Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 27
3LAUGARDAGUR 16. júlí 2005                   Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar Heimsins besti bílstjóri? Það er sorgleg staðreynd að ungir karlmenn eru líklegri en aðrir öku- menn til að valda umferðaróhöppum. Sem betur fer sleppa flestir við það hlutskipti en hlutfallið er engu að síður alltof hátt. Skýringin er sennilega ekki einföld, en reynum samt aðeins að átta okkur á þessu: Strákar sem eru nýkomnir með bílpróf stíga margir hverjir aðeins út úr bílnum fyrstu mánuðina til að sinna frumþörfunum og eru því kannski meira á ferðinni en aðrir. Sú skýring dugar þó ansi skammt. Önnur hugsanleg skýring er sú að margir líta þeir á sig sem bestu öku- menn í heimi. Þeir og bíllinn verða eitt og það er ekkert sem stoppar þá. Ekkert getur komið fyrir á meðan þeir eru við stjórnvölinn, því að þrátt fyrir að hafa aðeins setið undir stýri í nokkra mánuði hafa þeir fullkomn- að þá listgrein sem stjórnun ökutækis í raun er. Þá er óhugsandi að bílar þeirra slái feilpúst á ögurstundu, þeir sjálfir meti aðstæður rangt, hafi ekki nægan viðbragðstíma eða nái ekki að stöðva/beygja/klára framúr- aksturinn áður en í óefni er komið. Enda vita það allir að fólk dáist að mönnum sem keyra hratt, svína harkalega og taka hundrað og áttatíu gráðu handbremsubeygjur. Sérstaklega ungar stúlkur, eða hvað? Í gegnum þessa hugsun skín á kaldan gljáa reynsluleysis og ofmetnað- ar. Þegar heimsins reyndustu akstursíþróttamenn geta ekki, við kjörað- stæður, verið vissir um að hafa algjöra stjórn á bílum sínum, sem þó eru tækni- og verkfræðileg meistaraverk, hvernig á þá tvítugur gutti að hafa fullkomið vald á venjulegum bíl á öðru hundraðinu í umferðinni á Íslandi? Það er einfaldlega ekki hægt, alveg sama á hvaða aldri maður er og hversu mikið maður hefur keyrt. Það er líka sama hvað maður heldur að maður sé góður – maður er það ekki. Þeir sem komast að þessu fyrstir allra eru þeir sem borga fyrir lexíuna með lífi sínu eða annarra – og það er ekkert annað en þroskaleysi sem fær fólk til að leggja sig af fúsum og frjálsum vilja nær þeim örlögum en nauðsynlegt er. Trúðu því að hraðinn er ofjarl þinn, alveg eins og hann er ofjarl ann- arra. Þú ert ekki frábær bílstjóri og þú hefur ekki betri stjórn á bílnum þínum heldur en sá sem var undir stýri þegar síðasti árekstur átti sér stað. Það er til nóg af hálfvitum í umferðinni – ekki bætast í hópinn.           !"# $% &'(                  !" !  )' !"# $% &'( #$ %   &' '        !" !                                     *     !"#  $%&'(($  #)$* + ,$*&'$(-  $%&'(()-)$ $%."(- - *(/ *)# / +,$)(-)/.##0 )(-+12)-(%)#  % ) 3#0-)$ 0%&'(()/("!$%2%&2 /  ""*3 3#*.$3#- +%) .$(-3# .(##(- ./(- &03(+  )/)#( " "% $$&2(- %&'(($ *% (((/ "0%%&'(  )"+ ) 4(-*)-(5/)-4  53(5 "#)6- 54)(52$(. 3#/)3#*7$()#7/)"08)3# 3 + ,$".#(-3($(-/)&(-5 "#)6-(-5(-53(3#.$(- 4)"(- -!-.#(((- )"."