Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 16. júlí 2005 27 Átti a› leika Gest „Hrafn orðaði þetta við mig á sínum tíma, ég veit ekki hvort hann var fullur, ófullur eða bara svona skemmtilega hugmyndaríkur. Ég hló alltaf að honum því mér fannst þetta svo brjáluð hugmynd. Þetta er nú bara eins og margt í lífinu, sumt er skrýtnara en annað. Ég tók þetta ekki í mál því ég er ljósmyndari en ekki leikari. Ætli ég hafi ekki bara verið svona síðhærður og víkingalegur en þetta hafði í það minnsta ekkert með mína hæfileika að gera og kannski þess vegna fannst mér þetta furðu- legt,“ segir Páll Stefánsson ljósmynd- ari sem Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri Hrafninn flýgur bauð hlutverk Gests í kvikmyndinni en án árangurs. Í minningunni var þetta sumar sem við tókum upp þessa mynd virkilega ógleymanlegt, „never a dull moment“ eins og maður segir á vondri íslensku. Ég er þeirrar skoðunar að af víkingamyndum Hrafns sé Hrafninn flýgur sú besta. Það verður aldrei sagt um Hrafn Gunnlaugsson að hann sé hugmyndasnauður maður. Mér fannst ansi gaman að vinna með Hrafni að ekki sé nú talað um Helga Skúlason, nú látinn löngu fyrir aldur fram. Leikur hans í Hrafninn flýgur er ógleymanlegur að öðrum ólöstuðum. Mér hefur sýnst sem heimurinn hafi tekið þessari mynd fagnandi en ég ætla ekkert að alhæfa um það. Ég horfði á myndina aftur um daginn með Hrafni og við vorum aðeins að rifja upp hvernig okkur fannst þetta og hvað þetta var skemmtilegt. Úr því þú spyrð þá kemur margt skrítið upp á og ég man sérstaklega eftir einu spaugilegu atviki úr tök- unum. Þar sem við vorum að vinna undir Eyjafjöllum voru nokkrir heimahrafnar á staðnum og hrafnarnir sem við höfðum fært með okkur tóku ekki tamningu vegna þess beygs sem þeir höfðu af heimahröfnunum þannig að Hrafn Gunnlaugsson tók frethólk og skaut heimahrafnana til að tökurnar gætu gengið betur fyrir sig. Ég hélt að þarna yrði heimsendir því ég taldi boða ógæfu að skjóta heimahrafnana svona en við þetta róuðust hrafnarnir okkar. Þeir fengu svo róandi lyf en mig rennir grun í að hrafnatemjarinn hafi komist í lyf- in í það minnsta róaðist hann til muna eftir þetta. Mér fannst gaman að vinna með Hrafni því honum dettur svo margt í hug og oft er skemmtilegra að vinna með mönnum sem dettur eitthvað í hug frekar en ekkert. Hvernig var a› leika í Hrafninn fl‡gur? Það var rosalega kalt og blautt þetta sumar. Við vor- um meira og minna úti allan tímann og þegar við vorum ekki úti vorum við inni í einhverjum skútum og hreysum. Þetta var afskaplega skemmtilegt fyrir mig að fá að leika í þessari mynd því ég var bara 24 ára leiklistarnemi þegar myndin var gerð. Við vorum með mikið af dýrum þarna, það voru hrafnar í myndinni, og við réðum mann til að sjá um hrafn- ana en það gekk svo allt á afturfótunum þannig að við urðum að sjá um hrafnana meira og minna sjálfir. Búið var við mjög erfiðar aðstæður þarna og við böðuðum okkur lítið, þannig að skíturinn utan á okkur í myndinni var eiginlega raunverulegur. Ég er ekki viss um að ég samþykkti að leika í mynd við þessar aðstæður í dag. Mér finnst sagan skila sér vel á tjaldið hjá Hrafni. Mér finnst myndin miklu betri en ég hefði þorað að vona þó svo að vissulega hafi kvikmyndagerðar- listinni eitthvað fleygt fram á þessum tuttugu árum. Einn daginn vorum við í hádegismat og Hrafn var á klósettinu og þá kallar hann allt í einu upp fyrir sig: Jakob, hvernig fyndist þér að leika pabba þinn? Og fór svo að ég lék karakterinn sem átti að vera pabbi minn í myndinni. Hrafn sagði svo að það væri stað- reynd að maður fengi margar af sínum bestu hug- myndum á klósettinu. Mér finnst myndin hafa öðlast dálítið sérstakan sess í íslenskri kvikmyndasögu því hún var fyrsta ís- lenska myndin sem gekk vel í útlöndum og hún hefur farið ansi víða og maður hittir varla Svía án þess að þeir segi við mann: Þungur hnífur. JAKOB ÞÓR EINARSSON/GESTUR FLOSI ÓLAFSSON/EIRÍKUR PÁLL STEFÁNSSON Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri Hrafninn flýgur kom að máli við Pál Stefánsson ljósmyndara og bauð honum hlutverk Gests í myndinni en Páll afþakk- aði boðið. GESTUR Jakob Þór Einarsson í hlutverki aðalsöguhetjunnar Gests sem kemur til Íslands að leita morð- ingja föður síns. Hér er hann ásamt hrafni fyrir ofan bæ föðurbana síns og leggur á ráðin um hvernig hann geti náð sér niður á honum. EIRÍKUR Flosi Ólafsson sem Eiríkur í Hrafninn flýgur, hlutverk sem hann lék með eftir- minnilegum hætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.