Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 52
16. júlí 2005 LAUGARDAGUR Nú kom ég sjálfri mér í feitan bobba. Ég á miða á Snoop Dogg á morgun en það ku vera no, no fyrir feminista að mæta á tónleikana. Eða réttara sagt það er algjört no, no fyrir einhvern yfir höfuð að mæta á tónleikana samkvæmt nokkrum feministum sem hafa mót- mælt komu rapphundsins. Ég ætla ekki að skipa Snoop á bekk með snillingum á borð við Radiohead og Sigur Rós en því verður ekki neitað að Drop it like it's hot er einfaldlega sjúklega flott lag, eins og mörg önnur lög kappans. Þegar ég spila fyrrnefnt “Slepptu því eins og það sé heitt” á Ipodinum á brettinu í World Class verð ég eins og algjörlega tryllt rotta á hlaupa- hjóli. Ég er reyndar í námi í mekka rappsins og kannski undir banda- rískum áhrifum, en ég var nú í tón- listarskóla í áratug eða svo, takk fyrir, og hef ansi góðan tónlistar- smekk þó ég segi sjálf frá. Það fyndna er að ég er enginn svakalegur Snoop Dogg aðdáandi. Ég get bara nafngreint eitt lag eftir blessaðan manninn og er vandræða- lega fáfróð um sögu hans. Samt var ég tilbúin til að svíkja feministann innra með mér og kaupa miða á tón- leikana. Mamma mín benti mér á þetta vandamál í gær. Þegar ég keypti miðann hafði ég ekki hug- mynd um að Snoop Dogg hefði drepið mann og væri nauðgari og gerði subbuleg myndbönd sem nið- urlægja konur (þ.e.a.s. í meira mæli en aðrir rapparar). Það hef ég mér til málsbóta. En ég verð að játa að það er nett hræsni í því að predika um kvenrétt- indi og fara svo á tónleikana og dilla bossanum í takt við tónlist karl- rembunnar eins og undirgefin strengjabrúða. Það er líka nett hræsni hjá Landsbankanum að vera styrktaraðili tónleikanna þegar hann er nýbúinn að styrkja kven- réttindakonur vegna hátíðahaldanna 19. júní. Og ég er líka alveg sam- mála feministunum um að það sé ekki sniðugt að dreifa miðum til óharðnaðra unglinga í Vinnuskól- anum. En ég ætla samt á Snoop. STUÐ MILLI STRÍÐA RÓSA SIGNÝ GÍSLADÓTTIR ER Í SÁLARKREPPU Að fara eða fara ekki á Snoop Dogg M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Félagsmenn í Neytendasamtökun um athugið Á heimasíðu Neytendasamtakanna www.ns.is er að finna eftirfarandi nýjar markaðskannanir: • 92 tegundir þvottavéla • 72 tegundir uppþvottavéla • 85 tegundir MP3 spilara Einnig er þar ný gæðakönnun frá ICRT og góðar upplýsingar um MP3 spilara. Lykilorð fyrir læstar síður félagsmanna á www.ns.is er á bls. 2 í nýjasta Neytendablaðinu. Ertu félagsmaður? Árgjald er aðeins 3500 krónur. Miðasala í Skífunni, á event.is og í 575-1522 Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Hey! Hvernig hefur pabba- strákur það í da... Bíddu...ég þekki þennan svip, krumpað nef... hálflokuð augu..... þú ert að fara að- -Hnerra! Fjúff! Þarna munaði mjóu! Já þarna munaði al- deilis mjóu. *sjúgi**A atsjú ú* Hvað er nú þetta, Lalli? Ískur ískur Plast-kóti- lettan mín. Þeir hafa gengið of langt í gervi- kjötframleiðslu. mmfgp... mmfgp? mmfgpmn? mgpbml pgfnlmb namblgxp boflmn xhgtmpdl ftshbtl fi fi fi! Af hverju finnst mér eins og það sé verið að gera grín að mér? fgnpdl! Þunnur í dag? Ekki tala við mig. Æj æj æj! Ertu búinn að vera að öskra í stóra hvíta postulíns- símann? Hátt og snjallt Akkúrat! Erum við að tala um... ... í gegnum nasirnar upp- lifun? Ekki tala við mig!!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.