Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 30
Spennubók Það er alltaf sniðugt að hafa eina góða spennusögu í kilju með í hand- töskunni á ferðalaginu. Maður getur alltaf átt von á því að þurfa að bíða eftir flugi eða lest einhversstaðar.[ ]             ()*+,(-./-*0,,+,/- ,      -   1 Costa del Sol M all or ca Sóla rlottó • Þú velur áfangastað og ferðadag og tekur þátt í lottóinu um hvar þú gistir. • Viku fyrir brottför staðfestum við gististaðinn. *Innifalið er flug, gisting í 7 nætur, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. á mann miðað við 2 eða 4 í stúdíói eða íbúð. Enginn barnaafsláttur. Spilaðu með! Krít 22. 29. ágúst 5. 12. 19. sept. Mallorca 24. 31. ágúst 7. sept. Costa del Sol 25. ágúst 1. 8. og 15. sept. Portúgal 22. 29. ágúst 5. 12. og 19. sept. Sólríkt haust -sama sólin, sama fríið en á verði fyrir þig. AQUIS handklæði í ferðalagið Í bakpokann, ferðatöskuna, sundið, líkamsræktina ofl. Taka lítið pláss, létt, þurrka vel, þorna fljótt, alltaf mjúk. Dreifing: Daggir s: 462-6640 www.daggir.is Til Kenía með hjálpargögn í farteskinu Fimm læknanemar leggja bráðum upp í ævintýraferð til Afríku þar sem þau þurfa að sanna sig án allra tækja og tóla. Tæpar tvær vikur eru þangað til læknanemarnir Erna Halldórs- dóttir, Eyjólfur Þorkelsson, Krist- ín Ólína Kristjánsdóttir, Margrét Ólafía Tómasdóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir leggja í ferð til Kenía. Þau ætla að vinna á heilsu- gæslustöð í Naíróbí í tvær vikur og kynnast því að starfa sem læknar við nýjar aðstæður. „Við höfum verið að safna hjálpargögnum og styrkjum fyrir þessar heilsugæslustöðvar. Þær eru reknar af hjálparsamtökum heimamanna þannig það vantar alltaf hjálpargögn,“ segir Erna. Margrét segir að þau séu búin að vera dugleg að safna hjálpargögn- um. „Við erum búin að safna sam- an útrunnu dóti á spítölum og elli- heimilum og svo erum við búin að safna peningum til að geta keypt meira,“ segir Margrét. Þá kemur Kristín Ólína aðvíf- andi í læknasloppnum, sú eina af fimmmenningunum sem er á vakt og myndatökurnar geta hafist. Stuttur tími gefst til að taka nokkrar myndir þangað til sím- boðinn hennar Kristínar Ólínu pípir og hún þarf að fara aftur í vinnuna. „Góða vakt,“ segja fjór- menningarnir við hana áður en hún hleypur af stað. En við hin vorum að tala um hjálpargögn. Þau eru búin að fá styrki frá mörgum fyrirtækjum, bæði peningastyrki og hjálpar- gögn. Meðal annars hafa lyfjafyr- irtæki verið dugleg að gefa þeim bóluefni því það er eins gott að vera vel bólusettur áður en farið er í þessa ferð. Þau hafa því verið margstungin hvort af öðru og þurft að drekka ógeðisdrykk gegn kóleru, bakteríurnar sjálfar. „Það er hálfgert kúkabragð af þeim,“ segir ein úr hópnum, hin draga það til baka en ítreka að drykkur- inn sé ekkert sérstaklega geðsleg- ur. Hægt er að fylgjast með læknanemunum á heimasíðu sem þau halda úti á slóðinni www.kenya-2005.blogspot.com. Krakkarnir eru strax byrjaðir að skrifa á vefinn. Má meðal annars finna skemmtilegar myndir af þeim þar sem þau eru að bólusetja hvert annað. annat@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R Þorgerður Guðmundsdóttir, Margrét Ólafía Tómasdóttir, Eyjólfur Þorkelsson, Erna Hall- dórsdóttir og Kristín Ólína Kristjánsdóttir eru læknanemar á leið til Kenía. Heimsferðir keyptu á dögunum ferða- skrifstofurnar STS Solresor í Svíþjóð og STS Solia í Noregi. Með kaupun- um eru Heimsferðir orðnar ein af stærstu ferðaskrifstofunum á Norður- löndum og umsvifin skila sér meðal annars í meira úrvali fyrir ferðamenn. Helstu áfangastaðir fyrirtækjanna eru Azoreyjar, Madeira, Kanaríeyjar, Mall- orka, Menorka, Egyptaland, Oman, Tyrkland, Malta, Taíland, Malasía og Kenía. Andri Már Ingólfsson, eigandi Heimsferða, segir að kaupin opni nýja breidd í ferðalögum Íslendinga og auðveldara verði fyrir Íslendinga að ferðast til framandi landa. „Núna verður til dæmis hægt að taka frá 50 sæti fyrir Íslendinga í vél frá Stokk- hólmi til Egyptalands eða Kenía. Þetta er nokkuð sem ekki hefur verið hægt að gera áður því þessar stóru ferðaskrifstofur hafa ekki viljað selja öðrum inn í flugin sín. Með þessu móti getum við boðið upp á nýja áfangastaði, með íslenskum farar- stjórum á lægra verði en nú þekkist. Þetta er hundrað sinnum stærri markaður en Ísland eitt og sér og því auðveldara en áður að halda verðinu niðri,“ segir Andri. Kaup Heimsferða á ferðaskrifstofun- um hafa þegar skilað sér í lægra verði á ferðum til Kanaríeyja. Nýjar ferðir verða kynntar í haust og það verður spennandi að sjá hvaða áfangastaðir verða í boði. Nýir ferðamöguleikar fyrir Íslendinga Heimsferðir keyptu nýlega tvær norrænar ferðaskrifstofur. Með kaupunum eykst framboð á spennandi áfangastöðum fyrir Íslendinga. Píramídarnir í Egyptalandi. Með kaupum Heimsferða á skandin- avísku ferðaskrifstofunum verð- ur auðveldara fyrir Íslendinga að komast í ferðalög til framandi slóða. Bólusetning ferðamanna EKKI ÓDÝR EN ALGJÖRLEGA NAUÐ- SYNLEG. Þegar heimsækja á hitabeltislönd er nauðsynlegt að láta bólusetja sig. Lík- amar ferðamanna geta verið mjög viðkvæmir fyrir ýmiss konar farsóttum auk þess sem þeir kunna oft ekki að fara með mat og fleira sem þarf að varast þar sem sjúkdómar eru al- gengari. Fyrsta skrefið er að hafa samband við næstu heilsugæslustöð. Þar fást upp- lýsingar um hvenær sé hægt að koma til að fá sprautur. Æskilegt er að huga að bólusetningum með nægum fyrirvara því stundum þarf að sprauta oftar en einu sinni og getur tekið tíma fyrir bóluefnið að ná fullri virkni. Einnig skal hafa í huga að sum lönd krefjast staðfestingar á bólusetn- ingu með umsókn um vegabréfsárit- un. Bólusetningar eru ekki ódýrar og má gera ráð fyrir að þær kosti allt upp í tíu þúsund krónur. FYLGSTU MEÐ! NEWLYWEDS SUNNUDAGA KL. 21:00 SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.