Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 62
46 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR Silfurrefurinn Egill Helgason erkominn til landsins eftir afslöppun í Grikklandi og er held- ur betur spengilegur í Íslandi í dag á Stöð 2 þar sem hann er í afleysingum um þessar mundir. Egill er vel útitekinn, hefur lagt nokkuð af og birtist glaðhlakkalegur á skjánum í ljósum sumarfötum. Fyrir vikið er þessi snaggaralegi fjöl- miðlamaður orðinn enn strákslegri en hann var fyrir og gárungarnir hafa á orði að hann minni einna helst á Litla Prins- inn úr samnefndri og sí- gildri skáldsögu Frakk- ans Antoine de Saint- Exupéry en drengurinn sem bjó einn á smástirni liti örugglega út eins og Egill ef hann skyti upp kollinum nú, rúmlega þrjátíu árum eldri og nokkrum kíló- um þyngri. Össur Skarphéðinsson, fyrrver-andi formaður Samfylkingarinn- ar, er í banastuði eftir að hann lét af formannsembættinu. Hann er dug- legur að blogga á heimasíðu sinni, http://web.hexia.net/roll- er/page/ossur//, þar sem hann segist meðal annars að sjálfsögðu nota sumarið til þess að sinna póli- tíkinni. Það sé því enginn friður fyrir honum þar sem hann ætli ekki að flatmaga á sólarströndum eða ver- öndinni í sumarbústað. Þá sló Össur heldur betur á létta strengi í Kvöld- þætti Guðmundar Steingrímssonar á sjónvarpsstöðinni Sirkus í vikunni en þar viðurkenndi hann að hafa fiktað við að reykja hass á sínum yngri árum. Það gekk hins vegar brösulega og Össur „hóstaði og þaðan af verra“ og lét snarlega af ósiðnum. „Það eru bjartar hliðar á öllu í lífinu og hið góða við það að vera ekki lengur formaður í stjórn- málaflokki er að ég hef öðlast fullt málfrelsi upp á nýtt og get viðr- að skoðanir mínar á öllu – jafnt R-listan- um, Jóni Ásgeiri og Snoop Dog,“ segir Össur á blogginu. „Ég er frjáls eins og fugl- inn. Já, ég er eins og forsetinn: Ábyrgð- arlaus af stjórn- arathöfnum!“ Lárétt: 1 nýtt, 6 málmur, 7 ullarhnoðrar, 8 hreyfing, 9 andi, 10 vel, 12 áhrif áfeng- is, 14 lok, lok og Ö, 15 tónn, 16 tónn, 17 kostur, 18 skúmaskot. Lóðrétt: 1 á ekki lífsvon, 2 svardaga, 3 tveir eins, 4 ákvæði, 5 tæki, 9 gylta, 11 ræma, 13 klórnatríum, 14 ábreiða, 17 sex. Lausn. 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Humar 1.290,-kr.kg Ótrúlegt verð á fínum humri. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Sea Princess Tíu mínútur Í tvær mínútur Hinsegin dagar verða haldnir dag- ana 4.-7. ágúst og þar verður margt um að vera. Hápunktur hátíðarinn- ar verður án nokkurs vafa Gay Pride-gangan árlega niður Lauga- veginn á laugardeginum. Þá verður ekki síður merkilegur atburður á sunnudeginum þegar háður verður knattspyrnuleikur á KR-vellinum í Frostaskjólinu milli íslenskra lesbía og bandaríska hommafót- boltaliðsins New York Rambler Soccer Club. Að sögn Heimis Más Pétursson- ar, framkvæmdastjóra Hinsegin daga, var New York Rambler stofnað árið 1980 og er fyrsta skipulagða fótboltalið samkyn- hneigðra í Bandaríkjunum. „Þeir standa árlega fyrir New York Indoor Classic Soccer í mars og vikunni áður en þeir koma til okkar keppir liðið á alþjóðlegu móti samkynhneigðra í Dan- mörku,“ segir Heimir Már. Liðið sem New York Ramblers mætir verður skipað hópi íslenskra lesbía sem allar eiga það sameigin- legt að spila fótbolta. Heimir Már segir þó að þær allra bestu í þessum hópi verði ekki með þar sem þær geti ekki spilað vegna tryggingarmála. „Þetta verður hörkulið enda stelpur sem hafa æft og spilað fót- bolta lengi.“ Þá segir Heimir að ekki verði gefið upp hver verði dómari og hverjir línuverðir, það sé algjört hernaðarleyndarmál. „Þetta verður ekki venjulegur fót- boltaleikur því þarna verða klapp- stýrur og fleira í þeim dúr. Þetta verður hinsegin leikur,“ segir Heimir og hlær. Leikurinn verður ekki alveg ópólitískur, ef svo mætti að orði komast, því með honum vilja Hinsegin dagar vekja athygli á stöðu samkynhneigðra í íþróttum. „Samkynhneigðir íþróttamenn hafa lengi orðið fyrir barðinu á for- dómum meðal annarra iðkenda og stundum þurft að hrökklast burt frá liðum sínum og jafnvel hætta ástundun íþróttar sinnar,“ segir Heimir og bendir á að margir þekktir íþróttamenn hafi verið samkynhneigðir eins og til dæmis ólympíuverðlaunahafinn Mark Spitz. „Við viljum að strákar og stelpur á viðkvæmum aldri geti fengið að stunda sína íþrótt þótt þau séu samkynhneigð.