Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 59
Útvarpsstöðin FM 957 stóð
fyrir heldur undarlegum
leik í morgunþætti sínum
Zúúber. Hlustendum gafst
kostur á, ef þeir höfðu
áhuga á, að láta húðflúra
andlit rapparans Snoop
Dogg á sig fyrir ellefu
miða. Á fimmtudagsmorg-
uninn var nafn hins heppna
dregið út en alls sóttu þrjá-
tíu manns um, ellefu stelp-
ur og nítján strákar. „Við
drógum fyrst út stelpu sem
hafði fengið pabba sinn
með sér og hefði verið
mjög fyndið að láta húð-
flúra feðginin í beinni. Hún
gleymdi hins vegar að setja
með símanúmerið hjá sér,“
segir Svali, einn stjórnandi
þáttarins. Sá „heppni“
reyndist hins vegar vera
hinn 22 ára gamli Helgi
Hrafn Halldórsson og
fengu hlustendur að velja
hvar húðflúrið ætti að
lenda. Óæðri endinn varð
fyrir valinu og Fjölnir
Bragason, húðflúrasér-
fræðingur Íslands, mætti
til þess að setja andlitið á.
Nokkrum andartökum
síðar kom Snoop Dogg í
ljós og Helga bauðst tólfti
miðinn fyrir eina rass-
skellingu á nýja húð-
flúrið. Hann þáði miðann
með þökkum og tárum,
því það er víst ekki þægi-
legt að fá
högg á
nýtt húð-
f l ú r .
H e l g i
s j á l f u r
var þó al-
sæll enda
með þrjú
h ú ð f l ú r
fyrir, eitt
á brjóst-
inu, annað
á kálfan-
um og það þriðja á bak-
inu. „Ég var bara í góðu
stuði í vinnunni og sendi
nafnið mitt. Þá fékk ég að
vita að ég væri kominn í
einhvern pott og hélt þá
að þar með væri þessu
lokið,“ segir Helgi sem
hafði nýlokið við að dreifa
miðunum sínum út til vina
og vandamanna. „Ég og
kærastan höfðum líka
reynt að leita leiða til þess
að spara okkur nokkra
þúsundkalla og komast á
tónleikana.“ ■
Fékk Snoop á rassinn
FJÖLNIR HÚÐFLÚRAMEISTARI OG HELGI HRAFN
Myndin er ekki fullgerð því Fjölnir vildi leyfa myndinni að
setjast áður en hann legði lokahöndina á verkið.
Teiknimyndin Madagaskar er frá
Dreamworks Animation, þaðan sem
myndirnar tvær um Skrekk koma.
Það voru því töluverðar væntingar
gerðar til myndarinnar.
Madagaskar segir frá fjórum
vinum úr dýragarðinum í New
York. Ljóninu Alex, sem er aðal-
stjarnan og hálfgerð prímadonna,
sebrahestinum Marty, flóðhestinum
Gloríu og gíraffanum Melman. Í af-
mælisveislu til heiðurs Marty
stingur hann sjálfur upp á því að
þau geri sér ferð út í óbyggðirnar.
Hann fær dræmar undirtektir og
ákveður að láta drauminn rætast
upp á eigin spýtur. Vinir hans þrír
elta hann uppi. Þau eru svo öll kló-
fest og send til dýragarðs í Kenía.
Tilviljanakennd atburðarás veldur
því að þau lenda á eyjunni Mada-
gaskar þar sem lemúakóngurinn
Julien ræður ríkjum.
Teiknimyndin Madagaskar gerir
þá kröfu til sjálfrar sín að vera eng-
inn eftirbátur Skrekks enda engar
smástjörnur í aðalröddunum. Ben
Stiller fer með hlutverk ljónsins,
Chris Rock er sebrahesturinn, Jada
Pinkett Smith flóðhesturinn og Dav-
id Schwimmer gíraffinn. Þeim tekst
vel upp í sínu en fá ekki jafn safa-
ríkt handrit upp í hendurnar eins og
oft hefur verið í teiknimyndum. Það
verður þó að taka fram að aukaper-
sónurnar stela senunni. Mörgæs-
irnar og lemúakóngurinn, frábær-
lega leikin af Sacha Baron Cohen
(Ali G), eru stjörnur myndarinnar.
Madagaskar nær ekki sömu hæð
og Skrekkur... því miður. Hún fer
ekki í hóp bestu teiknimynda sög-
unnar. Eilítið vantar upp á að
húmorinn heppnist fullkomlega.
Madagaskar er þó hin mesta barna-
skemmtun, það sönnuðu hlátra-
sköllin í börnunum sem sátu með
mér í bíósalnum. Henni mistekst
hins vegar að höfða jafn vel til full-
orðinna og Skrekkur eða Hákarla-
saga og þar liggur munurinn.
Freyr Gígja Gunnarsson
Hin mesta barnaskemmtun
MADAGASCAR
LEIKSTJÓRAR: Eric Darnell og Tom McGrath
LEIKARAR: Ben Stiller, Chris Rock, Jada
Pinkett Smith og David Schwimmer
NIÐURSTAÐA: Madagascar fer ekki í hóp bestu
teiknimynda sögunnar. Hún er þó góð skemmt-
un fyrir börnin sem ættu að skemmta sér vel yfir
mörgæsunum og lemúakonunginum.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN