Fréttablaðið - 16.07.2005, Side 19
19LAUGARDAGUR 16. júlí 2005
KARL WERNERSSON
Kaup Milestone á 66,6 prósent hlut í Sjóvá
hafa nú verið staðfest og ný stjórn félags-
ins verið kjörin.
Kaup á Sjóvá
frágengin
Formlega hefur verið gengið frá
sölu á og greiðslu fyrir 66,6 pró-
senta eignarhlut Íslandsbanka í
Sjóvá til Milestone, sem er í eigu
Karls Wernerssonar og systkina.
Hluthafafundur kaus nýja
stjórn Sjóvár en hana skipa Bjarni
Ármannsson, Benedikt Jóhannes-
son, Karl Wernersson, Guðmund-
ur Ólason og Jón Scheving Thor-
steinsson.
Þorgils Óttar Mathiesen víkur í
kjölfarið sæti úr framkvæmda-
stjórn Íslandsbanka þar sem Sjó-
vá er ekki lengur dótturfélag
bankans. Kom þetta fram í til-
kynningu frá Íslandsbanka.
-jsk
Ryanair ætlar að bjóða þrjár
milljónir bónussæta.
Flugbókanir hjá Ryanair,
stærsta lággjaldaflugfélagi Evr-
ópu, hafa dregist saman um tíu
prósent eftir hryðjuverkin í
London. Michael O'Leary, for-
stjóri félagsins, segir að pantan-
ir séu átta þúsund færri á hverj-
um degi en búist hafði verið við.
Samkvæmt upphaflegum áætl-
unum fyrirtækisins gerði það
ráð fyrir eitt hundrað þúsund
fyrirfram bókunum á hverjum
degi samkvæmt frétt Financial
Times.
Ætlar félagið að bjóða upp á
upp þrjár millljónir bónussæta
frá næst komandi september-
mánuði fram í miðjan júlí á
næsta ári til að bregðast við
samdrætti. Viðskiptavinum
gefst þá kostur á að fljúga til
ýmissa áfangastaða fyrir eina
evru eða eitt pund auk skatta.
Hryðjuverkaárásir hafa mik-
il áhrif á rekstur félags eins og
Ryanairs. Svo var eftir hryðju-
verkin í Bandaríkjunum og
meira að segja eftir sprengingar
sem urðu í Madrid og Balí, sem
eru ekki áfangastaðir félagsins.
Helstu keppinautar Ryanairs,
easyJet, British Airways og
BAA, finna einnig fyrir minni
fyrirfram bókunum. Almennt er
talið að hryðjuverkin hafi ekki
mikil áhrif á rekstur félaganna
til lengri tíma. - eþa
Bókanir dragast saman
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Gott hjá
Sony-Ericsson
Farsímarisinn Sony-Ericsson
seldi sjö prósent meira á öðrum
ársfjórðungi en þeim fyrsta. Jafn-
framt jókst markaðshlutdeild fyr-
irtækisins og er hún nú um sjö
prósent. Hagnaður Sony-Ericsson
var á fjórðungnum tæpir 7 millj-
arðar króna.
Fyrirtækið, sem er samvinnu-
verkefni hins japanska Sony og
hins sænska Ericsson, hagnaðist
öðru fremur á söluaukningu far-
síma í milliflokki verðs.
Stjórnarformaður Sony-Erics-
son, Miles Flint, var ánægður með
árangurinn: ,,Við jukum markaðs-
hlutdeild okkar um eitt prósent
milli ársfjórð-
unga og hljót-
um því að
vera sáttir.“
-jsk
Gósentí› í Su›ur-Kóreu
Suður-kóreski hlutabréfamark-
aðurinn stendur í sögulegu há-
marki um þessar mundir. Er-
lendir fjárfestar hafa undanfar-
ið ausið fé í þarlend hlutabréf,
og hafa bréf í hátækni- og bíla-
fyrirtækjum verið sérlega vin-
sæl.
„Markaðurinn hefur rokið
upp úr öllu veldi. Hér ríkir alger
gósentíð“, sagði Lee Woo-hyun
sérfræðingur hjá Kyobo
Securities. Hlutabréf í fyrir-
tækjum á borð við bílaframleið-
andanum Hyundai hafa aldrei
verið verðmeiri.
Er veikum gjaldmiðli Suður-
Kóreu, woninu, þakkað þessar
miklu hækkanir. Það gerir að
verkum að suður-kóreskar vör-
ur eru ódýrar erlendis og að
hagstætt er að skipta erlendum
gjaldmiðlum í won.
-jsk
HYUNDAI JEPPI Suður-kóreski hluta-
bréfamarkaðurinn stendur i sögulegu há-
marki. Hlutabréf í Hyundai hafa aldrei
verið verðmeiri.
FLUGSTÖ‹ LEIFS EIRÍKSSONAR
For›ist bi›ra›ir á flugvellinum
Vegna aukinna öryggisrá›stafana á flugvöllum
og til hæg›arauka hvetjum vi› farflega til a›
mæta tímanlega í Leifsstö› flegar fari› er úr
landi. Vi› mælum me› a› farflegar mæti í flug-
stö›ina tveimur klukkustundum fyrir brottför.
Ókeypis sætafer›ir frá BSÍ kl. 4.30 á morgnana
í bo›i Flugstö›var Leifs Eiríkssonar.
Ókeypis sætafer›ir
frá BSÍ kl. 4.30
Gef›u flér tíma
í Leifsstö›
Finni› rúturnar me› okkar merki
Athugi› a› innritun í Flugstö›inni hefst kl. 5.00.
Tilbo›i› gildir frá 1. júní - 31. ágúst 2005
M
Á
T
T
U
R
IN
N
O
G
D
†
R
‹
IN
NÝI WALKMAN-
SÍMINN FRÁ
SONY ERICS-
SON Kemur út
um næstu mán-
aðamót og inni-
heldur MP3
spilara sem
geymt getur
hundrað lög.
RYANAIR