rúss-
neska skipið Rodina og breski
tundurspillirinn Niger út af Vest-
fjörðum þegar skipalestin sigldi
inn á breskt tundurduflabelti. 200
Rússar létust þennan dag, þar á
meðal konur og börn rússneskra
stjórnarerindreka í London.
Daginn áður höfðu þýskir kaf-
bátar, herskip og flugvélar sökkt
12 skipum bandamanna á Íslands-
miðum í einni mannskæðustu
sjóorrustu styrjaldarinnar. Fyrir
vikið ákvað skipalest PQ-13,
skipalestin sem Rodina var hluti
af, að taka á sig krók og sigla
norður fyrir Ísland. Siglingafræð-
ingarnir sem vísuðu veginn gerðu
hins vegar afdrifarík mistök; þeir
villtust af leið og sigldu beint inn í
breskt tundurduflabelti út af
Horni á Vestfjörðum og öll skipin
sukku með manni og mús.
Rússneski sendiherrann á Ís-
landi, Alexander Rannikh, hafði
frumkvæði að því að reisa minnis-
varðann sem í gær var afhjúpaður
á Ísafirði í minningu þeirra sem
létust þennan dag. - oá
Eftirl‡stur efnafræ›-
ingur handtekinn
Egypskur efnafræ›inemi hefur veri› handtekinn vegna gruns um a› hafa a›-
sto›a› vi› undirbúning sprengjutilræ›anna í Lundúnum. Fjöldi látinna í til-
ræ›unum er kominn upp í 55.
HRYÐJUVERK Lögreglan í Kaíró
handtók í gær egypskan efna-
fræðinema sem grunaður er um
að hafa átt aðild að hryðjuverkun-
um í Lundúnum í síðustu viku.
Leiðtogar múslima í Bretlandi
heimsóttu Leeds í gær og hétu því
að taka öfgamenn í sínum röðum
fastari tökum.
Að beiðni bresku lögreglunnar
handtók lögreglan í Kaíró, höfuð-
borg Egyptalands, Magdi Ma-
hmoud al-Nashar, 33 ára gamlan
doktorsnema í efnafræði við há-
skólann í Leeds, fyrir nokkrum
dögum. Hann er grunaður um að
hafa aðstoðað við að búa til
sprengjurnar sem notaðar voru
við árásirnar í Lundúnum 7. júlí.
Enn fremur er talið að al-Nashar
hafi lánað hryðjuverkamönnun-
um íbúð sína til undirbúningsins
en hann fór frá Bretlandi í júlí-
byrjun.
Egypskur embættismaður
greindi frá því að al-Nashar hefði
staðfastlega neitað öllum sakar-
giftum heldur sagst vera í fríi í
föðurlandi sínu og áformaði að
snúa aftur. Máli sínu til stuðnings
benti hann á að allar hans eigur
væru enn í Leeds.
Breska lögreglan hefur gert
húsleit á heimili al-Nashar en
ekki er vitað hverju hún hefur
skilað. Fyrr í vikunni fundust
sprengjur í húsi í Leeds sem
búnar höfðu verið til úr efnum
sem hægt er að kaupa í venju-
legum lyfjabúðum.
Þá greindi BBC frá því í gær
að meintur meðlimur í al-Kaída
hefði komið til Bretlands tveimur
vikum fyrir árásirnar og yfir-
gefið síðan landið nokkrum
klukkustundum eftir þær. Hann
var ekki undir eftirliti lögreglu
en yfirmaður Lundúnalögregl-
unnar sagði að engar vísbending-
ar væru enn um að maðurinn
tengdist árásunum.
Í gær héldu helstu múslima-
leiðtogar Bretlands til Leeds þar
sem þeir hittu fjölskyldu eins
sjálfsmorðssprengjumannsins.
Iqbal Sacranie, forseti Breska
múslimaráðsins lýsti því yfir við
það tækifæri að aðgerða væri að
vænta frá ráðinu. „Að vissu leyti
berum við öll ábyrgð á ódæð-
unum því við höfum gert of lítið
til að sporna við hatursáróðri í
samfélagi okkar.“
Enn einn farþeganna í strætis-
vagninum sem sprakk við
Tavistock Square dó í gær. Þar
með eru 55 látnir eftir árásirnar.
sveinng@frettabladid.is
Sóknarpresturinn í Garðabæ:
Funda›i me›
rá›herra
DEILUMÁL Séra Hans Markús Haf-
steinsson, sóknarprestur í Garða-
bæ, fundaði í gær með Birni
Bjarnasyni, dóms- og kirkjumála-
ráðherra, vegna þeirra stöður
sem uppi hefur verið í sókn hans.
Að sögn Sveins Andra Sveins-
sonar, lögmanns Hans, var um
óformlegan fund að ræða enda
vildi Björn heyra frá fyrstu hendi
hvernig staðan væri, sem kunnugt
er vill meirihluti sóknarnefndar
Hans Markús á braut enda hafi
kvartanir borist vegna starfa hans.
Þar að auki hafa bæði úrskurðunar-
og áfrýjunarnefnd Þjóðkirkjunnar
staðfest að Hans skuli færa til í
starfi en hann situr sem fastast. ■
ÓSÁTT VIÐ LEONCIE Ummæli söngkonunn-
ar Leoncie fóru fyrir brjóstið á nokkrum
ungmennum í Sandgerði sem efndu til
mótmæla síðdegis í gær.
Ungmenni í Sandgerði:
Mótmæltu
Leoncie
MÓTMÆLI Hópur ungmenna stóð fyrir
mótmælum fyrir utan hús söngkon-
unnar Leoncie og eiginmanns henn-
ar í Sandgerði í gærkvöldi og hróp-
uðu til söngkonunnar.
Var ástæðan viðtal sem tekið
var við hana fyrr um daginn á út-
varpsstöðinni XFM en þar fór hún
hörðum orðum um slæma gestrisni
gagnvart sér í bæjarfélaginu.
Fannst ungmennunum nóg um
enda ekki í fyrsta sinn sem söng-
konan setur út á nágranna sína í
bænum sem hún vill meina að sýni
sér fordóma og niðurlægingu við
hvert tækifæri. -aöe
MINNISVARÐINN AFHJÚPAÐUR Alexander
Rannikh átti frumkvæði að því að minnis-
varðinn var reistur.
M
YN
D
1/
B
Æ
JA
R
IN
S
B
ES
TA
FLUGMÁL
HLEKKTIST Á Í FLUGTAKI Fjög-
urra sæta Cessna einkaflugvél
hlekktist á í flugtaki frá Fljótavík
á Hornströndum síðdegis í gær
með þeim afleiðingum að lend-
ingarbúnaður og vængur vélar-
innar skemmdust. Engin meiðsl
urðu á fólki en rannsókn stóð yfir
í gærkvöldi.
ÓMYRKUR Í MÁLI Iqbail Sacraine, forseti Breska múslimaráðsins, hét því í gær að gripið
yrði til róttækra aðgerða þannig að voðaverkin í Lundúnum í síðustu viku endurtækju sig
aldrei.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Bilun í bremsukerfi bíls:
Rann ni›ur
Kambana
LÖGREGLUMÁL Bílstjóri var fluttur
slasaður með sjúkrabifreið til
Reykjavíkur eftir að fullfermdur
malarflutningabíll sem hann ók
rann stjórnlaus niður Kambana
skömmu eftir hádegi í gær.
Meiðsl hans voru ekki talin mjög
alvarleg en bifreiðin er mikið
skemmd, ef ekki ónýt.
Talið er að bilun í bremsum
hafi orðið til þess að bifreiðin
hafnaði utan vegar í beygju efst í
Kömbunum. Bifreiðin rann tals-
verða vegalengd utan vegar áður
en hún breytti um stefnu og fór
aftur yfir Suðurlandsveg. Þar fór
hún niður af háum vegarkanti og
rann stjórnlaus rúmlega hundrað
metra niður brekkuna. ■
VEÐRIÐ
M
YN
D
/V
ÍK
U
R
B
LA
Ð
IÐ