(-+ &    +  ,-  -  )$% $*$ 0/)&  )!$(-9 0(3( ) /)&((-(/ *+,$*&'$(-% / $  &'* $ 0 #!$( )$"0 3 53#8) .  -  3-$ $-(#(9 ,$4(-(-3(3#( )3# )/)" $+ / 0  -  1 "( $4 (-  "#)6-9,$#)(-% $ "6%# )3#3(-%# $% # - + $  -  (*)-(3  *29/(7&(-*)-( 3 3#*)-(/ ")(-*")$(-+ 1 * -  (/)-4  )#9 /(7&(-/)-4  3# #3- ")(-#)$(- *")$ + 2 -  ,$4(- (- %((*.$54)(3#)&(- 2$(. 0*+ : #- )#(*.#$ .3(/(+ www.bilaattan.is ALLT Á EINUM STAÐ! Verslun · Smurstöð · Bílaverkstæði · Dekkjaverkstæði Hönnun bifreiðanna nýtur sín Glæsilegur sérhannaður sýningarsalur fyrir bíla hefur verið opnaður hjá Ingvari Helgasyni við Sævarhöfða. Opnunarhátíð stendur yfir nú um helgina. „Nú getum við boðið upp á alla umgjörð eins og er á alvöru bílasýningum erlendis og metnaður okkar stendur til að þjón- ustan sé í sama gæðaflokki. Það er í raun furðulegt að hér á landi hafi tíðkast að þjónusta við kaupanda vandaðrar bifreið- ar sé ekki eins góð og þjónustan við þann sem er að fá sér vönduð jakkaföt,“ segir Kristinn Þór Geirsson, forstjóri Ingvars Helgasonar ehf., um nýja sýningarsalinn og bætir við að sal- urinn sé um tvö þúsund fermetrar. „Bifreiðakaup eru sjaldnast gerð í einum áfanga enda að mörgu að hyggja. Oftar en ekki eiga fleiri en einn þátt að máli og fjölskyldan öll er höfð með í ráðum. Við munum kappkosta að taka vel á móti okkar gestum og hafa jafnframt spennandi afþreyingu fyrir þá yngstu,“ segir Kristinn Þór. Í nýja salnum er lögð áhersla á lýsingu og sviðssetningu bíl- anna þannig að línur þeirra og hönnun fái sem best að njóta sín. Hönnuður salarins er breski arkitektinn og hugmyndasmiður- inn Chris Wieszczycki. Hvert bifreiðamerki fær sitt svæði í salnum en þar eru sýnd vörumerkin Subaru, Nissan, Opel, Saab, Isuzu, Chevrolet og Cadillac. Nýi salurinn er stærri en gengur og gerist hér á landi. Flugnager á framrúðunni BEST ER AÐ NOTA STERKA SÁPU OG HÁÞRÝSTIÞVOTT TIL AÐ NÁ FLUGUM AF BÍLRÚÐUNNI. Þegar ekið er um vegi landsins skella flugurnar á bílnum og þegar heim er komið er oft heill flugnakirkjugarður á framrúðunni. Flugurnar eiga það til að festast vel við glerið og lakkið og erfitt getur verið að ná þeim af. Gunnar Hafsteinsson hjá Gæðabóni segir að sterk sápa eigi að duga á flugurnar. „Það er best að byrja á því að bleyta bílinn vel, hella svo sterkri sápu yfir hann og skola af með há- þrýstidælu. Getur líka verið gott að svampa yfir bílinn,“ segir Gunnar og nefnir til dæmis færeying sem góða sápu. Venjulegur uppþvottalögur dugar líka vel. Það er þó sitthvað sem þarf að hafa í huga þegar sterk sápa er notuð. „Sterk sápa tekur alla bónhúð af bílnum og þess vegna þarf að bóna bílinn eftir slíka meðferð,“ segir Gunnar. Hann bendir líka á almennt sé betra að þvo bíla með háþrýstidælu heldur en að nota venjulegan bílkúst. „Ég mæli ekki með því að fólk sé að skúra bílinn sinn, það rispar bara lakkið.“ Það getur verið ansi erfitt að þrífa klesstar flugur af bíl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.