“ Þá er gaman að segja frá því að vinnsla við kvikmyndina Strák- arnir okkar, sem segir einmitt frá samkynhneigðu fótboltaliði, er nú á lokastigi. Verið er að hljóðvinna hana, litgreina og semja tónlistina við hana. Reiknað er með að myndin verði frumsýnd í byrjun september. freyrgigja@frettabladid.is HEIMIR MÁR: BLÆS TIL HINSEGIN KNATTSPYRNULEIKS Bandarískir hommar mæta íslenskum lesbíum Þröngar buxur á strákum. Nýverið fór fram herratískuvika íMílanó og sýndu margir flottustu hönnuðir heims línuna sína fyrir vorið 2006. Afar áberandi var að karlmannsbuxurnar eru orðnar ansi þröngar. Þetta er rosalega töff og minnir eilítið á stíl rokkarans Pete Doherty. Þröngar dökkar gallabuxur, beinar niður og útvíði stíllinn er algjörlega úti. Rauðir Converse skór. Dwight í Sin Cityer í eldrauðum Converse-skóm en eins og flestir vita er myndin í svarthvítu fyrir utan einstaka hluti sem eru í lit og þar á meðal rauðu skórnir hans Dwight. Converse skór eru klár- lega inni í öllum litum en rauðir eru ferlega heitir þessa dagana í kjölfarið af vin- sældum Sin City. Snoop Doggy Dogg. Hann spilar í Egilshöll ámorgun og ekki annað hægt að segja en að þessi gamli rapphundur sé svo sannarlega inni hjá ungu fólki í dag. Auðvelt er að dilla sér við tónlistina þó svo að textarnir hans mættu oft vera innihaldsríkari. Þrátt fyrir það verða þetta pottþétt trylltir tónleikar á morgun. Of mikið bling bling. Gott er að minnast á það að þósvo að Snoop Dogg sé inni þessa stundina þá er ekki inni að klæða sig eins og hann. Það er ekkert að því að vera í rapparastílnum en ekki yfirgera það með stórum keðjum, klútum og óþarfa skrauti. Það vill enginn líta út eins og hann sé með sama stílista og Ja-Rule. Vegaframkvæmdir. Auðvitað eru vegaframkvæmdir óhjá-kvæmilegar og afar nauðsynlegar en ó hvað þær geta ver- ið manni hvimleiðar. Hver er ekki orðinn þreyttur á þessum appelsínugula keiluher sem hefur plantað sér á göturnar? Þetta er eitt það leiðinlegasta við sumarið. Framkvæmdir úti um allt, lokaðar götur og hjáleiðir á hverju strái. Það versta er að þetta verður aldrei búið. Að hunsa túrista. Setjum okkur nú í spor grey túristannasem þurfa að ferðast um landið okkar sem státar mjög líklegra af lélegra samgöngukerfi en borgirnar þeirra. Ef þú sérð túrista á gangi sem virðist vera villtur, stoppaðu þá og bjóddu fram hjálp þína. Flest okkar hafa verið í þeirra sporum, villt í ókunnri borg og þá er hjálp alltaf vel þegin. Oft hafa þeir líka eitthvað skemmtilegt að segja um sína upplifun á landinu okkar. INNI ÚTI HRÓSIÐ Spáð er nú og spekúlerað í hvaða leikkona hreppi aðalhlut- verkið í kvikmyndinni Slóð fiðr- ildanna eða A Journey Home sem Liv Ullmann kemur til með að leikstýra. Orðrómur var á kreiki um að Óskarsverðlauna- leikkonan Cate Blanchett kæmi sterklega til greina fyrir aðal- hlutverkið. Það kom því á óvart þegar Jón Þór Hannesson, fram- kvæmdastjóri Saga Film, lét hafa eftir sér í viðtali við Frétta- blaðið að samningaviðræður stæðu nú yfir við bandaríska Óskarsverðlaunaleikkonu sem væri búsett í London. Þar sem Cate Blanchett ku vera áströlsk beinast spekúlerasjónir nú að Óskarsverðlaunaleikkonunni Gwyneth Paltrow en hún er bú- sett í London um þessar mundir og sinnir þar uppeldi dóttur sinnar Apple. Úrslitavaldið hefur leikstjórinn Liv Ullmann, norska leikkonan sem sjálf hreppti Óskarinn fyrir hlutverk sitt í kvikmynd Ingmars Berg- man, Persona. ■ Cate Blanchett í Sló› fi›rildanna? CATE BLANCHETT Ku hafa komið til greina í aðalhlutverkið í Slóð fiðrild- anna en Gwyneth Paltrow þykir nú líklegur kandídat. Þráðlausar eftilitsmyndavélar Fyrir heimili og fyrirtæki VERÐ FRÁ 8.500 kr Upplýsingar í síma 869-2688 ...fær hugbúnaðarfyrirtækið Maritech fyrir að hafa verið verð- launað af Microsoft fyrir hugbún- að sinn. Þetta sannar að þjóðin getur ýmislegt fleira en að veiða fisk. Lárétt: 1 ferskt, 6 eir, 7 ló, 8 ið, 9 sál, 10 kýs, 12 rús, 14 læs, 15la, 16 as, 17 val, 18 kimi. Lóðrétt: 1 feig, 2 eið, 3 rr, 4 klásúla, 5 tól, 9 sýr, 11 hæsi, 13 salt, 14 lak, 17 vi. FRÉTTIR AF FÓLKI NEW YORK RAMBLERS Hluti af bandaríska hommaknattspyrnuliðinu sem kemur hingað til lands til að etja kappi við íslenskar lesbíur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.