Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 16. júlí 2005 MOTOCROSS 2. umferð Ís landsmótsins í Motocross Í DAG!!! KL. 14.00!!! fer fram á s tórglæsilegr i braut á Álfs nesi laugard aginn16. júlí Keppnin hefs t klukkan 14 .00 // Ungling aflokkar byr ja að keppa k l. 12.40 Mi›aver› a› eins 500 kr. // Frítt fyrir 1 2 ára og yng ri. ATH!!! Aðkom a að svæðinu : Keyrt er í ge gnum Mosfe llsbæ í átt að Kollafirði. Þar eru mer kingar um vi nstri beygju af fljó›veginu m. SPURNING: HVERS VEGNA HYLJA KONUR BRJÓST Á VESTURLÖNDUNUM EN EKKI SUMS STAÐAR Í AFRÍKU? Svar: Mismunandi hitastig í Afr- íku og á Vesturlöndum hefur að sjálfsögðu áhrif á hvernig fólk klæðir sig. Hins vegar er það ekki einhlít skýring á því hvers vegna lögð er áhersla á að konur hylji brjóst sín á Vesturlöndum en ekki sums staðar í Afríku. Frekari skýringa þarf því að leita í menn- ingu og samfélagsgerð þessara heimshluta. Tákn og táknkerfi Ein undirstaða menningar og samfélags manna eru tjáskipti. Maðurinn ræður yfir tungumáli sem gerir honum kleift að tjá flóknar hugmyndir. Einnig nýtir hann sér ýmis önnur tákn og tákn- kerfi til að miðla þekkingu og senda skilaboð. Líkami manna er oft hentugur efniviður í slík tákn og þá ekki síst sá sýnilegi munur sem er á líkömum kvenna og karla. Sá munur hefur með ýms- um hætti verið notaður til að tákn- gera mun á stöðu og hlutverki kynjanna í samfélaginu. Meginreglan þegar táknkerfi eru annars vegar er sú að sérhver menning býr sér til sinn eigin táknheim. Því verður að lesa merkingu táknanna í samhengi þeirra hvert við annað og þann menningarlega veruleika sem þau tilheyra, þótt stundum sé merking ákveðinna tákna í ólíkum samfé- lögum borin saman. Þannig tíðkast til dæmis sums staðar á Papúa Nýju-Gíneu að karlar hylji reður sinn í eins konar hulstri sem verður lengra eftir því sem þeir eldast og verða valdameiri. Mannfræðingar hafa lesið í tákn- rænu þessa siðs þannig, að með honum sé mikilvægi karla sem feðra áréttað. Jafnframt er lengd reðurhulstursins sýnilegt tákn um stöðu karlsins í samfélaginu. Brjóst og móðurhlutverkið Hið sama gildir um brjóst kvenna. Það hvort þau eru hulin, gerð áberandi eða einfaldlega ber, gef- ur tilteknar upplýsingar og spegl- ar menningarlegar hugmyndir fólks. Ein aðferð við táknlestur- inn, og til að skilja hvers vegna brjóst kvenna eru hulin á Vestur- löndum en ekki sums staðar í Afr- íku, er að tengja brjóstin við móð- urhlutverkið, þýðingu þess í sam- félaginu og hvernig það markar stöðu kvenna. Konur fæða börn og hafa þau á brjósti og því er þessi líkamshluti þeirra kjörinn til þess að tákna móðurhlutverkið. Á Vestur- löndum er þetta hlutverk kvenna rómað og jafnvel talið heilagt. En hvers vegna eru brjóst kvenna þá hulin? Til þess að leita skýringa á því verðum við að skoða samfé- lagsskipan Vesturlanda og hvernig hún hefur þróast. Sé kventískan á Vesturlöndum skoðuð, sjáum við að brjóst kvenna voru áður fyrr mun sýni- legri en nú. Þau voru ýmist ber, hálfhulin eða þeim nærri lyft upp úr flegnum blússum. Á þessum tíma var móðurhlutverkið sömu- leiðis mun sýnilegra en nú. Sýnileiki brjóstanna speglar sýnileika móðurhlutverksins Við iðnbyltinguna á Vesturlöndum urðu skilin á milli einkarýmisins (heimilanna) og almannarýmisins (félagslega rýmisins utan heimil- anna) mun skarpari. Atvinnu- rekstur fluttist út af heimilum inn í verksmiðjur og aðra vinnustaði í almannarýminu, og heimilin sem áður voru bæði vinnustaðir og uppvaxtarstaður barna urðu að sí- fellt einangraðra einkarými. Karl- inn fór gjarnan út í almannarýmið og sótti björg í bú en konur voru heima og sinntu heimilisstörfum og barnauppeldi. Móðurhlut- verkið varð því ekki eins sýnilegt og áður, og um leið var lögð meiri áhersla á að hylja brjóst kvenna með blússum og kjólum allt upp undir höku. Það sást þó oft móta fyrir brjóstunum undir þröngum blússum. Menn vissu að brjóstin voru þarna, rétt eins og menn vissu að konur ólu upp börn sín inni á heimilum, en hvort tveggja var hulið augliti almennings. Í samfélögum Afríku þar sem konur hylja ekki brjóst sín er móðurhlutverkið ekki síður mikil- vægt en á Vesturlöndum. Aftur á móti er því að stórum hluta sinnt í almannarýminu, og skilin á milli þess og einkarýmisins eru ekki nándar nærri eins skörp. Sýnileiki brjóstanna speglar því sýnileika móðurhlutverksins. Einnig er þess að gæta að í mörgum samfé- lögum Afríku eru konur ekki einar um að ala upp börn sín held- ur er það í verkahring stærri hóps ættingja og nágranna, kvenna jafnt sem karla. Móðurhlutverkið þarf því ekki að afmarka stöðu kvenna þar eins og það gerir á Vesturlöndum og brjóstin hafa því ekki sama táknræna gildið í þessu samhengi. Í slíkum samfé- lögum skiptir því ekki eins miklu máli að hylja brjóstin og undir- strika með því stöðu kvenna. Klæðnaður sendi skilaboð um stöðu Þannig speglar sú staðreynd að brjóst kvenna eru hulin á Vestur- löndum en ekki í sumum Afríku- löndum ríkjandi hugmyndir um konur í þessum samfélögum. Staða kvenna á Vesturlöndum er inni á heimilinu; þar sinna þær hinu mikilvæga móðurhlutverki sem samt sem áður er ósýnilegt eins og brjóstin. Um leið undir- strikar klæðnaðurinn oft brjóstin, nú síðast með Wonderbra-brjósta- höldum, og gefur þar með skýr skilaboð um kynbundna stöðu kvenna. Sigríður Dúna Kristmundsdótt- ir, prófessor í mannfræði við HÍ Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast. Að jafn- aði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem þar hefur verið glímt við að undanförnu eru: Rennir maður frönskum rennilás, hvað getið þið sagt mér um flæmingja, eru orðin Ñöðruvísiì og Ñotherwiseì skyld, hvað eru stjórnmál, hvaða matarvenjur tíðkast í Danmörku og hverjir byrjuðu að temja hesta og hvenær var það? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is. VÍSINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Hulin brjóst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.