Fréttablaðið - 16.07.2005, Side 28
4 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Sportbíll í hvunndagsfötum
Í fljótu bragði lítur Megane RS út eins og venjulegur Megane, þó má greina að sportbíll sé á ferð á grillinu og tvöföldu pústi.
Renault Megane Sport sker
sig í útliti lítið frá venjulegum
Renault Megane þrátt fyrir að
vera öflugur og skemmtilegur
sportbíll.
Það er eitthvað heillandi við bíl sem
lítur út fyrir að vera venjulegur en
er það hreint ekki. Þannig bíll er
Renault Megane Sport. Að utan lítur
hann út eins og venjulegur Megane
fyrir utan tvöfalt púst og sportlegt
grill. Þegar inn er komið taka á móti
manni leðurklædd sportsæti og
appelsínugul öryggisbelti, svona til
að auka á stemmninguna, og hurða-
opnarar úr burstuðu stáli. Þetta er
þó bara byrjunin, því þegar bíllinn
hefur verið ræstur kemur í ljós afl-
mikill og sprækur sportbíll.
Sportsætin í bílnum halda vel
utan um ökumanninn og gera hann
að afar þægilegum ferðabíl og allt
innanstokks er þægilegt og að-
gengilegt. Bíllinn er einnig vel bú-
inn geymsluhólfum, eins og vænta
má í bíl frá Renault. Lyklalaust að-
gengi er líka sniðugt, nóg er að hafa
spjaldið í vasanum bæði til að opna
bílinn og ræsa hann.
Akstur Megane RS er hreinasta
skemmtun. Ekki þarf nema rétt að
koma við bensíngjöfina til að bíllinn
taki við sér eins og viljugur hestur
og löghlýðinn ökumaður verður að
hafa sig allan við að halda sig á há-
markshraða. Sex gírar og sport-
fjöðrun eykur á sportlega akst-
urseiginleika bílsins og ESP stöðug-
leikastýring sömuleiðis. Stýrið er
lipurt og gefur góða tilfinningu fyr-
ir akstrinum. Meðal sportbúnaðar
sem prýðir bílinn er, auk tvöfalds
pústs, sportgrills og sportsæta má
nefna þrýstiskynjara í dekkjum,
skriðstilli, sjálfvirkar þurrkur og
loftkælingu.
Megane RS er búinn sama ör-
yggisbúnaði og Meganinn sem hef-
ur skilað honum fimm stjörnum í
Euro NCAP prófunum. Meðal ör-
yggisbúnaðar má nefna EBD neyð-
arhemlun, sex öryggispúða, styrkt-
arbita í hurðum og sérstaklega
styrktan toppur og botn.
Megane RS er skemmtilegur val-
kostur fyrir þá sem vilja bíl með
góða sportlega eiginleika án þess að
það standi skrifað stórum stöfum á
honum að hann sé sportbíll. Hann er
líka fimm dyra og getur því sem
best þjónað þörfum fjölskyldu.
Megane RS þarf að sérpanta hjá
B&L.
steinunn@frettabladid.is
REYNSLUAKSTUR
MEGANE RS
Vél 2 l túrbó 225 hestöfl
Gírar 6 beinskiptur
Hröðun 6,5 úr 0 í 100 km/klst.
Verð kr. 3.350.000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!
FRIENDS
VIRKA DAGA KL. 20:30
SIRKUS ER KOMINN Í LOFTIÐ!
GÍTARINN ehf.
*** NÝ SENDING ***
Opið: Mán-Fös kl. 10-18 • Lau kl 11-16
ÞJÓÐLAGAGÍTAR
Poki, ól, DVD kennsludiskur, neglur,
stilliflauta, auka strengir
kr 12.900.-
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • sími 552 2125 •
gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
Jepplingar frá Renault og PSA
Jepplingaæðið hefur loksins teygt anga sína til bílaframleiðandanna.
Eins og flestir hafa tekið eftir hefur geisað mikið jepplinga- og jeppaæði í Evr-
ópu undanfarin misseri en bílaframleiðendurnir PSA, Peugeot og Citroën og
Renault hafa ekki tekið þátt í því.
Nú er breyting á og er búið að ganga frá samningum við Mitsubishi um að
framleiða nýja kynslóð af Outlander jepplingnum með ýmist Peugeot eða
Citroën útliti. Nýi jepplingurinn verður frumsýndur á Genfar sýningunni árið
2007. Jepplingarnir munu líklegast fá heitin Peugeot 7007 og Citroën C7.
Á svipuðum tíma mun Renault jepplingurinn líta dagsins ljós en hann verður
byggður á Nissan X-trail og settur saman hjá Samsung í Kóreu. Gerðarheiti
hans verður líklegast Koleos.
Renault jepplingurinn verður byggður á Nissan X-trail.
Þýskubíllinn lagður af stað
Porche Cayenne-sportjeppi fer um landið og hitar upp fyir HM á næsta ári.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hefst í Munchen í Þýskalandi í júní
2006. Keppnin er tilefni þess að flautað hefur verið til leiks með Þýskubíln-
um sem er samstarfsverkefni þýska sendiráðsins á Íslandi, Félags þýzkukenn-
ara, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Háskóla
Íslands.
Bíllinn er sportjeppi af gerðinni Porsche Cayenne en honum verður ekið um
landið með upplýsingar um heimsmeistaramótið sem haldið verður í tólf
borgum í Þýskalandi. Janframt verður boðið upp á örnámskeið í „fótbolta-
þýsku“ og fleira tengt fótbolta og HM.
Íþróttafélög, æskulýðsfélög og skólar um allt land geta fengið Þýskubílinn í
heimsókn, en áætlaðar eru þrjár hringferðir krignum landið. Þýskubíllinn
verður með stórt fótboltaspjald (Torwand) í farteskinu fyrir þá sem vilja láta
reyna á skotfimina.
Þýskubíllinn er glæsilegur sportjeppi af gerðinni
Porsche Cayenne.